Skólavarðan - 01.01.2003, Qupperneq 27
Dansar og hreyfileikir fyrir leikskólabörn
Leikskólakennarar eru mjög duglegir við að láta börnin syngja og
kenna þeim vísur og lög. Þess vegna er það okkur mikil ánægja að
láta þá njóta úr safni okkar. Veturinn 2001 héldum við námskeið
þar sem við kynntum nokkra dansa sem við höfðum safnað og
þýtt. Vegna fjölda áskorana frá leikskólakennurum ákváðum við
að ráðast í útgáfu þessarar handbókar. Í henni eru 30 dansar og
hreyfileikir, íslenskir og erlendir. Auk þess fylgir geisladiskur með.
Til að gera okkur kleift að gefa efnið út sóttum við um styrki hjá
Barnamenningarsjóði Menntamálaráðuneytisins og Leikskólaráði
Reykjavíkurborgar sem við og fengum. Þökkum við þeirra stuðn-
ing. Það er von okkar að handbók þessi sé aðgengileg og komi
leikskólakennurum og öðrum sem starfa með börnum á
leikskólaaldri að góðum notum.
Bókin er til sölu hjá okkur og er hægt að panta hana símleiðis eða
í gegnum tölvupóst. Einnig bjóðum við upp á námskeið í dönsum
og hreyfileikjum bókarinnar.
Í von um góðar viðtökur,
Kolfinna Sigurvinsdóttir - kolfinn@ismennt.is s: 553 8955 /
893 8949
Hulda Sverrisdóttir - hsverris@ismennt.is s: 568 7688 / 695 8662
Verð bókar ásamt geisladiski er kr. 4.500,-
Hús til leigu í Hafnarfirði í eitt ár
Við bjóðum til leigu hús í Setbergslandi í Hafnarfirði.
Um er að ræða fallegt hús með fallegum garði, vel frágengið,
þrjú til fjögur svefnherbergi, eldhús, tvö baðherbergi, stór stofa ,
þvottahús og skáli.
Hægt er að hafa einhverjar mublur ef vill.
Húsið er leigt til eins árs frá júli 2003 til júníloka 2004 vegna orlofs
eigendanna.
Nánari upplýsingar veita :
Magnús Þorkelsson, maggi@flensborg.is og Sigríður
Gunnlaugsdóttir, siggalo@ismennt.is eða í síma 5654856.
Góður, betri, bestur
Góður, betri, bestur, námsefni í skrift fyrir 1. til 7. bekk var í upphafi
hannað af sex kennurum í Sólvallaskóla, en nú sjá þær Anna Fríða
Bjarnadóttir og Ragna Gunnarsdóttir um útgáfuna. Verkefnið var
styrkt af Þróunarsjóði Árborgar og tilraunakennt í Sólvallaskóla
veturinn 1999-2000. Nú þegar er námsefnið kennt í um 40 skólum
víðsvegar um landið.
Námsefnið hefur þá sérstöðu að rétthentir og örvhentir nota ekki
sömu bækur. Í bókunum fyrir örvhenta er forskriftin höfð hægra
meginn í stað vinstra megin venjulega, sem auðveldar örvhentum
að sjá forskriftina og léttir þeim skriftarnámið til muna.
Í bókunum er að finna fjölbreytt verkefni og lögð er áhersla á
sjálfsmat nemenda.
Nú þegar eru komnar út eftirfarandi bækur:
• Kennarabók með hagnýtum upplýsingum, markmiðssetningu
og tillögum að námsmati í skrift.
• 1. bekkjar námsefni, mappa til fjölritunar
• Skriftarbók A fyrir hvern árgang frá 2. - 7. bekkjar, annars vegar
fyrir rétthenta og hins vegar fyrir örvhenta. B-bókin er væntanleg.
Hægt er að panta bækur eða nálgast allar upplýsingar á
www.simnet.is/skrift
Frá Orlofssjóði KÍ
Páskaleiga á orlofshúsnæði 2003
Félagsmenn í Kennarasambandi Íslands, athugið!
Sækja þarf sérstaklega um úthlutun á orlofshúsnæði um páskana.
Í boði eru:
• 13 orlofshús með heitum potti í Ásabyggð við Flúðir
(verð I 13.400 / verð II 15.600)
• 6 ný orlofshús með heitum potti í Heiðarbyggð við Flúðir
(verð I 17.000 / verð II 19.500)
• 3 orlofshús með heitum potti í Kjarnaskógi við Akureyri
(mismunandi verð eftir stærð húsa)
• 6 nýjar íbúðir að Sóleyjargötu 25 í Reykjavík
• 4 íbúðir og 5 herbergi að Sóleyjargötu 33 í Reykjavík.
Páskatímabilinu er skipt í tvennt. Fyrra leigutímabilið er
frá 11. apríl - 16. apríl og hið seinna frá 16. apríl - 22. apríl.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Orlofssjóðs
Kennarasambands Íslands fyrir 20. mars 2003,
netfang orlof@ki.is
Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands Íslands
auglýsir styrki til félagsmanna
sem vinna að rannsóknum og þróunarverkefnum í grunnskólum
skólaárið 2003-2004.
Vakin er athygli á því að allir styrkir eru einstaklingsstyrkir til
kennara eða kennarahópa.
Styrkir til þróunar og nýbreytni í kennslu og skipulags skólastarfs
verða settir í forgang að þessu sinni. Einnig verða veittir styrki til
þeirra sem eru að vinna að rannsókn á lokastigi framhaldsnáms.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Kennarasambandsins
og vefsíðu félagsins www.ki.is.
Umsóknir sendist til Verkefna- og námsstyrkjasjóðs KÍ,
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 1. mars 2003.
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands Íslands
Evrópskt skólasamstarf og endurmenntun
kennara styrkt
Endurmenntunarstyrkir
Sókrates, menntaáætlun ESB, styrkir kennara á leik-, grunn- og
framhaldsskólastigi til endurmenntunar. Námskeið vari í
1-4 vikur í ESB landi.
Styrkir í skólastarfi
Skólum eru veittir styrkir til þátttöku í evrópskum samstarfsverk-
efnum. Þau skiptast í eftirfarandi flokka: Skólaverkefni, tungumála-
verkefni og skólaþróunarverkefni. Dæmi um þemu: Umhverfi,
menning, landafræði, jarðfræði, matarvenjur og fleira. Umfjöllun-
arefni takmarkast í raun af hugmyndaflugi þátttakenda. Ríflega
hundrað skólar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi hafa fengið
Comeníusarstyrki á undanförnum sex árum. Verkefni geta varað í
allt að þrjú ár og byggjast ávallt á samstarfi a.m.k. þriggja landa.
Styrkur felur í sér ferðastyrki til kennara auk verkefnistyrks.
Á heimasíðu landsskrifstofu Sókratesar er að finna skóla sem
tekið hafa þátt í Comeníusi www.ask.hi.is
Nýjungar styrktar
Styrkir eru veittir til að koma á endurmenntunarnámskeiðum fyrir
kennara og einnig til að þróa námsefni. Samstarf a.m.k. þriggja
stofnana frá þremur Evrópulöndum. Upphæð styrkja getur
numið allt að 10 milljónum ísl. króna.
Lifandi tungumálakennsla
Evrópskir verðandi tungumálakennarar eru styrktir frá sínu heima-
landi til að aðstoða við tungumálakennslu í 3-8 mánuði. Um fimmt-
án evrópskir aðstoðarkennarar eru hér við störf á ári hverju.
Íslenskir skólar sækja um að fá til sín evrópska aðstoðarkennara
til landsskrifstofu.
Umsóknarfrestur rennur út 1. mars nk. Umsóknareyðublöð er að
finna á slóðinni: www.ask.hi.is
Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir veita Ragnhildur
Zoega rz@hi.is og Katrín Einarsdóttir katei@hi.is
Landsskrifstofu Sókratesar/Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins,
Neshaga 16, 107 Reykjavík. Sími: 525 5813/525 5853.
Fax: 525 5850.
Smáauglýs ingar og t i lkynningar
29