Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 26
26
í glænýjan skóla sem með tímanum á
að vera aðgengilegur öllum en eins og
gengur og gerist í nýjum byggingum þá
klárast hlutirnir ekki alltaf á tilsettum
tíma og er raunin sú að skólinn er enn
ófullgerður. Þar er það sama upp á
teningnum að allir leggjast á eitt til að
allt gangi sem best.
Það eru alltaf einhverjar aðgengis
hindranir í daglegu lífi og þótt fólk sé
alla jafna allt af vilja gert til að greiða
götuna þá getur það líka verið þreytandi
að vera alltaf upp á aðra kominn og láta
„hafa svona mikið fyrir sér“. Sérstaklega
getur þetta tekið á hjá Bjarneyju sem er
að komast á unglingsár og þá snýst allt
um að skera sig ekki út úr, vera ekki
öðruvísi. Þá er það ekkert sérstaklega
vinsælt að þurfa aðstoð kannski
tveggja, jafnvel þriggja, til að taka þátt
í einhverju sem jafnaldrar gera án þess
að pæla í því. Sem dæmi þá er hún búin
að taka þátt í nokkrum námskeiðum hjá
leikfélagi undanfarin ár og um tíma var
því haldið fast til streitu að námskeiðin
væru í ákveðnu rými þar sem þurfti
að fara upp þrjá stiga. Því var reddað
að Bjarney kæmist upp en með mjög
miklum tilfæringum og endaði það
þannig að hún vildi bara hætta, henni
fannst þetta of mikið mál. Þegar
Bjarney vildi frekar hætta en halda
þessu áfram var ákvörðun tekin um
að færa námskeiðið á jarðhæðina þar
sem aðstæður voru töluvert slakari út
frá leiklistarlegu sjónarmiði en Bjarney
komst auðveldlega að. Eftir þetta
námskeið hætti hún alveg í leiklistinni.
Aðgengi sem snýr að bænum eða ríkinu
er eitt en það er, eins og áður sagði, oft
annað uppi á teningnum þegar kemur
að aðgengi á einkareknum stöðum og
einkaheimilum. Í dag erum við í þeirri
stöðu að aðgengi til ættingja og vina
er ekki alltaf eins gott og við viljum
og gerir okkur erfitt fyrir að komast í
heimsókn til fólks sem okkur er kært.
En aftur eru undantekningalaust allir
tilbúnir að hjálpa til að gera okkur kleift
að kíkja í kaffi.
Við fjölskyldan höfum átt ófá samtöl
við aðila í einkageiranum í sambandi
við aðgengi að ákveðnum stöðum.
Oftast hafa samtölin byrjað þegar við
stöndum frammi fyrir því að komast
ekki inn á staðinn. Þótt það séu tveir
hjólastólanotendur í fjölskyldunni
eigum við það stundum til að gleyma
að velta fyrir okkur stöðu aðgengismála
á þeim stöðum sem við ætlum á og
rjúkum bara af stað, nú eða það kemur
upp skyndihugdetta að fara eitthvert.
Þegar á staðinn er komið hefur
starfsfólk lýst því yfir að þetta gangi nú
ekki, auðvitað þyrfti að laga þetta og
tala um að gera úrbætur. Jafnvel höfum
við bent viðkomandi á hvað mætti fara
betur og hvernig væri hægt að bæta
úr. Því miður hafa þessi samtöl að ég
held bara einu sinni eða tvisvar sinnum
skilað sér í bættu aðgengi.
Rauði þráðurinn er samt sem áður sá
að við sem þurfum að hafa aðgengið
í góðu lagi getum ekki gengið að því
sem vísu að komast allt sem við þurfum
að komast. Því þarf að undirbúa alla
hluti vel og vera alltaf skrefi á undan,
hvort sem málið snýst um að komast
í brúðkaupsveislu, sumarbústað eða
skólaferðalag. Sum mál þarf að skoða
með allt að árs fyrirvara til að vera
örugg um að allt gangi vel fyrir sig.
Svo hefur líka tilfinningalegi þátturinn
áhrif. Það er ekkert sérstaklega
skemmtilegt að vera alltaf aðilinn sem
„allt“ stoppar á í skipulagningunni og
jafnvel gerir það að verkum að ekki sé
hægt að gera hluti eins og meirihlutinn
vill gera þar sem það gengur ekki upp
aðgengislega. Flækjustigið verður
óneitanlega hærra þegar gera þarf ráð
fyrir tveimur hjólastólum ofan á allt
annað sem verið er að skipuleggja.
Svo er nú gaman að bæta því við að við
fjölskyldan höfum verið svo lánsöm að
geta ferðast tvisvar sinnum til Flórída
í Bandaríkjunum. Þar er löggjöfin um
aðgengismál svo sterk og föst í sessi að
í tæpar þrjár vikur gátum við ferðast frá
Tampa til Daytona Beach án þess að
hafa nokkrar áhyggjur af því að komast
ekki inn á þá staði sem okkur datt í hug
að fara á. Mikil ósköp hvað það var
frelsandi og jafnvel skrítin tilfinning.
Á undaförnum misserum hefur mikið
verið rætt um ný mannvirkjalög og
byggingareglugerð. Þar er miðað við
að hanna og byggja öll mannvirki
eftir viðmiðum Algildrar hönnunar.
Markmiðið er að gera samfélagið
aðgengilegt öllum. Þeir sem standa að
hönnun og byggingu mannvirkja hafa
kvartað sáran yfir þessum breytingum
og hefur farið mikil vinna hjá
baráttusamtökum fatlaðra í að standa
fast á þessari nýju hugmyndafræði.
Það er okkar mat að sé horft fram á
veginn sé þetta afar hagkvæmt fyrir alla
íbúa þessa lands. Sem dæmi má nefna
að aldraðir munu geta búið lengur
heima þrátt fyrir hreyfiskerðingu,
en meðalaldur þjóðarinnar mun
fara ört hækkandi á næstu árum.
Hreyfihamlaðir einstaklingar munu
komast um allt samfélagið án hindrana
og þ. á m. heimsótt vini sína þar sem
allt íbúðarhúsnæði á að vera aðgengilegt
samkvæmt þessum nýju lögum. Einnig
má nefna fólk með barnavagna og alla
þá sem þurfa að komast um óhindrað.
Það er nóg til af óaðgengilegu húsnæði
þannig að það er engin hætta á að það
verði skortur á því!
Annars lítum við fjölskyldan björtum
augum á framtíðina í þessum efnum og
vonumst til að sjá fram á áframhaldandi
framfarir í aðgengismálum í náinni
framtíð öllum þjóðfélagsþegnum til
heilla.
Fjölskyldan í fríi á Flórída
Jón á vörulyftu