Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 22

Skólavarðan - 01.06.2008, Qupperneq 22
SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 8. ÁRG. 2008 22 Skólavarðan minnir á mjög merkilega ráð- stefnu sem haldin verður hérlendis næsta haust á vegum ADHD samtakanna og fleiri aðila, þeirra á meðal er Kennara- félag Reykjavíkur. ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sem og fjölskyldum þeirra. Ráðstefnan er haldin í tilefni af tuttugu ára afmæli samtakanna á Íslandi og stendur yfir dagana 25. og 26. september. Hún ber yfirskriftina Tök á tilverunni – staðan í dag og vegvísar til framtíðar. Markmið ráðstefnunnar er að miðla fræðslu og stuðla að aukinni þekkingu um ADHD hjá öllum sem koma að málefnum barna, unglinga og fullorðinna með ADHD. Þemu eru annars vegar skólaganga barna með ADHD og hins vegar fullorðnir með ADHD. Við val á fyrirlesurum var tekið mið af þessum áherslum. Ráðstefnugjald er lægra fyrir þá sem skrá sig fyrir 15. júlí. Dagskrárdrög liggja fyrir en athugið að dagskráin getur breyst ef forföll verða. Hér er stiklað á stóru, dagskrárdrögin í heild eru á www.ki.is og www.adhd.is Á fimmtudeginum 25. september heldur Thomas E. Brown tvö erindi: New develop- ments in understanding ADHD and it‘s complications og Strategies for medications and other treatments for ADHD. Thomas er aðstoðarprófessor í geðlæknisfræði við Yale háskóla og aðstoðarframkvæmdastjóri rannsóknastofu um athyglisbrest og skyldar raskanir sem er líka í Yale. Hann er fræðimaður í fremstu röð á þessu sviði og tilgátur hans og fræðistarf hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Hann rekur líka eigin stofu þar sem hann metur og veitir meðferð bráðgreindum börnum, unglingum og fullorðnum með ADHD. Dr. Brown hefur skrifað fjölda greina og bóka um ADHD. Sjá nánar um hann á www.drthomasebrown.com Sama dag heldur Ragnheiður Fossdal líffræðingur fyrirlesturinn Erfðarannsókn á ofvirkniröskun og athyglisbresti og Dagmar Kr. Hannesdóttir sálfræðingur flytur erindi sitt Snillingarnir. Þjálfun í samskiptum, tilfinn- ingum, sjálfsstjórn og athygli barna með ADHD. Mörg fleiri erindi verða flutt þennan dag. Ragnheiður og Dagmar eru ekki með vefsíðu. Föstudagur 26. september er ekki síður spennandi. Þá mæta til leiks auk Thomasar og innlendra fyrirlesara þær Kathleen Nadeau og Sandra Rief. Kathleen er þekkt fyrir að vera með báða fætur á jörðinni og gefa gífurlega hagnýt ráð um hvernig börn og fullorðnir með ADHD geti hagað lífi sínu til að fá sem mest út úr því. Hún er klínískur sálfræðingur eins ogThomas og stjórnar miðstöð um ADHD auk þess að gefa ásamt fleirum út vefinn ADDvance, skrifa bækur og halda fyrirlestra og námskeið um allan heim. Fyrirlestur Kathleen heitir Building an ADD-friendly life. Sandra er menntunarráðgjafi, fyrirlesari, rithöfundur og námskeiðshaldari. Hún er líka kennari og hefur hlotið viðurkenningu sem slíkur. Fyrirlestur Söndru er á því sviði; Reaching and teaching children with ADHD. Sjá nánar um Kathleen og Söndru á www.addvance. com og www.sandrarief.com Meðal annarra áhugaverðra viðburða á föstudeginum má nefna erindi Sigrúnar Harðardóttur félagsráðgjafa, námsráðgjafa og kennara, Framhaldsskólinn og nemendur með ADHD. Sigrún er brautryðjandi í þjónustu við framhaldsskólanemendur með ADHD og er verkefnissjóri nemendaþjónustu Menntaskólans á Egilsstöðum. Sé nemandi með ADHD er gerður við hann samningur þar sem lögð eru drög að þjónustu skólans og ábyrgð nemandans á námi sínu. Allir kennarar viðkomandi fá afrit af samningnum. Þjónusta við nemendur með ADHD getur að öðru leyti falist í fræðslu um hvernig ADHD hefur áhrif á þá sem námsmenn og aðstoð við að vinna gegn þeim áhrifum, atferlisþjálfun, rólegum aðstæðum í prófum, prófkvíða- námskeiði, sjálfsstyrkingarnámskeiði, stuðn- ingsviðtölum, þar sem meðal annars er farið yfir námslega stöðu þar sem stuðst er við upplýsingar frá fagkennurum, og samstarfi við foreldra. Allir sem láta sig varða málefni fólks með ADHD eiga sannarlega erindi á þessa metnaðarfullu ráðstefnu þar sem ekkert er til sparað. keg Tök á tilverunni - ADHD ráðstefna 25. og 26. september Tvö meginefni: Skólaganga barna með ADHD og fullorðnir með ADHD Kathleen Nadeau Sandra Rief Thomas E. Brown RÁÐSTEFNA

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.