Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 8

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 8
Í könnun sem unnin var á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur lýsa kennarar agavandamálum sem einum mesta streitu- og slitvaldi í starfinu. Skólamenn jafnt sem foreldrar hafa í vaxandi mæli áhyggjur af agaleysi en hvað er hægt að gera? Við fórum á stúf- ana og ræddum við þrjá kennara og einn sálfræðing um úrræðin sem þeir beita og mæla með þegar vandi af þessum toga er annars vegar. Kennararnir leggja áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir sem hvíla á stoðum sjálfræðis nemenda, skapandi starfs og áhugahvatar en sál- fræðingurinn beinir sjónum að lausnum þegar skaðinn er skeður og fjallar um atferlismótun sem miðar að því að breyta neikvæðri hegðun í jákvæða. Sjálfræði er markmið menntunar „Sjálfræði barna er hugtak sem hefur verið notað á mismunandi vegu,“ segir Sesselja Hauksdóttir, leikskólakennari, en meistara- prófsritgerð hennar frá árinu 2001 fjallar einmitt um þetta hugtak og þýðingu þess í leikskólastarfi. Sesselja álítur að sjálfræði sé lykil- atriði í uppbyggingu innri aga og að markviss kennsla sem taki mið af þessu hugtaki geti dregið mjög úr agavandamálum. „Það er auðvelt að misskilja þetta hug- tak, maður getur séð fyrir sér að börnin ráði sér sjálf og séu agalaus,“ segir Sesselja. „Ég skilgreini hins vegar hugtakið út frá Piaget og bandarísku hugmyndafræðingun- um Kamii og DeVries, en í leikskólastefn- unni sem þær eru höfundar að er sjálfræði miðlægt hugtak og Kamii gengur svo langt að segja að það sé eina markmið menntun- ar. Sjálfræði þýðir að vera einstaklingur sem getur tekið ákvarðanir út frá sjálfum sér en tekur jafnframt tillit til allra þeirra þátta sem fyrir liggja og máli skipta. Þetta felur í sér að geta tekið tillit til annarra. Sumir telja að þessi túlkun á sjálfræðishug- takinu feli í sér afturhvarf til gamalla gilda en aðrir að hér gæti mikillar framsýni. Heldurðu að þú þurfir peysu? Leikskólabörn búa ekki enn yfir miklu sjálfræði en byggja það upp smátt og smátt. Í meistaraprófsverkefninu vildi ég fá að vita hvernig leikskólakennarar styðja við þessa uppbyggingu. Ég valdi tvo leikskóla með markmiðsúrtaki, gerði eigindlega athugun sem byggðist á myndbandsupptökum, at- hugunum í leikskólunum og viðtölum við kennara. Einnig greindi ég námsáætlanir beggja skólanna. Sá sem er sjálfráður er fyrirmyndarþegn í lýðræðisþjóðfélagi. Hann er opinn fyrir hugmyndum og hefur skoðanir en er ekki í andstöðu við þjóðfélagið. Ég lagði upp með þessar spurningar: Hvernig stuðla leikskólakennarar að sjálfræði barna? Og eru leikskólakennarar meðvitaðir um þegar þeir stuðla að eða vinna gegn sjálfræði? Ég bar svo það sem ég komst að saman við les- efni víða að um sama viðfangsefni. Niðurstöður mínar voru þær að leik- skólakennararnir störfuðu mjög í anda þeirra hugmynda sem birtast í leikskóla- stefnu Kamii og DeVries, þótt þeir notuðu ekki hugtakið sjálfræði sem slíkt. Sem dæmi um uppbyggingu sjálfræðis má nefna klæðaburð nemenda. Börnin réðu því hvernig þau klæddust í útiveru. Þau voru hvött til að taka ákvörðun út frá veðrinu og hlutverk kennarans var að hjálpa þeim að sjá utanaðkomandi aðstæður og sjónarmið og spyrja spurninga á borð við „heldurðu að þú þurfir peysu?“ Þetta er lítið dæmi en sýnir ágætlega hvernig hugmyndin um sjálfræði skilar sér út í skólastarfið. Og ég fullyrði að börnin voru ekki verr klædd en í öðrum leikskólum, munurinn var sá að þau fengu að taka ákvarðanir sjálf. Börn eru mjög skynsöm ef þau fá að taka ákvarðanir og finna að þær eru virtar. Valdatogstreita stuðlar að agavandamálum Í þessum leikskólum voru börnin spurð opinna spurninga og þau fengu mikið að velja. Þeim var hjálpað til að sjá og skoða áhrifaþætti á ákvarðanir og krafist af þeim ábyrgrar hegðunar. Leikskólabragurinn var mjög góður í þessum leikskólum og ég sá ekki árekstra á milli kennara og barna. Umræður og mismunandi sjónarmið voru Hegðun og hópast jórnun 10 Hegðun og hópastjórnun Sesselja Helstu agatæki og áherslur: • Uppbygging sjálfræðis myndar grundvöll fyrir innri aga • Opnar spurningar og virðing fyrirbyggja valdatogstreitu • Kennsla félagslegrar þekkingar (Social Arbitrary Learning) • Notkun skyndilausna kemur í bakið á okkur • Nemendur þurfa að finna fyrir væntumþykju kennarans og hafa gaman af því sem þeir fást við

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.