Þjóðmál - 01.09.2005, Side 96

Þjóðmál - 01.09.2005, Side 96
 Þjóðmál haust 2005 95 áhrif.en.þéttbýli.og.á.fyrri.hluta.aldarinnar. fór.saman.þetta.ójafnvægi.atkvæðanna.eftir. búsetu. við. það. að. einn. stjórnmálaflokkur. hagnaðist. langt. umfram. alla. aðra. á. ójafn- vægi. atkvæðanna .. Það. hefur. gengið. betur. að.laga.ójafnvægið.á.milli.flokka.en.hægar. hefur.gengið.að.laga.ójafnvægið.á.milli.dreif- býlis. og. þéttbýlis .. Núverandi. skipan. lagar. ekki.síðara.ójafnvægið ..Í.upphafi.tuttugustu. aldarinnar.voru.engar.eða.afar.fáar.af.þeim. stofnunum.sem.nauðsynlegar. eru.nútíma- legu.þjóðfélagi.fyrir.hendi.í.landinu.en.nú. er.þær.flestar.að.finna.hér ..Það.er.meira.að. segja.komið.vegakerfi.sem.stenst.samjöfnuð. við.það.sem.gengur.og.gerist.í.öðrum.lönd- um ..Fjöldi.Íslendinga.á.tuttugustu.öldinni. ríflega.þrefaldaðist.og.langflestir.þeirra.hafa. sest.að.á.Reykjavíkursvæðinu . Það. var. vel. til. fundið. að. láta. skrifa. rit- gerðir. um. alla. forsætisráðherra. á. Íslandi. frá. upphafi. í. tilefni. þessara. tímamóta .. 24. karlmenn.hafa.gegnt.starfi.forsætisráðherra. á. þessum. eitt. hundrað. árum,. jafnmargir. höfundar.voru.fengnir.til.að.skrifa.hver.um. einn. einstakling. sem. verið. hefur. forsætis- ráðherra .. Markið. var. sett. á. að. skrifa. læsi- legan.texta.um.hvern.og.einn.en.ekki.kraf- ist.grunnrannsókna ..Í.heildina.hefur.tekist. mjög.vel.til,.bókin.er.að.vísu.nokkuð.stór.og. þung. en.hún. er. skemmtileg. aflestrar,. hún. er.upplýsandi.og.hún.veitir.ákveðið.sjónar- horn.á.stjórnmálasögu.tuttugustu.aldarinn- ar .. Forsætisráðherra. er. æðsti. yfirmaður. framkvæmdavaldsins.og.fer.fyrir.ríkisstjórn .. Það. er. ekki. horft. á. forsætisráðherrana. og. embættið.út.frá.þróun.stjórnarráðsins.held- ur.út.frá.þróun.stjórnmála.í.landinu.þennan. tíma . Farið.er.yfir.forsætisráðherrana.í.tímaröð,. byrjað. á. Hannesi. Hafstein. og. endað. á. Davíð. Oddssyni .. Davíð. Oddsson. skrifar. um.Hannes.Hafstein.og.Styrmir.Gunnars- son,. ritstjóri. Morgunblaðsins,. um. Davíð. Oddsson .. Þessar. ritgerðir. eru. prýðilegur. rammi. utan. um. lesmál. bókarinnar. því. að. þær.eru.svolítið.öðruvísi.en.allar.hinar,.eru. persónulegri.og.byggjast.meira.á.eigin.mati. höfundanna.á.viðfangsefni.sínu ..Davíð.fell- ur.ekki. í.þá.gryfju.að.upphefja.Hannes.úr. hófi.en.gerir.mikið.úr.skáldinu.og.persón- unni .. Styrmir. hefur. engar. sagnfræðilegar. rannsóknir.að.styðjast.við.um.Davíð.Odds- son.og.feril.hans.í.stjórnmálum.yfirleitt.eða. í.stóli.forsætisráðherra.enda.er.engin.neðan- málsgrein. í. máli. Styrmis. en. hann. vitnar. í. ræður.Davíðs ..Ein.bók.hefur.verið.skrifuð. um. Davíð. en. hún. var. um. borgarstjórann. Davíð,.ekki.forsætisráðherrann ..Styrmir.leit- ast.við.að.meta.stjórnmálamanninn.Davíð. og. forsætisráðherrann. Davíð .. Mér. virðist. honum. takast. að. varpa. ágætu. ljósi. á.bæði. stjórnmálamanninn. og. forsætisráðherrann. og.um.leið.að.setja.fram.spurningar.sem.eðli- legar.eru.eins.og.um.skoðanaskipti.Davíðs. um.eignarhald.á.bönkum.á.Íslandi .. Í. ljósi. þeirrar.þróunar.sem.varð.eftir.að.bankarnir. voru.seldir.er.eitt.og.annað.sem.mælir.með. því. að. bankarnir. voru. seldir. svonefndum. kjölfestufjárfestum.fremur.en.að.selja.þá.til. sem.flestra.og.setja.lög.sem.tryggðu.dreifða. eignaraðild ..Þetta.er.dæmi.um.eitt.af.þeim. álitamálum. sem. forsætisráðherrann. Davíð. hefur.orðið.að.taka.afstöðu.til.í.embætti.sínu. og.ekki.augljóst.hvor.skoðunin.var.rétt . Allar. greinarnar. eru. álíka. langar. óháð. því. hve. lengi. hver. forsætisráðherra. sat. í. embætti .. Auðvitað. er. það. svo. að. þessir. forsætisráðherrar.eru.mismerkilegir.en.þeir. verðskulda. allir. þá. umfjöllun. sem. hér. er .. Það.á.örugglega.við.um.alla.lesendur.bókar- innar.að.þeir.kannast.lítt.við.nokkurn.hluta. forsætisráðherranna.enda.lítið.verið.skrifað. um.þá.suma ..Sumir.þeirra.eru.merkari.fyrir. annað. en. að. vera. forsætisráðherrar .. Það. á. til.dæmis.við.um.Einar.Arnórsson.og.Ólaf. Jóhannesson. sem. báðir. eru. merkari. sem. fræðimenn. í. lögfræði. en. forsætisráðherrar .. Ásgeir. Ásgeirsson. er. merkilegri. forseti. en.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.