Skólavarðan - 01.01.2003, Blaðsíða 25
Skólaþróun og fagleg forysta - rann-
sóknir og reynsla
Um þennan dagskrárlið sáu þau Peter
Earley frá Háskólanum í London og Eve
Reynolds skólastjóri Colby school á
Englandi. Peter Earley ræddi málið út frá
fræðilegu hliðinni en Eve Reynolds kom
inn á það út frá raunveruleikanum og
reynslu sinni.
Í máli sínu fór Peter Earley yfir muninn
á forystu (leadership) og stjórnun (manage-
ment) og nauðsyn þess að báðir þessir
þættir væru í lagi við stjórnun. Þá fór hann
yfir mismunandi stjórnunarstíl til að ná
sem bestum árangri og mismunandi að-
ferðir eftir eðli viðfangsefnisins. Í lok máls
síns lýsti hann því mikilvægasta varðandi
forystu. Þar kom fram mikilvægi þess að
stjórnendur viðurkenni að þeir geri mistök
og að þeir taki tillit til við-
horfa og starfa annarra.
Eve Reynolds sagði frá
reynslu sinni þegar hún kom
í september 1996 sem að-
stoðarskólastjóri úr stórum
skóla og gerðist skólastjóri
Colby school sem er lítill
sveitarskóli. Ástandið þar var
mjög bágborið þegar hún
tók til starfa. Stjórnun,
kennsla, hegðun og árangur
nemenda var í ólestri. Hún fékk þrjú ár til
að snúa dæminu við en ákvað nemendanna
vegna að gefa sér aðeins átján mánuði í
verkefnið. Í janúar 1998 var svo gerð úttekt
á skólanum frá ríkinu og kom hann þá út
sem besti skólinn. Hún gerði síðan grein
fyrir stöðunni í janúar 2001 og var þá öll
starfsemin orðin til fyrirmyndar. Í máli
sínu greindi hún frá þeim aðferðum sem
hún beitti til að ná þessum frábæra árangri.
Hún skipti mánuðunum átján sem hún ætl-
aði í verkið í þrjú tímabil og afmarkaði þá
þætti sem bæta skyldi á hverju tímabili. Nú
gegnir skólinn vissu forystuhlutverki (Lead
school) og fær 35.000 punda fjárveitingu á
ári til að leiðbeina öðrum skólum. Ein-
kunnarorð skólans eru: Hugsandi skóli -
hugsandi kennarar - hugsandi börn. Eve
Reynolds lét af störfum við Colby school
um áramótin og tók við stjórn skóla í
London þar sem 70 - 80% nemenda tala
ensku sem annað tungumál.
Flutningur grunnskólans til sveitar-
félaga - var það heillaspor? Hverju
svara skólastjórar?
Þau Börkur Hansen, Ólafur H. Jóhanns-
son og Steinunn Helga Lárusdóttir frá
KHÍ fjölluðu um niðurstöður úr rannsókn-
um sem þau hafa gert á störfum skólastjóra
við íslenska grunnskóla og viðhorfi þeirra
til flutnings grunnskólans til sveitarfélaga.
Fyrri rannsóknin var gerð árið 1991 og sú
síðari árið 2001. Mesta athygli vakti hversu
jákvæð viðhorf skólastjóra voru til tilfærsl-
unnar. Í umræðu á eftir framsögunni komu
fram vafaraddir um að sama niðurstaða
fengist ef rannsóknin færi fram nú. Ástæð-
ur sem meðal annars voru nefndar voru
breytingar á störfum skólastjóra, ekki síst
eftir gerð núgildandi kjarasamnings.
Útgáfa námsgagna - Námsgagna-
stofnun
Framsögu höfðu þau Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir forstjóri Námsgagnastofnunar, Guð-
laug Erla Gunnarsdóttir skólastjóri Anda-
kílsskóla og Kristinn Kristjánsson for-
stöðumaður grunnskóladeildar Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Í upphafi máls síns fór Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir yfir tölulegar upplýsingar um Náms-
gagnastofnun, hlutverk hennar og útgáfu-
stefnu. Þá gerði hún grein fyrir við-
horfskönnun sem var gerð á meðal kennara
á haustþingum sl. haust. Guðlaug Erla
byggði erindi sitt á eigin rannsókn. Hún
kom meðal annars inn á breyttar áherslur í
kennslu í takt við nýja aðalnámskrá, hvar
skórinn kreppir varðandi námsefni, vef
stofnunarinnar og sérkvótann. Í máli Krist-
ins Kristjánssonar kom fram að námsefnis-
skortur virtist ekki há skól-
unum þó að raddir væru
uppi um aukið fjármagn.
Hann sagði að ríkið vildi
gjarnan losna við rekstur
Námsgagnastofnunar en
spurði einnig hvers vegna
þörf væri á að breyta rekstr-
arforminu þegar eining væri
um reksturinn. Kristinn setti
fram þá skoðun sína að það
ætti að hætta að eyða
orkunni í að finna leiðir til að losa ríkið við
Námsgagnastofnun en einbeita sér að því
að tryggja stofnuninni meira fjármagn til
að tryggja rekstur hennar.
Að dagskrá námsstefnunnar lokinni var
haldinn ársfundur SÍ. Auk þess að sam-
þykkja þar reikninga ársins 2001 var félags-
aðild deildarstjóra og starfsfólks á skóla-
skrif-stofum að SÍ rædd. Þá voru kynntar
niðurstöður úr könnun SÍ, FG og LN
varðandi framkvæmd kjarasamningsins og í
framhaldi af því voru kynnt drög að launa-
og kjarastefnu SÍ.
Fundargerðir ásamt glærum, bæði frá
námsstefnunni og ársfundinum, er að finna
á heimasíðu SÍ.
Jón Ingi Einarsson
Skólast jórar funda
Námsstefna SÍ var haldin á Akureyri
8. og 9. nóvember sl. Góð aðsókn var
að henni og voru þátttakendur alls
170. Viðfangsefni námsstefnunnar
skiptist í þrennt: Skólaþróun og fag-
leg forysta - rannsóknir og reynsla,
flutningur grunnskólans til sveitar-
félaga og útgáfa námsgagna.
Námsstefna
Skólastjórafélags Íslands
27
Eve Reynolds sagði frá reynslu sinni sem skólastjóri lít-
ils sveitarskóla. Á einungis einu og hálfu ári tókst henni
að snúa vörn í sókn og gera slæman skóla að skóla
sem gegnir forystuhlutverki og fær háa fjárveitingu ár-
lega til að leiðbeina öðrum að sama marki. Einkunnar-
orð skólans hennar Eve eru: Hugsandi skóli - hugsandi
kennarar - hugsandi börn.
Nokkrar myndir frá námsstefnu SÍ. Gífurleg að-
sókn var á námsstefnuna og hún heppnaðist
með eindæmum vel, enda framsöguerindi bæði
fróðleg og áhugaverð.