Skólavarðan - 01.09.2005, Síða 28
28
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2005
Auglýst eftir
erindum á málstofur
Að sá lífefldu fræi - ráðstefna um einstaklingsmiðað nám
Þann 22. apríl 2006 verður árleg vorráðstefna skólaþróunarsviðs
kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni verður
umfjöllunarefnið einstaklingsmiðað nám.
Auglýst er eftir erindum í málstofur frá fræðimönnum,
kennurum, kennsluráðgjöfum og öðrum áhugasömum aðilum.
Sóst er eftir nýlegu efni um einstaklingsmiðað nám sem ekki
hefur hlotið kynningu áður á ráðstefnum. Einkum er leitað eftir:
• Fræðilegri umfjöllun um strauma og stefnur varðandi
einstaklingsmiðað nám og námsmat.
• Fræðilegri umfjöllun um árangursríkar leiðir í
einstaklingsmiðuðu námi.
• Kynningu á nýlegum íslenskum rannsóknum um
einstaklingsmiðað nám.
• Kynningu á árangursríkum þróunarverkefnum um
einstaklingsmiðað nám.
Frestur til að senda inn lýsingu á erindi, að hámarki 300 orð, er
til 15. október 2005. Svör um samþykki frá ráðstefnunefnd munu
berast fyrir 15. nóvember.
Allar nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Auðunsdóttir, sími 460
8580, netfang ingibj@unak.is og Trausti Þorsteinsson, sími 460
8560, netfang trausti@unak.is.
Út er komin skýrsla um
þróunarverkefnið „Lækjaborg,
fjölmenningarlegur leikskóli
2001-2004“.
Í skýrslunni er sagt frá
framkvæmd verkefnisins og
hvernig það var uppbyggt
með tilliti til samstarfs starfs-
fólks, barna og foreldra. Sagt
er frá rannsókn sem gerð
var á starfi leikskólans á því
tímabili sem verkefnið stóð
yfir auk þess sem í skýrslunni
eru fræðilegir kaflar um
íslensku sem annað mál og
fjölmenningarlega kennslu í
leikskóla. Í lok skýrslunnar eru
ýmis fylgiskjöl sem nýst geta
leikskólakennurum þegar
innleiða á fjölmenningar-
legar kennsluaðferðir í
leikskólum.
Höfundar skýrslunnar eru Fríða B. Jónsdóttir, Anna Þorbjörg
Ingólfsdóttir og Elsa Sigríður Jónsdóttir.
Útgefendur eru leikskólinn Lækjaborg og Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands. Skýrslan, sem telur tæpar eitt hundrað
blaðsíður, er prýdd fjölmörgum litljósmyndum úr starfi leik-
skólans.
Skýrslan er til sölu á leikskólanum Lækjaborg v/Leirulæk
(568-6351, laekjaborg@leikskolar.is) og hjá Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands (563 3827, rkhi@khi.is) og kostar 2000 kr.
Námslaun skólaárið
2006-2007
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og
Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í
grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu
2006-2007.
Væntanlegir styrkþegar fá greidd laun á námsleyfistíma í allt
að tólf mánuði eftir lengd náms.
Umsóknir sendist til Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ,
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur rennur út 1.
október 2005. Eyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins og heimasíðu
Kennarasambandsins ki.is.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður
sjóðsins á skrifstofu Kennarasambandsins.
Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ
margret@ki.is
Pælt í PISA - málþing 7. og 8. október
Athugið að ef þið skráið ykkur fyrir 1. október er skráningar-
gjaldið einungis 2.500 krónur. Nánari upplýsingar á malthing.
khi.is
Kennarar athugið!
Nordplus Junior styrkir ferðir kennara/skiptikennslu
Umsóknarfrestur er til 15. október 2005
• Kennaraskipti á Norðurlöndum byggjast á minnst tveggja
skóla samstarfi sem felur í sér að skiptikennari taki virkan
þátt í kennslu í sínu fagi við gestaskólann.
• Möguleiki er á að fá styrk til farkennslu, þ.e. að kennari
ferðist á milli skóla í einu eða fleiri af Norðurlöndunum og
kenni grein sína.
Hægt er sækja um ferða- og uppihaldsstyrki á meðan á
skipti- eða farkennslu stendur. Kennaraskiptin vari a.m.k.
fimm daga með ferðadögum (þriggja daga kennsla). Ferðir
skulu farnar á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31. júlí 2006.
Rafrænt umsóknarform verður opnað eigi síðar en 15. september
á www.ask.hi.is. Samstarfssamningur fylgi umsókn. Allar nánari
upplýsingar veitir Birna Heimisdóttir birna@hi.is á Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins/Landsskrifstofu Nordplus, sími 525 5855.
Kvennafrídagurinn 30 ára
Þann 24. október næstkomandi eru liðin 30 ár frá Kvenna-
frídeginum sem markaði tímamót í jafnréttisbaráttu á Íslandi og
þótt víðar væri leitað. Kennarasamband Íslands mun taka þátt
í viðburðum þennan dag. Fylgist með á www.ki.is og í næstu
Skólavörðu.