Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 20
Ísafjörður nafli alheimsins „Ég er Ísfirðingur, yngstur af fjórum börnum hjónanna Viggós Nordquist og Kristjönu Valgerðar Jónsdóttur. Átta ára fór ég í Tón- listarskóla Ísafjarðar til frumkvöðl- anna Ragnars H. Ragnars og konu hans Sigríðar. Ég held að ég hafi verið latasti nemandinn sem Ragn- ar var með, sjálfur hef ég aldrei fengið svona latan nemanda. Ragn- ar hreinlega stundi þegar ég var að koma í sjötta og sjöunda skiptið með C-dúrinn og ekki enn kominn með fingrasetninguna á hreint. En hann sá eitthvert efni í mér. Ég hafði verið hjá kennara sem sýndi mér hvernig lögin áttu að vera og ég spilaði síðan eftir eyranu en Ragnar lagði meiri áherslu á nótna- lestur. Síðan þá hef ég samúð með svona krökkum og kenni þeim á dá- lítið annan hátt.“ Þegar grunnskóla lauk lá leið Vil- bergs í Menntaskólann á Ísafirði sem þá var nýstofnaður og þar var fjöldi skemmtilegra kennara undir stjórn þeirra hjóna Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram. Vilberg tók þátt í þeirri uppbyggingu sem þar átti sér stað, lék á pí- anó í leikfélaginu hjá Bryndísi og hélt að Ísafjörður væri nafli alheimsins. „Ég var mjög virkur á þessum tíma, spil- aði í bílskúrsböndum og var síðan ráðinn í alvöru hljómsveit hjá Rafni Jónssyni sem þá hét Ýr og varð síðar að Grafík, sem seinna varð fræg. Grafík æfði í bílskúrnum heima. Við tókum þetta sem vinnu, byrjuðum að æfa klukkan tíu á morgnana og vorum að fram eftir degi. Þegar Helgi Björns kom inn í hljómsveitina sumarið 1982 varð Grafík mjög vinsæl því Helgi var á sviðinu eins og Jagger, Bowie og þeir allir til samans. Eftir stúdentspróf lá leiðin í Tónlistar- skólann í Reykjavík þar sem Halldór Har- aldsson var kennari hans. Á sumrin var Vil- berg spilandi nær allan sólarhringinn frá fimmtudegi til sunnudags, spilaði í messum og jarðarförum, dinner-músík á hótelinu og á böllum á kvöldin, fyrir utan að æfa sig í klassískum píanóleik. „Það var erfið ákvörðun að fara utan í framhaldsnám í píanóleik eftir að námi í Tónskóla Reykjavíkur lauk. Ég vissi að Grafík myndi slá í gegn en samt sem áður ákvað ég að fylgja klassíkinni að málum og sé ekki eftir því. En ég naut góðs af vel- gengni hljómsveitarinnar því ég spilaði með þeim þegar ég kom heim í sumarfríunum.“ Lægri laun en á færibandinu Vilberg lagði popparann á hilluna og fór til Kölnar í Þýskalandi til framhaldsnáms með fjölskylduna, konu og tvö börn. En líf- ið er tilviljunum háð og dvölin í Köln varð styttri en þau höfðu gert ráð fyrir. Dóttir þeirra greindist með asma og þar sem mikil mengun er í Köln þótti hún ekki góður kostur fyrir asmaveikt barn svo að þau urðu að færa sig um set. Það var í raun tilviljun að Amsterdam i Hollandi varð fyrir valinu en þar hóf Vilberg nám í Sweelinck Conservatorium og var þar í fimm ár. „Þegar ég kom heim frá Hollandi byrjaði ég að kenna í Njarðvík og lenti í því sem varð upphafið að stéttarvitund minni, að fá 68 þúsund krónur í laun á mánuði, lægri en námslánin. Pabbi sem þá var verkstjóri skildi ekki hvað ég var að spá, fólkið við færibandið í rækjuverksmiðjunni hjá honum var á miklu hærri launum en ég. Á þessum tímapunkti hófust afskipti mín af launamálum tónlistarkennara. Þetta var hrikalegt, maður átti ekki fyrir neinu og það var ekki tekið neitt tillit til menntunar í kjarasamningum. Við settum saman kjara- hóp og fengum fólk með okkur til að vinna að þessum málum. Við hleyptum umræð- unni af stað og ekki varð aftur snúið.“ Vilberg og eiginkona hans höfðu skilið að skiptum á Hollandsárunum en í jólaleyfi á Ísafirði hitti hann seinni konu sína, Agotu Joó, ungverskan píanókennara og meistara í samkvæmisdönsum. Hún kom síðar með honum til Njarðvíkur og eiga þau saman fjögur börn. Tónskólinn Do-Re-Mi Árið 1994 stofnuðu þau tónlistarskólann Do Re Mi í Reykjavík. Vilberg vildi að skólinn fengi nafn sem gæti staðið áfram þó að hann hyrfi til annarra verkefna og því Viðta l 22 Veturinn lét loksins á sér kræla dag- inn sem útsendari Skólavörðunnar leit i heimsókn í Tónlistarskólann Do- Re-Mi í KR-heimilinu vestur í bæ. Þar beið okkar skólastjórinn, Vilberg Viggósson, og yfir léttu spjalli og kaffibolla með mjólkurdufti sagði hann okkur frá Ísafjarðarárunum, poppstjörnunni, organistanum, út- löndum og tónlistarskólanum sem hann stofnaði, svo fátt eitt sé nefnt. Og á meðan lék vetur konungur listir sínar fyrir utan gluggann í Frosta- skjólinu. „Öll reynsla í tónlist er af hinu góða“ - segir kórstjórinn, píanókennarinn og skólastjórinn Vilberg Viggósson

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.