Skólavarðan - 01.09.2005, Side 10

Skólavarðan - 01.09.2005, Side 10
10 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2005 Til skrifstofu KÍ berast ótal fyrirspurnir um allt milli himins og jarðar er varðar kennara. Þeir fara eins og aðrir í fæðingarorlof og margir sem hringja hingað til mín í Kennarahúsið eru með spurningar varðandi fæðingarorlof. Sumir hringja á síðustu stundu þegar skilafrestur til að sækja um fæðingarorlof er að renna út, en aðrir hringja með góðum fyrirvara og velta mikið fyrir sér hvernig best sé að haga fæðingarorlofinu, hvort þeir eigi að dreifa því, skipta eða taka fullt fæðingarorlof. Svo eru jafnvel þeir forsjálustu sem skipuleggja fæðingarorlofið tólf mánuðum áður en það hefst m.t.t. hvernig sumarleyfið komi best út í fæðingarorlofinu. Venjulega er sveigjanleiki á tilhögun fæðingarorlofs. Hægt er að taka það í einu lagi, skipta niður á fleiri tímabil eða vera í minnkuðu starfshlutfalli samhliða fæðingarorlofi. Náist ekki samkomulag um að koma til móts við óskir starfsmanns á hann jafnan rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi. Að mörgu þarf að huga áður en farið er í fæðingarorlof, til dæmis þarf að fylla út tvenns konar eyðublöð, annars vegar eyðublaðið „Tilkynning um fæðingar- orlof” þar sem kennarinn setur fram óskir sínar um tilhögun fæðingarorlofsins og hins vegar „Umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði” sem sent er til TR (Tryggingastofnunar ríkisins). Þessi eyðublöð og aðrar upplýsingar um fæðingarorlof má nálgast á vef KÍ www. ki.is Þar er einnig hægt að finna “Spurt & svarað” sem eru algengustu spurningar og svör sem safnað hefur verið saman á einn stað, til dæmis varðandi fæðingarorlofið. Samkvæmt lögum um fæðingarorlof á móðir rétt á þriggja mánaða fæðingar- orlofi og faðir einnig. Sá réttur er ekki framseljanlegur á milli foreldra þannig að kjósi annað þeirra að nýta ekki sjálft sinn rétt fellur hann niður. Þá eiga foreldrarnir þrjá mánuði til viðbótar sameiginlega sem þeir geta ráðið hvernig þeir nýta. Margir vilja vita hvað þeir komi til með að hafa í tekjur í fæðingarorlofinu. Þá er hægt að fara inn á vef TR, þar er reikniforrit sem heitir „Reiknhildur” og getur fólk þar áætlað greiðslurnar sem það kemur til með að fá. KÍ er aðili að FOS (Fjölskyldu- og styrktarsjóði) ásamt BHM, BSRB og FÍH. FOS sér um að greiða konum mismun á 80% af heildarlaunum og þeim launum er þær hefðu fengið samkvæmt fyrri reglugerð um barnsburðarleyfi, það á líka við um þær sem dreifa á tólf mánuði. Þá er litið til fastra launa í sex mánuði og yfirvinnu fyrstu þrjá mánuðina (m.v. sex mánaða fæðingarorlof, annars er þessu öllu dreift á tólf mánuði, 50% greiðslur). Skilyrði fyrir viðbótargreiðslum FOS er að ráðning sé í gildi. Það eru ekki allir sem vita að í gildi er samkomulag varðandi fæðingarorlof grunnskóla-, framhaldsskóla- og tónlistar- skólakennara og sumarorlof þeirra. Sam- komulagið er þannig að ef kennari fer í fæðingarorlof sem lendir á sumartímanum þá telja júní, júlí og ágúst í raun sem einn mánuður og kennari sem ætlar sér að taka sex mánaða fæðingarorlof fær því átta mánaða fullt fæðingarorlof (komi hann aftur til starfa), TR greiðir fyrstu sex mánuðina og launagreiðandi síðustu tvo mánuðina. Þetta á þó ekki við ef fæðingarorlofi er dreift á lengri tíma, til dæmis tólf mánuði, þá velur viðkomandi að fá greiðslur frá TR í tólf mánuði og á ekki viðbótardaga vegna sumarsins heldur fær greitt orlof á fæðingarorlofið. Þetta á ekki við um leikskólakennara, í þeirra tilfelli bætist einungis sumarorlof viðkomandi við, þ.e. 24, 27 eða 30 dagar ef fæðingarorlof fellur á þann tíma sem viðkomandi hefði annars tekið orlof. Mikilvægt er að fólk merki við á eyðublaðinu „Umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði” að það vilji greiða til KÍ í fæðingarorlofinu, annars tapar starfsmaður öllum félagslegum réttindum þ.m.t. rétti í Vísindasjóði/ Endurmenntunarsjóði, Orlofssjóði og Sjúkrasjóði. Þetta atriði gleymist oft og kemur ekki í ljós fyrr en viðkomandi kennari ætlar að nýta sér þessi réttindi sem aðild að KÍ veitir. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi fæðingarorlof eða annað þá er hægt að hringja hingað í Kennarahúsið í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á netfangið: ingibjorg@ki.is Ingibjörg Úlfarsdóttir KJARAMÁL Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ skrifar um: Fæðingarorlof Ingibjörg hjá ki.is Ljósmynd: Keg

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.