Skólavarðan - 01.09.2012, Side 12
12
Skólavarðan 1. tbl. 2012KEnnARInn
Fjölhæfur heimshornaflakkari með hugsjón
Nýlega kom út bókin Listin að leika á saxófón sem er eins og nafnið
bendir til kennslubók í saxófónleik, sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Hún er ætluð byrjendum í tónlistarnámi og miðast við eitt kennsluár.
Með sköpun að leiðarljósi vill höfundurinn, Alberto Porro Carmona,
ryðja brautina fyrir nýja kynslóð íslenskra barna. Liður í því er að
semja kennslubækur sem byggja á tilfinningum og upplifunum fremur
en fræðilegu efni. Bókin er gefin út í samvinnu margra aðila, meirihluti
þeirra gefur framlag sitt. Listin að leika á saxófón er aðgengileg frítt á
vefnum Listin að leika. Stefnt er að því að gefa út sams konar bækur
fyrir öll hljóðfæri sem nemendur læra á í tónlistarskólum hér á landi,
innan þriggja ára. Listin að leika á þverflautu er á næsta leiti.
Finnst gott að vera á Akureyri
Alberto er spænskur saxófónleikari, hljómsveitarstjóri, tónlistarkennari,
tónskáld og rithöfundur sem býr nú og starfar á Akureyri. Þessi ungi
orkubolti hefur vakið athygli fyrir fjölhæfni og hugsjónir. Hann hefur
búið ótrúlega víða um heim miðað við ungan aldur en hann er fæddur
1980 á Spáni og þar ólst hann upp. Eftir háskólanám í Salamanca bjó
hann um skeið á Kúbu og stjórnaði þar hljómsveitum. Þá færði hann sig
til Argentínu þar sem hann starfaði sem hljómsveitarstjóri og stundaði
nám. Þaðan lá leið hans til Edinborgar þar sem hann kenndi ungum
tónlistarmönnum að leika klassík og jazz á saxófón auk þess sem hann
lék með hljómsveitum sem BBC hljóðritaði. Næsti viðkomustaðurinn
var Ísland en Alberto bauðst starf við Tónlistarskólann á Akureyri.
Hann hugðist staldra þar við í eitt ár en á honum er ennþá ekkert
fararsnið. Ekkert einsdæmi það, honum finnst einfaldlega gott að vera
fyrir norðan.
Að vekja áhuga og tjáningarþörf nemandans
Alberto segist hafa skoðað fjöldann allan af kennslubókum í tónlist
og komist að því að langflestar væru ekki eins og hann vildi hafa þær.
Hann langaði til að fara aðrar leiðir í kennslu sinni. Hann lagðist í
rannsóknir sem leiddu til þess að hann bjó til sitt eigið efni. Aðferð
hans snýst frekar um tilfinningar og upplifun en fræðileg hugtök og
kenningar. „Fræðin eru að sjálfsögðu mikilvæg og auðvitað kennum
við fræðilega hluti en tilfinningar og upplifun eru ekki síður mikilvæg
atriði. Markmið mitt með þessum kennslubókum er að vekja áhuga og
tjáningarþörf nemandans. Þetta tvennt á svo að vera honum hvatning
til að halda áfram“ segir Alberto. „Ég vil virkja og efla sköpunargáfu
nemendanna. Mig langar að stuðla að því að þeir öðlist skilning
á listgreinum og nái að tengja þær saman. Með áherslu á íslenska
listmenntun á bókin að hvetja nemandann til þess að nálgast listgrein
sína frá sjónarhornum íslenskrar tónlistar, myndlistar og bókmennta.“
Sagan af Búkollu fær nýtt hlutverk
Listin að leika á saxófón er ákaflega lifandi bók og litrík. Haraldur
Alberto Porro Carmona fékk verðlaun fyrir framúrskarandi vinnu
og jákvæð áhrif á menntasamfélag Akureyrar árið 2010.
Texti: GG
Myndir: JS
Alberto Porro Carmona