Skólavarðan - 01.06.2008, Síða 7

Skólavarðan - 01.06.2008, Síða 7
KjARAMÁL 7 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Að mörgu er að huga þegar kennari ákveður að hefja töku eftirlauna, margar spurningar vakna til dæmis um eftirlaunin, starfslokin, hvernig félagsaðildin breytist, hvort hægt sé að nýta þjónustu Orlofssjóðs og jafnvel að halda áfram kennslu eftir að taka eftirlauna hefst. Ég ætla að fjalla um nokkur atriði sem kennarar á leið á lífeyri velta fyrir sér þegar kemur að þessum tímamótum. Hvenær getur kennari hafið töku eftirlauna? Hafa ber í huga að innan KÍ eru margir hópar sem greiða í mismunandi lífeyrissjóði, en flestir greiða í LSR (Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins) og LSS (Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga). Upplýsingar um stöðu við- komandi hjá lífeyrisjóði fær sjóðfélagi hjá sínum sjóði, en hjá LSR er einnig hægt að sækja um aðgang að sjóðfélagavef sjóðsins og nálgast þar upplýsingar um stöðu sína. Það er mismunandi eftir lífeyrissjóðum og deildum hvenær kennarar geta hafið töku eftirlauna. Sjóðfélagar B-deildar LSR (Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins) geta hafið töku lífeyris 60 ára samkvæmt 95 ára reglunni en 65 ára samkvæmt almennu reglunni. Sjóðfélagar í A-deild geta hins vegar hafið töku lífeyris hvenær sem er á aldrinum 60 til 70 ára og þurfa ekki að vera hættir störfum þegar taka lífeyris hefst, en hefji þeir töku eftirlauna fyrir 65 ára kemur til skerðingar en þeir bæta við sig ef töku lífeyris er frestað. Upphaf lífeyristöku sjóðfélaga A-deildar LSS (Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga) miðast við 65 ára aldur. Þó getur sjóðfélagi hafið töku lífeyris allt frá 60 ára aldri en þá skerðist réttur viðkomandi fyrir hvern mánuð sem hann byrjar fyrir 65 ára aldur og ef sjóðfélaginn frestar töku lífeyris bætir hann þar með lífeyrisrétt sinn fyrir hvern mánuð sem hann frestar því. Í V-deild LSS (Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga) er miðað við að taka lífeyris hefjist við 65 ára aldur en eins og í A-deild LSS þá skerðist lífeyrisrétturinn ef taka lífeyris hefst fyrir 65 ára en eykst ef töku lífeyris er frestað. Ellilífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins Allir sem eru orðnir 67 ára eiga rétt á elli- lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins og verður hver og einn að sækja um hann sérstaklega til stofnunarinnar þar sem það gerist ekki sjálfkrafa. Þó að starfsmaður haldi áfram að vinna eftir að 67 ára aldri er náð á hann samt rétt á ellilífeyri en þó getur komið til skerðingar fari tekjur hans yfir ákveðin mörk. Þess ber þó að geta að atvinnutekjur þeirra sem náð hafa 70 ára aldri teljast ekki til tekna við ákvörðun ellilífeyris og hafa því ekki áhrif á rétt til ellilífeyris. Upphaf lífeyristöku Allir þurfa að sækja sérstaklega um að hefja töku eftirlauna hjá sínum lífeyrissjóði og vinnuveitandi fyllir einnig út tilkynningu um starfslok starfsmannsins. Umsóknareyðublöð má nálgast á vef lífeyrissjóðanna eða biðja um að fá þau send í pósti. Ef sjóðfélagi hefur greitt í nokkra lífeyrissjóði er sótt um lífeyri til þess lífeyrissjóðs sem greitt var í síðast, eða þar sem sjóðfélagi á mest réttindi. Sá lífeyrissjóður sækir þá um til annarra sjóða eða veitir nánari upplýsingar um hvert skal snúa sér, ef við á. Greiddur er skattur af lífeyrisgreiðslum eins og af launum og því þarf lífeyrissjóðurinn einnig að fá skattkort til þess að sjóðfélagi geti nýtt persónuafslátt sinn hjá sjóðnum. Þegar grunn-, framhalds- eða tónlistar- skólakennari hefur töku eftirlauna skiptir máli hvort hann var upphaflega september- eða ágústráðinn. Ágústráðnir segja upp 1. maí, septemberráðnir 1. júní. Í þeim tilfellum þar sem upphaf ráðningar miðast við skólaár þá segir septemberráðinn kennari upp 1. júní en hefur enga vinnuskyldu í ágúst og ágústlaun hans skulu vera eins og skólaárið á undan. Að kenna á eftirlaunum Ef eftirlaunakennari er ráðinn í stunda- kennslu þá skerðir það ekki lífeyrisgreiðslur og getur kennari tekið að sér eins mikla kennslu og hann vill. Stundakennsla er greidd á starfstíma skóla og svo bætist orlof ofan á. Kjarasamningur gerir ráð fyrir því að eftirlaunakennarar séu stundakennarar þó að heimilt sé að semja um annað, eins og t.d. 49,9% ráðningu. Það er því heimilt að taka að sér hlutastarf, en það ráðningarform er háð samþykki launagreiðanda og starfs- hlutfallið má þá ekki fara yfir 49,9%. Ef starfið sem sinnt er hefur skylduaðild að lífeyrissjóði viðkomandi þá er ekki greitt í þá deild sem verið er að taka lífeyri úr. Eitthvað hefur verið um það að kennarar, sem eru komnir á lífeyri hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, hafi ráðið sig í starfshlutfall og er það heimilt samkvæmt reglum lífeyrissjóðsins. Ef starfinu sem lífeyrisþeginn sinnir fylgir hins vegar ekki skylduaðild að lífeyrissjóðnum, sem tekið er úr, er hægt að hafa ótakmarkaðar tekjur án þess að skerða eftirlaunin en greiða verður fullan skatt af tekjunum. Félag kennara á eftirlaunum Þegar kennari fer á eftirlaun breytist félags- aðild viðkomandi að KÍ. Kennarar á eftir- launum sem hafa fram að lífeyristöku verið félagsmenn KÍ geta sótt um að verða félagar í FKE (Félag kennara á eftirlaunum). Sá sem er félagi í FKE fær senda Skólavörðuna og allan póst sem sendur er út á vegum félagsins og getur nýtt sér þjónustu Orlofs- sjóðs KÍ. Einnig er starfrækt innan Félags leikskólakennara sérstök deild fyrir þá leik- skólakennara sem komnir eru á eftirlaun. Sækja þarf sérstaklega um aðild að deild- inni. Þeir kennarar sem ráðnir eru í hlutastörf eftir að taka eftirlauna er hafin og greiða áfram félagsgjöld njóta fullra félagslegra réttinda hjá KÍ og allra réttinda samkvæmt kjarasamningum. Ef þið hafið einhverjar spurningar um þetta eða annað er ykkur velkomið að hringja til mín í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@ki.is. Einnig má leita ráðgjafar um eftirlaun hjá Eiriki Jónssyni formanni KÍ. Í lokin vil ég þakka ykkur sem lesið hafið greinarnar mínar í vetur og vona að þið njótið sumarsins sem er framundan. Ingibjörg Úlfarsdóttir Launafulltrúi KÍ Kjarasamningur gerir ráð fyrir því að eftirlaunakennarar séu stundakennarar þó að heimilt sé að semja um annað, eins og t.d. 49,9% ráðningu. Það er því heimilt að taka að sér hlutastarf, en það ráðningarform er háð samþykki launagreiðanda og starfshlutfallið má þá ekki fara yfir 49,9%. Að hefja töku eftirlauna Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ Lj ós m yn d : S te in un n Jó na sd ót ti r

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.