Skólavarðan - 01.11.2009, Page 31
nýjar og líflegar bækur
um ritun og áhrif sagnaritunar
BÓK UM RI
TUN
Svart
á hvítu A
A
Ragnheiður Ge
stsdóttir
AAA
A A
Svart á hvítu
R
agnheiður G
estsdóttir
svart á hvítu –
kennslubók um ritun
Rithöfundurinn og kennslubókahöfundurinn Ragnheiður Gestsdóttir
hefur sent frá sér þessa nýstárlegu bók sem fjallar um móðurmálið
og ritun þess. Hér opnast augu lesenda fyrir því undri sem ritun
texta er og í bókinni eru bæði verkefni og umræðuefni.
Nálgunin er þverfagleg og myndlist, menningarsaga, ritlist og letur-
gerð koma við sögu.
hetjur
Þórhallur er fluttur með fjölskyldunni til Þrándheims í Noregi.
Í skólanum þekkir hann engan og gengur undir nafninu Túrhalur
Túrdarson. Yfir og allt um kring gnæfir löngu dauður kóngur eins
og hann væri enn í fullu fjöri. Af hverju halda allir að það sé gaman
að búa í útlöndum? Og hvernig í ósköpunum á strákur úr Hlíðunum
að lifa þetta af?
Í þessari margslungnu sögu fléttar Kristín Steinsdóttir saman fornum
sögum við nútímaatburði og veltir því fyrir sér hvað það felur í sér að
vera hetja.
Kennsluleiðbeiningar við Hetjur eru á www. forlagid.is
gásagátan
Í júnímánuði árið 1222 leggur skip að bryggju að Gásum í Eyjafirði.
Um borð eru tveir bræður: Kolsveinn, kominn til að hefna föður síns,
og yngri bróðir hans, Kálfur, sem ferðast með dularfullan böggul.
Á Gásum er líf og fjör en ekki eru allir komnir þangað í heiðarlegum
tilgangi.
Í sögunni bregður fyrir ýmsum sögufrægum persónum, t.d. Guðmundi
Arasyni, Gissuri Þorvaldssyni og Snorra Sturlusyni.
Höfundur bókarinnar, Brynhildur Þórarinsdóttir, studdist við sögu-
legar heimildir og rannsóknir fornleifafræðinga við gerð sögunnar.