Skólavarðan - 01.06.2008, Page 15

Skólavarðan - 01.06.2008, Page 15
15 GREINAbUNdIN KENNSLA OG NÁM SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 Hvassaleitisskóli er nýlega skriðinn á fimmtugsaldurinn en ekki er annað að sjá en hann beri aldurinn vel. Í skólanum er bullandi þróunarstarf í gangi að frumkvæði skólastjórnenda, þeirra Þórunnar Kristins- dóttur aðstoðarskólastjóra og Péturs Orra Þórðarsonar skólastjóra, sem hafa átt farsælt samstarf síðastliðin fimmtán ár. Í Hvassaleitisskóla er lögð áhersla á greinabundna kennslu og greinabundið nám frá upphafi skólagöngu. Stefnan er nokkuð umdeild hérlendis og því skyldi maður ætla að einhverjir árekstrar yrðu. Þeir hafa þó hvorki verið margir né stórir að mati Þórunnar og Péturs Orra og nú er svo komið að þó nokkrir skólar hafa sýnt stefnunni áhuga og eru ýmist búnir eða í þann mund að taka hana upp. „Við einblínum á faglega þáttinn,“ segja þau Þórunn og Pétur Orri þegar Skólavarðan tekur hús á þeim laust fyrir sumarleyfi, „og látum aðra sjá um hitt, eins og til dæmis matartilbúning og þrif. Þetta gefst mjög vel.“ Menntasvið lét meta skólastarfið í Hvassa- leitisskóla í febrúar á þessu ári og kom matsskýrslan út í mars. Sex til átta skólar eru metnir árlega af starfsmönnum sviðsins og kemur það mat til viðbótar sjálfsmati skólanna. Skýrsla menntasviðs er birt á forsíðu skólavefjarins, hvassaleitisskoli.is. Sömuleiðis er þar að finna matsskýrslu frá skólaþróunarsviði kennaradeildar Háskólans á Akureyri sem kom út í febrúar 2007 og unnin var að beiðni Hvassaleitisskóla eftir þriggja mánaða reynslutíma greinabundnu kennslunnar. „Við köllum eftir umræðu um það sem við erum að gera og lítum á matsvinnu utanaðkomandi aðila sem hjálpartæki í okkar starfi,“ segja þau Þórunn og Pétur Orri. „Það sem er neikvætt í skýrslunum er ráð til okkar um hvað þurfi að bæta.“ Báðar skýrslurnar eru töluvert jákvæðar í garð þess umbótastarfs sem fram fer í Hvassaleitisskóla. Í matsskýrslu menntasviðs segir í SVÓT greiningu (eða öllu heldur SVÖT greiningu þar sem ógnunum hefur verið skipt út fyrir ögranir, innskot keg): „Styrkleikar: Góður árangur nemenda. Ánægt starfsfólk sem vinnur faglegt starf og beitir fjölbreyttum kennsluháttum. Metnaðarfull stefnumótun. Veikleikar: Styrkja þarf upplýsingagjöf til foreldra og þátttöku þeirra í skólastarfinu. Hvernig tekið er á alvarlegum hegðunarmálum og einelti. Ögranir: Skólinn er lítill og nemendur fáir sem hefur áhrif á möguleika á fjölbreyttu vali og fjölbreyttu félagsstarfi. Tækifæri: Jákvæðir nemendur, foreldrar sem styðja við skólann. Lítill skóli sem auðveldar samskipti nemenda og starfsfólks. Þróun á framkvæmd stefnumótunar um nám við hæfi og einstaklingsmiðað námsmat.“ Í samantekt ábendinga í þessari skýrslu kom fram að árangur nemenda í lestri í 2. bekk væri marktækt betri en meðalárangur í grunnskólum Reykjavíkur. Sömuleiðis kemur fram góður árangur í stærðfræðiskimun. Pétur Orri benti á að Hvassaleitisskóli stæði framarlega í náttúrufræði sem PISA rannsóknir hefðu sýnt að væri almennt veikur hlekkur í íslensku grunnskólastarfi. Hann og Þórunn segja ljóst að greinabundin kennsla og nám styrki náttúrufræði vegna þess að hún líði ella gjarnan fyrir það að kennarar sem hafa takmarkaðan áhuga og/eða litla þekkingu á náttúruvísindum séu skikkaðir til að kenna þau. Í samantekt í skýrslu skólaþróunarsviðs HA segir meðal annars: „Þátttakendur í öllum rýnihópum töluðu almennt um að lengri námslotur gæfu meira svigrúm til fjölbreyttra kennsluhátta … þeim fyndist tíminn nýtast betur í skólanum og þeir fengju fleiri tækifæri til að vinna margvísleg verkefni tengd viðfangsefninu hverju sinni. Nemendur voru einnig ánægðir með að hið nýja fyrirkomulag auðveldaði heimanám, það væri minna vegna þess að færri fög væru kennd á dag og þeir næðu Gaman í vinnunni! Þórunn og Pétur Orri Ljósmyndir: keg og Jón svavarsson

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.