Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 5

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 5
Ges task r i f6 ömurlega augnablik fest á filmu því þennan dag hafði ljósmyndari á vegum Háskólans fengið að fylgjast með tímanum og einmitt smellt af þegar mér datt í fyrsta skipti í hug þessa önn að viðra það sem fram fór í kollinum á mér. Myndin var birt í bæklingi til kynn- ingar á heimspekideildinni. Allir bekkurinn mænir út í hornið mitt, flestir svolítið áhyggjufullir á svip, og ég svona helvíti glaðhlakka- leg með fáránlegustu kenningu í heimi á vörum. Kakó og Chomsky Það sem ég met mest við háskólaárin er að hafa gert mér grein fyrir því meðan á þeim stóð hvað þau voru skemmtileg. Skiptir þá engu að ég hafi bæði fengið 5,5 í heimspekilegum forspjallsvísind- um og fjölmiðlafræði. Því síður hafði það heldur nein áhrif á gleði mína að ég hefði það sífellt á tilfinningunni að kennarinn sem mér fannst hvað merkilegastur (og er of mikill héri til að þora að nefna) fyrirliti mig. Hann kenndi mér áfanga í almennri bókmenntafræði og allt látbragð hans bar ekki vott um annað en að ég hefði litlu að bæta við heiminn - hvað þá þessi eðlu fræði. Ég hrósaði happi yfir að hafa kosið frönsku sem að- alfag og þurfa ekki að verða of oft á vegi þessa kennara. Í frönskudeildinni vorum við ein stór fjölskylda sem las saman Balzac, flykktist á franskar kvikmyndahátíðir og beygði sagnir eins og hún ætti lífið að leysa. Þarna voru strákar jafnsjaldséðir og Geir- finnur og aðalkennarinn bar helst þá von í brjósti fyrir hönd okkar námsmeyjanna að við yrðum leiðsögumenn, eins og hann. Fyrir hver jól bauð hann okkur heim í heitt kakó og fór yfir eitthvert fagið með okkur. Speki Chomsky var okkur jafntöm á tungu og lagið Zobie la mouche með Les negresses vertes, aðalhljóm- sveitinni á þessum tíma. Og þeir sem ekki voru að hlusta á þær kátu kellingar voru eflaust að hlusta á gömbutónlistina úr kvikmyndinni Allir heimsins morgnar sem var feikivinsæl um þessar mundir. Þetta var góður tími til að vera í frönskunámi. Um leið og kennarinn dreypti á kakóinu hrutu honum hvatningarorð af munni um að drífa okkur sem fyrst í Leiðsögumannaskólann. Um hærra skólastig var aldrei rætt. Við áttum bara að arka um landið með lopapeysuklædda ferðamenn og gæta þess að þeir hefðu sig ekki að fífli með því að hrasa ofan í ein- hvern hverinn. Bach í hóruhúsi Sumarið eftir BA próf fékk ég vinnu á Tímanum og skrifaði um það sem hæfileikar mínir buðu upp á, svartapétursmótið á Sól- heimum í Grímsnesi og hafís úti fyrir Vestfjörðum. Þótt þetta tengdist lítið BA ritgerðinni minni sem fjallaði um hið illa í Les fleurs de mal eftir Charles Pierre Baudelaire fannst mér þetta starf henta mér fullkomlega. Næsta haust hóf ég nám í hagnýtri fjöl- miðlun. Ég notaði tækifærið og laumaðist til að vera gestanemandi í einum áfanga hjá kennaranum sem mér fannst vera illa við mig. Einhverju sinni gaukaði hann því að mér hvað blaðamennska væri „ómerkileg“. Þess í stað ætti ég að stunda þýðingar og umfram allt yrkja ljóð. Fyrir honum var sumarvinnan mín álíka eins og að leika á píanó í hóruhúsi. Ég var of vel upp alin til að þora að spyrja hann að því á hverju ég ætti að lifa, í minni sveit hefði það heitið að vera með kjaft. Þótt svartapétursmótið hafi ekki kveikt hjá mér hug- mynd að ljóði, gerði ísfréttin það svo sannarlega. Stundum hvarflar það samt að mér að ég hefði átt að læra eitt- hvað annað en frönsku, kannski sagnfræði eða listasögu. Eflaust hefði mér líka tekist að koma í veg fyrir ótrúlegustu brunasár hefði ég nennt að gerast leiðsögumaður. Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir auðvitað ekki öllu hvað maður lærir heldur hvernig maður nýtir sér lærdóminn. Fyrir nokkrum árum var ég stödd í búð og rakst þá á fyrrnefndan bókmenntafræðikennara. Hann brosti svo fallega til mín að áður en ég vissi af hafði innkaupakerran mín stefnt á innkaupakerruna hans. Við tókum tal saman um daginn og veginn eins og bestu vinir. Eft- ir litla stund sagði kennarinn allt í einu við mig með eilítilli angur- værð í röddinni: „Ég var alltaf að vona að þú myndir halda áfram í bókmenntafræðinni.“ Þarna lærði ég þá lexíu að þótt einhver virð- ist leggja fæð á mig gerir hann það ekkert endilega. Og þótt mér finnist einhver annar halda að ég eigi ekkert erindi einhvers staðar má vel vera að ég eigi samt erindi þangað. Í baki mínu skutull Maðurinn sem orti um mig ljóðin og kom stundum með blóm gerði sig sekan um að stela brennandi bát úr einu ljóða minna og fleyta inn í eitt sinna. Þegar ég bar þetta upp á hann yppti hann öxlum og sagði: „Þetta er bara svo flott mynd.“ Við þessu var lítið að gera svo ég orti bara ljóð um stuldinn. Brennda hárið rataði líka í ljóð sem og hljóðskraf okkar vinkvennanna af Rauð- arárstígnum. Þótt lengra sé á milli funda okkar og trúnað- arsamræðurnar eigi sér ekki lengur stað stend ég mig oft að því að hugsa: „Þessu hefði hún haft gaman af!“ þegar eitthvað skemmtilegt gerist. En það væri asnalegt að slá á þráðinn. Til þess hefur of margt breyst. Í Háskólanum voru bekkjarbræður mínir frjálslyndir og skemmtilegir, enda bjuggum við svo vel að hafa femínista að kenn- urum. Þegar ég heyri til þessara stráka núna virðast þeir ekkert hafa lært. Konurnar eiga það til að „gleymast“ á einhvern furðulegan hátt þegar þeir fjalla um bókmenntir. Fyrir nokkrum árum skrifaði einn þeirra grein um Reykjavíkurljóð þar sem honum tókst að telja upp 14 eða 15 karla en minntist aðeins á eina konu og það í upp- talningu. Þegar annar hringdi til að bjóða mér að koma fram á bók- menntadagskrá gat hann nefnt karlana sem tóku þátt í henni en hafði ekki nennt að leggja nöfn kvennanna á minnið. Samt var hann einn skipuleggjenda hátíðarinnar. Kannski hef ég misskilið kennarinn minn allan þennan tíma, kannski vonaðist hann ekkert sérstaklega til þess að ég héldi áfram í bókmenntafræðinni heldur fannst það fyrst og fremst synd að sum- ir hinna nemenda hans skyldu halda áfram. Gerður Kristný Höfundur er rithöfundur og ritstjóri Mannlífs. Hann kenndi mér áfanga í almennri bókmenntafræði og allt látbragð hans bar ekki vott um annað en að ég hefði litlu að bæta við heiminn - hvað þá þessi eðlu fræði. Ég hrósaði happi yfir að hafa kosið frönsku sem aðalfag og þurfa ekki að verða of oft á vegi þessa kennara. Konurnar eiga það til að „gleymast“ á einhvern furðulegan hátt þegar þeir fjalla um bókmenntir. Fyrir nokkrum árum skrifaði einn þeirra grein um Reykja- víkurljóð þar sem honum tókst að telja upp 14 eða 15 karla en minntist aðeins á eina konu og það í upp- talningu.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.