Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 3

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 3
4 Leiðar i Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Hönnun: Penta ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson Teikningar: Ingi Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470 Prentun: Prentsmiðjan Grafík / Gutenberg ehf. Forsíðumynd: Jón Svavarsson Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). Io, mi chiamo Ég var að byrja á ítölskunámskeiði og strax í fyrsta tímanum lærði ég nokkuð merkilegt: Það er miklu auðveldara að læra að fullyrða en að spyrja. Io, mi chiamo Kristín, sono di Mosfellsbær (ég heiti Kristín og er Mosfellingur), ekkert mál. Auðvitað er mikil- vægt að geta staðfest tilveru sína með þessum hætti. En hvernig á nú aftur að spyrja hvaðan einhver annar er? Og hver hann er? Við getum fullyrt, staðhæft og haldið ein- hverju fram þar til við verðum blá í framan án þess að læra nokkurn tímann nokkuð nýtt. Á meðan ein lítil spurning getur opn- að ótal dyr. Kannski höfum við bara ekki áhuga á að læra? Áhugahvötin er einmitt hugleikin kennurunum sem við fengum til spjalls við okkur í tengslum við meginvið- fangsefni blaðsins að þessu sinni, hegðun og hópastjórnun. Kennarar gera sér mætavel grein fyrir því að nemendur sem eru ekki að gera neitt skemmtilegt fara í staðinn að gera eitthvað miður skemmtilegt. - Í upphafi nýs árs fyllist fólk kenndum af tvennum toga, annars vegar vill það bretta upp ermar og hefjast handa af fullum styrk, hins vegar vill það líka fá að horfa til baka og melta liðið ár. Þessa gætir ekki bara hjá einstaklingum heldur einnig hjá fyrirtækjum, félagasamtökum, stjórnmálaflokkum, stéttarfélögum o.s.frv. Þetta er eðlilegur taktur í lífinu. Kennarasambandið gengur ekki í berhögg við þessa náttúrlegu hefð frekar en aðrir og nú í janúar stóð sambandið fyrir kjararáðstefnu þar sem hvortveggja var í heiðri haft, afturlit og framsýni. Kjarasamningar aðildarfélaga sambandsins eru lausir hver af öðrum á næsta ári og samninga- vinnu þarf að undirbúa vel ef hún á að skila besta mögulega ár- angri. Aðildarfélögin kynntu samninga sína á ráðstefnunni, góðir gestir annars staðar að úr samfélaginu miðluðu dýrmætum upp- lýsingum og í umræðum og hópvinnu fékk fólk tækifæri til að bera saman það sem skilur að og tengir í kjörum félaganna. Helgi E. Helgason segir nánar frá ráðstefnunni, sem mikil ánægja var með, á öðrum stað í Skólavörðunni. - Héðan úr kennarahúsinu er allt gott að frétta en varla hægt að segja að lífið gangi sinn vanagang því nýjar spurningar vakna á hverjum degi, bæði sem varða starfið og stéttarfélagið ... og lífið þar fyrir utan. Kennarahúsið hlýtur því samkvæmt mínum eigin vangaveltum í upphafi leiðara að vera lærdómshvetjandi um- hverfi með fáum agavandamálum. Ekki amalegt að fá að vinna á slíkum stað. Kannski það takist betur með spurningarnar í næsta ítölskutíma. Kristín Elfa Guðnadóttir Efni Meginviðfangsefni þessa tölublaðs: Hegðun og hópastjórnun 10 - 17 Sjálfræði er markmið menntunar 10 Kennarar geta tekið á fjölmörgu - en eiga ekki að leysa öll vandamál 12 Gleði og góður aðbúnaður 13 Að tilheyra! - bekkjarkerfið sem agatæki 15 Aðrar greinar Söguleg þraut 7 Jón Þorvarðarson stærðfræðikennari rýnir í stærðfræðiþraut sem var lögð fyrir á samræmdu prófi og vakti mikið umtal vorið 2002. Raunveruleikurinn 8 Ómar Örn Magnússon kennari í Hagaskóla hefur hannað nýstárlegt námsefni í lífsleikni sem er hýst og kostað af Landsbankanum. Upphaf sóknar til enn betri kjara 18 Helgi E. Helgason sat ráðstefnu Kjararáðs KÍ þann 17. febrúar síðastliðinn, en hún mæltist afar vel fyrir meðal þátttakenda. Staða textílmenntar í skólakerfinu 20 Ingibjörg Valdimarsdóttir textílkennari í Álftamýrarskóla hefur skiljanlegar áhyggjur af framtíð þessarar námsgreinar sem á sér sextíu ára sögu í skólakerfinu. „Öll reynsla í tónlist er af hinu góða“ 22 segir Vilberg Viggósson skólastjóri Tónlistarskólans Do-Re-Mi. Vilberg ætti að vita hvað hann syngur því sjálfur hefur hann komið víða við á tónlistarferlinum Er Kennarasambandið miðlari? 24 spyr Eiríkur Brynjólfsson í grein sinni þar sem hann gagnrýnir meðal annars KÍ fyrir að stuðla ekki að umræðu og hvetja til skoðanaskipta. Námsstefna Skólastjórafélags Íslands 27 var haldin á Akureyri 8. og 9. nóvember sl. með rífandi þátttöku. Fastir liðir Formannspistill 3 Björg Bjarnadóttir skrifar. Gestaskrif 5 Gerður Kristný ber kaffið fram í fjörlega skreyttum bollum og sparar ekki ábótina. Skóladagar 25 Myndasaga Skólavörðunnar. Smiðshöggið 30 Undirlægjur! Gagnrýnandi, kennarinn, píanóleikarinn og eiturpenninn Jónas Sen skrifar um ýmsa fleti á því merkilega fyrirbæri, undirlægjuhættinum. Að auki greinar um safnfræðslu í Listasafni Reykjavíkur, kynning á námskeiði um samstarf og samninga fyrir stjórnendur, trún- aðarmenn og samninganefndarmenn í framhaldsskólum, Glerverk - nýtt forrit sem hjálpar til við innra mat skóla, ráð- stefnu Faghóps leikskólastjóra, væntanlega ráðstefnu Fræðslu- miðstöðvar Reykjavíkur, Kennarafélags Reykjavíkur og Skóla- stjórafélags Reykjvíkur og sýningu og hvatningarverðlaun sem veitt verða í tengslum við ráðstefnuna, kynning á námsefni, hinar sívinsælu smáauglýsingar og tilkynningar o.m.fl.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.