Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 9
9
Ég vil hvetja alla iðjuþjálfa til að taka
nema tvisvar til þrisvar áður en þeir
ákveða hvort þeir vilji vera leiðbeinendur
til frambúðar eða ekki. Það er ekki þar
með sagt að góður iðjuþjálfi vilji vera
eða sé góður leiðbeinandi, þar sem
við erum öll með mismunandi þarfir,
nálganir og langanir.
Mitt mat er að best sé fyrir nema að
komast að á vinnustað þar sem fleiri
en ein starfsstétt vinna saman að því
að aðstoða skjólstæðinga. Með því fær
neminn tækifæri til að átta sig á að mikil
samvinna á sér stað milli starfsstétta sem
eiga sér sameiginleg markmið; að efla
Í þessari grein er ætlunin að hugleiða hvaða
viðbót iðjuþjálfi getur
verið fyrir nám og kennslu
í grunnskóla og af hverju
ég álít framlag iðjuþjálfunar
nauðsynlegt í skólastarfi
nútímans. Það er skoðun
okkar við Þelamerkurskóla
að viðmið iðjuþjálfunar eigi
vel við starf skólans og að
iðjuþjálfun eigi ekki bara
að standa þeim nemendum
til boða sem þurfa sérstaka
aðstoð, heldur ætti hún vera sjálfsögð
fyrir alla nemendur grunnskólans.
Óhætt er að fullyrða að í skólastarfi
nútímans séu lykilorðin fjölbreytni
og sveigjanleiki. Þróunarstarf
grunnskólanna einkennist af verkefnum
sem miða að því að skólinn geti mætt
fjölbreyttum þörfum nemenda og sveigt
starf sitt í samræmi við þær þarfir.
Hvar sem skólafólk kemur saman
er rætt um fjölbreytta kennsluhætti
og einstaklingsmiðun náms.
Sveigjanleikanum og fjölbreytileikanum
er ætlað að kallast á.
Í þessu sambandi má velta fyrir sér
hvort kennarar og menntun þeirra dugi
til að skapa þann sveigjanleika sem
lög um grunnskóla og aðalnámskrá
kveða á um. Til að auka fjölbreytnina
í kennarahópnum sem kemur að námi
hvers barns hafa margir skólar valið þá
leið að búa til teymi kennara sem sér um
nám og kennslu námshópa
skólanna. Það er almennt
viðurkennt að þannig verði
til vettvangur til að deila
hugmyndum, reynslu og
þekkingu sem annars fæst
ekki þegar aðeins einum
kennara er falin umsjónin
með námshópnum.
Að fjölga starfstéttum sem
koma daglega að kennslu
og námi barnanna hefur
sama markmið; fjölbreyttari
leiðir ættu þá að bjóðast
til að ná markmiðum aðalnámskrár.
Af eðlilegum ástæðum stýra námskrár
skólastarfinu en til viðbótar hefur
bókum og stundum prófum tekist að
hafa áhrif. Í viðmiðunarstundaskrá
grunnskóla kemur vægi námsgreinanna
fram. Þar sést að meira en helmingi
af tíma nemenda skal varið til náms í
hefðbundnum bókgreinum. Það er hins
vegar undir starfsfólki skólans komið
hvernig unnið er í þeim greinum á sem
fjölbreyttastan
hátt svo hver og
einn nemandi
verði sem best
undir það búinn
að taka virkan
þátt í samfélagi
sínu, sjálfum
sér og öðrum til
gagns.
Af reynslu
Iðjuþjálfun í grunnskóla
Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri Þelamerkurskóla
minni af störfum iðjuþjálfa í grunnskóla
er það skoðun mín að hann eykur
við og bætir námið sem fer fram í
skólanum. Ég hef séð að honum er
tamt að byggja starf sitt á þörfum og
getu einstaklingsins til að ná árangri
í daglegu lífi og starfi. Þar horfir
iðjuþjálfinn til þess sem ég vel að kalla
lífsfærni. Hann skoðar til dæmis hvaða
færni nemandinn þarf til að geta staðið
á eigin fótum. Einnig skoðar hann
hvernig nemandinn ver tómstundum
sínum og finnur þá hvar áhugasvið hans
liggur. Þessum áherslum iðjuþjálfans
er auðvelt að finna stað í aðalnámskrá
grunnskólans, grunnþáttum hennar
ásamt námskrám faggreinanna.
Það er því niðurstaða mín að ef
skólanum á að endast þrek í því verkefni
að byggja upp sveigjanlegt og fjölbreytt
nám, til undirbúnings nemenda fyrir líf
og starf í lýðræðisþjóðfélagi, þá þurfi
hann á að halda allri þeirri blöndun
og samvinnu fagstétta sem hann getur
orðið sér úti um.
færni skjólstæðingsins, jafnt líkamlega
sem andlega og félagslega.
Að efla sjálfstæði nemandans er
m.a. markmið með vettvangsnámi.
Leiðbeinandi er til staðar til að tengja
bóklegt nám hinu verklega, til að
svara spurningum, til að tryggja að
neminn fái að prófa sig áfram í öruggu
umhverfi. Það er hlutverk leiðbeinanda
að velja verkefni við hæfi eftir því hvar
nemandinn er staddur í náminu. Það
þarf stundum að fara rólega af stað, því
sumir nemendur eru óöruggari en aðrir.
Það þarf stundum að finna krefjandi
verkefni fyrir nemendur sem vilja taka
áskorun. Það þarf stundum að halda
aftur af nemum sem vilja færast of
mikið í fang. Í raun þarf að fara alveg
eins að nemanum og þegar við vinnum
með skjólstæðingum, þ.e. meta hvar
einstaklingurinn er staddur og styðja
hann í að ná settu markmiði. Hlutverk
leiðbeinandans er skemmtilegt,
fræðandi, fjölbreytt og þroskandi.
Enginn ætlast til þess af okkur að við
séum fullkomin og að við vitum allt.
Nemendur eru í þjálfun hjá okkur til að
finna sér fyrirmynd að iðjuþjálfa í starfi
en ekki kennarafyrirmynd.