Skólavarðan - 01.06.2008, Page 14

Skólavarðan - 01.06.2008, Page 14
14 NETLA SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Mikill og vaxandi áhugi er meðal kennara á svokölluðum starfendarannsóknum (action research). Samtök um skólaþróun stóðu fyrir hundrað og fjörutíu manna ráðstefnu um þetta efni í Borgarholtsskóla í aprílbyrjun á þessu ári, þar voru flutt sex erindi um starfendarannsóknir, tvö almenn inngangserindi og fjögur erindi þar sem kennarar lýstu starfendarannsóknum sínum. Ráðstefnan bar heitið Að rjúfa einangrun kennara og þar talaði meðal annarra enska fræðikonan Jean McNiff sem hefur látið mikið að sér kveða á þessu sviði og komið hingað til lands til að leiðbeina kennarahópum á grunn- og framhaldsskólastigi. Kennarar í Mennta- skólanum við Sund eru í hópi þeirra sem stunda rannsóknir á eigin starfi og starfs- kenningum á grundvelli þessarar hug- mynda- og aðferðafræði og með skólaþróun að markmiði en ráðgjafi þeirra er Hafþór Guðjónsson dósent. Jean McNiff hefur líka starfað með kennurum í MS og hún bauð m.a. kennarahópnum að kynna rannsóknir sínar á ráðstefnu sem haldin var í London í fyrra. Þess má geta að í næsta tölublaði Skólavörðunnar er fjallað ítarlegar um ráðstefnuna og birt stutt viðtal við Jean McNiff en að þessu sinni beinum við sjónum að nýlegri grein Hafþórs í Netlu, Starfendarannsóknir í Menntaskólanum við Sund. „Starfendarannsókn er hugtak sem bendir á praktíska leið fyrir þig að rýna í eigin starfshætti í því augnamiði að kanna hvort þeir séu eins og þú vildir hafa þá,“ segir Hafþór Guðjónsson í grein sinni í Netlu. Þar lýsir hann starfendarannsóknum og þá sérstaklega rannsóknum kennara og stjórnenda við Menntaskólann við Sund ásamt því að ræða skilgreiningar á starfendarannsóknum og segja frá ástralska skólaþróunarverkefninu PEEL sem byggist á þeirri hugmyndafræði. „Grunnhugmyndin er að læra í starfi,“ segir Hafþór, „að taka til athugunar reynslu sem maður verður fyrir og þá með þeim ásetningi að átta sig betur á því sem maður er að gera og hvaða afleiðingar gerðir manns hafa. Starfendarannsóknir hafa verið að hasla sér völl í skólum. Kennarar sem taka þátt í þeim beina athyglinni að eigin starfsháttum og áhrifum þeirra á nemendur. Þeir taka til athugunar ákveðna og afmarkaða þætti í starfinu, prófa nýjar leiðir og kanna hvernig til tekst. Lykilatriðið er alltaf skráning og gagnasöfnun, að maður skrái það sem gerist og afli gagna um það sem maður er að gera og hafi þannig eitthvað í höndunum til að greina og ræða um við aðra. Í skólum er algengt að kennarar starfi saman að slíkum rannsóknum og hittist reglulega til að fara yfir gögn sem þeir hafa aflað. Í slíkum hópum gefst fólki líka tækifæri til að læra hvert af öðru og þróa þannig hugmyndir sínar og hugsun, bæði sem rannsakendur og kennarar.“ Í greinarlok segir Hafþór meðal annars: „Það sem er nýtt hér er skráningin og gagnasöfnunin. Þátttakendur í rannsóknar- hópnum í MS eru ekki aðeins að prófa eitt og annað heldur gera þeir sér líka far um að skrá það sem þeir upplifðu og afla gagna með skipulögðum hætti: Flestir halda dagbók, aðrir láta sér nægja minnispunkta, sumir nota spurningalista, aðrir hljóðrita viðtöl við nemendur, enn aðrir taka ljósmyndir eða notast við myndbandsupptökur. Aðalatriðið er þetta: starfsfólkið eignast gögn um eigið starf, gögn til að rýna í og ræða um við aðra, Starfendarannsóknir í Menntaskólanum við Sund Glæra frá fyrirlestri Hafþórs Guðjónssonar á ráðstefnunni Að rjúfa einangrun kennara sem haldin var í Borgarholtsskóla í apríl sl. Hjördís Þorgeirsdóttir konrektor MS hefur skrifað skýrslu um þróunarstarfið sem hægt er að lesa á vef skólans, msund.is. Þau Hjördís og Hafþór héldu bæði tölu á ráðstefnunni og í lok hennar var stofnað nýtt félag í menntarannsóknageiranum, Félag um menntarannsóknir. Netla: netla.khi.is Jean Mc Niff: www.jeanmniff.com Menntaskólinn við Sund: msund.is Samtök um skólaþróun: www.skolathroun.is Borgarholtsskóli: bhs.is gögn til að byggja á þegar kemur að því að skipuleggja eða endurskipuleggja starfið. Það sem háir einkum þróun kennara- stéttarinnar til aukinnar fagmennsku er skortur á skráningu, að það sem gert er, til dæmis í skólastofu, sé að einhverju marki og á einhvern hátt skráð þannig að starfsþekking skólafólks verði sýnileg, bæði þeim sem í hlut eiga og öðrum, til dæmis nýjum kennurum.“ Lesið greinina í heild á netla.khi.is keg

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.