Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 6

Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 6
6 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2005 myndum í skólanum, kennslubókum og öðru efni? Geta öll börn fundið samsvörun við reynslu sína í efninu, “speglað” sig í því? 6. Samskipti og tengsl innan stofnunar, skólaandi og skólamenning. Undir þessum þætti er m.a. talað um að vinna þurfi að viðhorfsbreytingum innan skólans þannig að öllum sé ljóst mikilvægi þess að skólastarfið sé á jafnréttisgrundvelli, borin sé virðing fyrir öllum börnum og unnið markvisst gegn ójöfnuði. 7. Tungumál skólans. Í þessum þætti er m.a. átt við tungumál sem notuð eru í skólanum, hvaða tungumál eru kennd, hvernig þau eru notuð og kennd og mikilvægi þess að allir nemendur fái tækifæri til að nota móðurmál sitt markvisst í skólanum, hafi aðgang að efni á móðurmáli sínu og að það sé sýnilegt. 8. Tengsl við fjölskyldur og samfélag. Hér er átt við að virkja skuli fjölskyldur til að taka þátt í skólastarfinu og markvisst skuli leitað til þeirra varðandi hugmyndir um skólastarf. Einnig að skólinn þurfi að tengjast starfinu í sínu nánasta samfélagi, hvort sem það er hverfi, þéttbýli eða dreifbýli, og vera virkur þátttakandi í mótun þess. 9. Skólaþróun og skólastefna. Í þessum þætti er lögð áhersla á að unnið sé á lýðræðislegan hátt að mótun skólastefnu með þátttöku kennara, foreldra og barna. Á þann hátt eingöngu hafi skólastefnan fulla merkingu fyrir alla þegna í skóla- samfélaginu. Einnig sé mikilvægt að skólinn hafi hugsjón eða framtíðarsýn (Cotton o.fl. 2003). Eins og sjá má af ofangreindum dæmum eru tvö helstu lykilorðin jafnrétti og lýðræði, eða virk þátttaka allra. Að mati ýmissa fræðimanna ber að líta á þróun fjölmenningarlegrar menntunar og skólastarfs sem langtíma ferli sem sennilega lýkur aldrei þar sem markmið þess munu aldrei nást að fullu í mannlegu samfélagi (Banks og Banks, 2003). Fjölmenningarleg menntun á Íslandi Ef gengið er út frá því að sömu lykilþættir þurfi að gilda um skóla á Íslandi, þar sem nokkuð hröð þróun fjölmenningarlegs samfélags á sér stað, má spyrja hvar íslenskir leik-, grunn- og framhalds- skólar séu staddir á þessum mælikvarða. Fjölmörg símenntunarnámskeið um fjöl- menningarlega kennsluhætti undanfarin ár benda til þess að ekki skorti áhuga kennara á að þróa nýjar leiðir í kennslu til að mæta breyttum nemendahópi. Í mörgum leik-, grunn- og framhalds- skólum hafa undanfarin ár einnig farið af stað þróunarverkefni eða annars konar þróunarstarf sem miðar að því að bæta stöðu allra barna og taka á ýmsan hátt aukið tillit til fjölbreytileikans. Samkvæmt ofangreindum dæmum úr fræðunum er slík þróun mikilvæg og nauðsynleg en ekki nægileg. Með öðrum orðum, fjölmenningarleg menntun verður hvorki til með nýjum kennsluháttum eingöngu né með einstökum þróunarverkefnum. Það sem skortir er fyrst og fremst breytt heildarsýn á skólastarf í fjölmenningarlegu samfélagi og breytt viðhorf. Til að þróun fjölmenningarlegrar menntunar eigi sér stað á öllum skóla- stigum á Íslandi er einnig mikilvægt að hún sé studd aðalnámskrám sem byggjast á hugmyndum um lýðræði og jafnrétti í víðum skilningi, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttum nemendahópi og lagðar skýrar línur um fjölmenningar- legt skólastarf. Slíkar námskrár auðvelda þróun skólastarfs í einstökum skólum þar sem allir nemendur fá notið sín og bæði skipulag náms og innihald hefur aukna merkingu fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Parekh (2000) leggur áherslu á að eitt af skilyrðum þess að jafnvægi, stöðugleiki, samheldni og virkni þegnanna náist í fjölmenningarsamfélagi sé þróun fjölmenningarlegrar menntunar og skólastarfs. Komið hafa fram þær raddir að slíkar breytingar feli í sér ógnun við fyrri gildi og viðmið þannig að í tilfelli íslenskra skóla muni allt sem „íslenskt“ er þurfa að víkja fyrir hinu „útlenda“. Sú er ekki raunin. Breytingarnar fela í sér víðari sýn á menningu og samfélag, þ.e. gera ekki eingöngu ráð fyrir einni menningu eða einu tungumáli og horfa til stöðu allra einstaklinga í samfélaginu. Þær gera ráð fyrir að í öllu skólastarfi sé tekið tillit til allra barna þannig að námið hafi merkingu fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra og höfði til reynslu allra en sé ekki eingöngu miðað við tiltekinn hóp. Áherslubreytingarnar fela þannig í sér að börn af erlendum uppruna, börn í minnihlutahópum eða börn með önnur móðurmál en íslensku teljast ekki börn með sérþarfir heldur einfaldlega börn í fjölmenningarlegum skóla. Hið sama gildir um öll hin börnin, þau eru öll hluti af einni heild sem er hinn fjölmenningarlegi skóli. Breytingarnar miða að því að bæta stöðu allra barna, námslega sem og félagslega. Síðast en ekki síst miða þær að því að gera öll börn fær um að lifa og starfa í fjölmenningarlegu samfélagi þar sem fjölbreytileikinn er virtur og viðurkenndur. Hanna Ragnarsdóttir Höfundur er mannfræðingur og lektor við KHÍ og forstöðumaður námsbrautarinnar Fjölmenning í framhaldsdeild Heimildir: Banks, J. A. og Banks, C. A. M. (Ritstj.), (2003). Multicultural education. Issues and perspectives (5. útgáfa). New York: John Wiley and Sons, Inc. Cotton, T., Mann, J., Hassan, A. og Nickolay, S. (2003). Improving primary schools, improving communities. Stoke on Trent og Sterling: Trentham Books Ltd. Gay, G. (2000). Culturally responsive teaching. Theory, research and practice. New York og London: Teachers College Press. Ladson-Billings, G. (2001). Crossing over to Canaan. The journey of new teachers in diverse classrooms. San Francisco: Jossey-Bass. May, S. (Ritstj.), (1999). Critical multiculturalism. Rethinking multicultural and antiracist education. London og Philadelphia: Falmer Press. Nieto, S. (1999). The light in their eyes. Creating multicultural learning communities. New York: Teachers College Press. Parekh, B. (2000). Rethinking multiculturalism. Cultural diversity and political theory. Cambridge: Harvard University Press. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 18/1992. Sótt á vef Alþingis 12. 9. 2005: http://www.althingi.is/lagas/131a/1992018.2c5.html Wrigley, T. (2000). The power to learn. Stories of success in the education of Asian and other bilingual pupils. Stoke on Trent og Sterling: Trentham Books Ltd. Wrigley, T. (2003). Schools of hope: A new agenda for school improvement. Stoke on Trent og Sterling: Trentham Books Ltd. GESTASKRIF

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.