Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 23

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 23
Komið er á markaðinn nýtt forrit sem margir skólar nýta sér við innra mat sitt. Að hausti 1999 var skipaður starfshópur við Glerárskóla á Akureyri til að vinna að þróunarverkefni sem nýttist við innra mat skólans. Í verkefnisstjórn voru Árni S. Jónsson kennari, Gísli Baldvinsson náms- ráðgjafi og Halldór Gunnarsson aðstoðar- skólastjóri. Starfshópurinn safnaði að sér spurningum og gögnum frá skólum sem höfðu gert svipaðar kannanir. Má þar nefna kannanir úr grunnskólum Seltjarnarness og grunnskólanum á Hólmavík. Okkur til að- stoðar við efnisöflun þar var dr. Ingvar Sig- urgeirsson prófessor við Kennaraháskól- ann. Þá nýttum við okkur sérfræðiaðstoð RHA en þar komu að Trausti Þorsteinsson og Benedikt Sigurðarson sem veitti starfs- hópnum ómetanlega hjálp. Fljótlega kom fram sú hugmynd að hafa spurningalistana í tölvutæku formi. Aðstoð við tölvuforritun veitti Halldór Árnason kerfisfræðingur. Fæðing Glerverks Eftir nokkurn meðgöngutíma fæddist svo fyrsta gerð Glerverks, eins og afkvæmið var skírt, og var það í fyrstu nokkuð frumlegt. Þetta gekk ekki þrautalaust fyrir sig og sí- fellt komu upp stopp og kerfisvillur. En það var alveg sama hvað á bjátaði, alltaf kom Halldór kerfisfræðingur með lausnina. Það var svo á námstefnu hjá Kennaraháskólan- um að útgáfa 1.0 var kynnt. Fyrstu sporin Haustið 2000 voru gerðar viðhorfskann- anir meðal foreldra og nemenda Glerár- skóla sem voru strax mjög upplýsandi um viðhorf til skólans og skólastarfsins. Þá var að tilhlutan skólastjórnenda samin og gerð könnun á líðan nemenda 5.-10. bekkjar í skólum Akureyrar. Athygli vakti að þrátt fyrir 90% þátttöku voru niðurstöður ljósar samdægurs. Glerverk vex úr grasi Þegar nokkrar lagfæringar höfðu verið gerðar, bæði á gagnagrunni (spurningarn- ar) og forriti, var hafin sala á forritinu utan Akureyrar haustið 2002. Það var kynnt á ráðstefnu Skólastjórafélags Íslands og kynningarbæklingar fóru víða. Í stuttu máli má segja að forritinu hefur verið tekið afar vel og er það komið í notkun um nær allt land. En hverjir eru kostir Glerverks? Glerverk inniheldur viðhorfskannanir sem hægt er að leggja fyrir foreldra, nem- endur og starfsfólk skólans. • Hægt er að breyta spurningunum og/eða spurnarforminu. • Hægt er að semja nýjar spurningar sem henta betur. • Hægt er að flytja allar upplýsingar og niðurstöður í önnur forrit. • Hægt verður að setja Glerverk upp á heimasíðu skólans og svara könnunum þaðan. Og hvað svo? Eins og hér kemur fram er enn verið að bæta og þróa Glerverk. Það er aðallega í höndum Halldórs Árnasonar kerfisfræð- ings en Halldór Gunnarsson aðstoðar- skólastjóri og Gísli Baldvinsson náms- og starfsráðgjafi sjá um gagnagrunn og mark- aðsmál. Að sögn þeirra félaga væri hægt að laga forritið að öðrum stofnunum eða fyr- irtækjum. Má þar til dæmis nefna heil- brigðisstofnanir. Gísli Baldvinsson Mat á skólastarf i GLERVERK - öflugt mælitæki við innra mat skóla 25 Glerverksmenn frá vinstri: Halldór Árnason kerfisfræðingur, Gísli Baldvins- son náms- og starfsráðgjafi og Halldór Gunnarsson aðstoðarskólastjóri. Halldór Árnason forritar.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.