Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 24

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 24
Skólavarðan lagði nokkrar spurningar fyrir Ingileifu Thorlacius fræðslufulltrúa við Listasafn Reykjavíkur. Fyrir hverja er safnfræðsla? Við bjóðum upp á fræðslu fyrir alla, jafnt unga sem gamla. Á hverjum sunnudegi er leiðsögn fyrir almenna safngesti um sýn- ingar á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsinu. Skólanemendum, allt frá leikskóla upp í háskóla, býðst ókeypis leiðsögn um sýn- ingar Listasafns Reykjavíkur og er leið- sögnin sniðin að þörfum hvers hóps. Til- gangurinn er að hjálpa nemendum að verða betur læsir á myndlist og myndmál. Jafnframt verði heimsókn á safnið bæði innihaldsríkari og skemmtilegri upplifun fyrir skólanemendur. Hvernig fer heimsókn á safnið fram? Aldur og þroski nemenda ráða mestu um hvernig við nálgumst sýningarnar hverju sinni. Það á bæði við um hvaða verk eru valin til umfjöllunar og um lengd leiðsagn- ar. Leikskólabörn eru til dæmis oftast ekki lengur en hálftíma inni á sýningu en grunnskólanemendur eru um það bil eina kennslustund, eða að hámarki klukkutíma. Í fyrravetur byrjuðum við að nota aðferð sem MOMA (Museum of Modern Art í New York í Bandaríkjunum) hefur þróað við leiðsögn um sýningar. Áhersla er lögð á það sem nemendur sjá í myndunum og hvernig þeir vilja sjálfir túlka þær. Sjónræn upplifun þeirra, athyglisgáfa og hæfni til að skilgreina það sem þeir sjá skiptir öllu máli. Við spyrjum börnin spurninga en erum ekki að leita að „rétta svarinu“ heldur eru öll svör þeirra og túlkanir jafnrétthá. Fræðsla um staðreyndir og listasögu er al- veg látin liggja milli hluta nema krakkarnir eigi sjálfir frumkvæði að því að spyrja slíkra spurninga; þá er þeim auðvitað svarað. Þessi aðferð hefur verið notuð þegar leik- og grunnskólabörn koma í heimsókn- ir í safnið og reynslan er að okkar mati mjög skemmtileg. Viðbrögð kennara sem við höfum heyrt í hafa verið jákvæð, enda fær ímyndunarafl nemenda að njóta sín. Engar tvær heimsóknir verða eins. Sumir kennarar hafa haft orð á því að stundum séu það aðrir nemendur sem blómstra þegar þessari aðferð er beitt heldur en venjulega í skólastofunum. Nemendur framhaldsskóla og háskóla fá hins vegar hefðbundnari fyrirlestur um sýningarnar. Bæði er gert ráð fyrir að þeir séu lengra komnir í skilningi sínum á myndmáli og svo er reynslan sú að eldri nemendur eru miklu tregari til að tjá sig fyrir framan stór- an hóp. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að verk úr sérsöfnum Listasafns Reykjavíkur, þ.e. Ásmundarsafni, Kjarvalssafni og Errósafni, skyldu alltaf vera aðgengileg. Þessi ákvörð- un bauð upp á möguleika á að útbúa varan- legra fræðsluefni fyrir börn en áður var hægt með breytilegum sýningum og vanda betur en áður til gerðar þess. Í kjölfarið hefur safnið undanfarin ár verið með sér- stök tilboð fyrir nemendur 4. og 6. bekkjar grunnskóla sem og fyrir nemendur á ungl- ingastigi: - Nemendur 4. bekkjar koma í Ásmund- arsafn og skoða sýninguna þar, vinna verk- efni á safninu og fá svo með sér námsefnis- hefti með texta og myndum af verkum Ás- mundar. - Nemendur 6. bekkjar koma á Kjarvals- staði og skoða Kjarvalssýninguna og vinna þar sambærilegt verkefni. - Samskonar verkefni er hægt að gera á Errósýningunni í Hafnarhúsi en það er hugsað fyrir unglinga. Listasafn Reykjavíkur hefur fjárveitingu til að bjóða grunnskólum Reykjavíkur upp á ókeypis rútuferðir fyrir nemendur 4. bekkjar í Ásmundarsafn og 6. bekkjar á Kjarvalssýninguna, sem hefur vissulega gert þessar heimsóknir auðveldari fyrir skólana. Í vetur hafa allir grunnskólanemendur sem koma með bekknum sínum í leiðsögn fengið svokallað fjölskyldukort að gjöf. Hugmyndin er sú að gefa börnunum sjálf- um tækifæri til að bjóða fjölskyldu sinni með á safnið og sýna þar með foreldrum og systkinum hvað þau hafa lært. Kortið gildir fyrir fjölskylduna í öll þrjú safnhúsin á ein- um og sama deginum. Er nauðsynlegt fyrir nemendur að fá fræðslu hjá starfsmönnum safnsins um sýningar? Er ekki alveg eins gott fyrir þá að skoða sýningar með kennurum sínum sem hafa oft góða þekkingu á myndlist? Kennurum er velkomið að haga heim- sóknum þannig ef þeir vilja. Oft eru kenn- arar sjálfir með eigin verkefni til að nota á safninu. Við viljum samt fá að fylgjast með því hvenær fólk ætlar að koma svo að tryggt sé að ekki sé bókaður annar hópur á sýninguna á sama tíma. Hinsvegar eru starfsmenn safnsins búnir að kynna sér sér- staklega þá listamenn sem sýna hverju sinni með því að lesa sér til og jafnvel tala við þá ef þeir eru tiltækir; þeir sjá því verkin oft frá öðru sjónarhorni en kennararnir. Við teljum að ferð nemenda á listasafn sé ekki lúxus sem kennarar eigi einungis að grípa til þegar brjóta á upp hefðbundið skólastarf og gera eitthvað skemmtilegt heldur séu slíkar ferðir mikilvægur þáttur í allri myndmennt. Sá hluti af starfi okkar sem snýr að nemendum er fyrst og fremst ætlaður til að hjálpa þeim við að lesa myndir og myndmál og verða þannig hæf- ari til að taka á gagnrýninn hátt á móti öllu því myndræna upplýsingaflóði sem dynur á nútímafólki. Hvernig bera kennarar sig að ef þeir hafa áhuga á að heimsækja safnið og fá leiðsögn fyrir nemendur sína? Kennarar geta annars vegar hringt í safnið í síma 590 1200 og beðið um fræðsludeild eða sent tölvupóst á netfangið fraedsludeild@reykjavik.is og pantað tíma. Hámarksfjöldi miðast við einn bekk í einu og best er að panta með góðum fyrirvara. Safnfræðsla 26 Listasafn Reykjavíkur starfar í þremur byggingum, Ásmundarsafn er við Sigtún, Kjarvalsstaðir við Flókagötu og Hafnarhúsið við Tryggvagötu en það var tekið í notkun árið 2000. Við Listasafn Reykjavíkur hefur verið fræðsludeild frá árinu 1991, starfsfólk hennar sér um leiðsögn um sýningar í öllu safninu og tekur á móti hópum nemenda og annarra sem óska eftir að heimsækja safnið. Síðustu ár hafa á bilinu tíu til tólf þúsund manns not- ið leiðsagnar starfsfólks fræðsludeild- ar safnsins árlega, að stórum hluta skólanemendur sem hafa komið í fylgd með kennurum sínum. Erum ekki að leita að „rétta“ svarinu

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.