Skólavarðan - 01.09.2012, Page 30

Skólavarðan - 01.09.2012, Page 30
30 Skólavarðan 1. tbl. 2012sAmRæÐAn Skóli á tímamótum Texti: GG Myndir: JS og fleiri Hver eru brýnustu verkefni skólanna fram til 2020? Nú er annar áratugur 21. aldar kominn vel á veg. Nýjar kynslóðir verða til og byltingarkenndar breytingar hafa átt sér stað á mörgum sviðum mannlífsins undanfarna áratugi. Nýjar námskrár hafa nú litið dagsins ljós fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og ákveðið hefur verið að efla og lengja kennaranám. Það er því engum vafa undirorpið að skólasamfélagið á Íslandi stendur á tímamótum. Í öðrum kafla námskránna segir að almenn menntun stuðli á hverjum tíma að aukinni hæfni einstaklingsins til að takast á við áskoranir daglegs lífs og að hún miði að því að efla skilning einstaklingsins á eiginleikum sínum og hæfileikum og þar með hæfni til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi. Skólavarðan spurði nokkra félagsmenn KÍ hvað þeir sæju þegar þeir litu til framtíðar og veltu fyrir sér hver væru brýnustu verkefni skólanna á Íslandi fram til ársins 2020. Svörin þeirra hljóða svona: „Það sem mér dettur fyrst í hug er að gera nemendur virkari í námi sínu með því að veita þeim greiðan aðgang að hvers kyns upplýsingum og nýta upplýsingatæknina til hins ýtrasta. Það kallar á breytta kennsluhætti og annan hugsunarhátt. Hlutverk kennarans ætti að vera að kenna nemendum að læra og veita þeim aðhald í þekkingarleit sinni. Við búum í upplýsingasamfélagi og skólinn þarf að taka mið af örri þróun og fylgja henni eftir.“ „Brýnasta verkefni skólanna verður enn sem fyrr að mennta nem- endur. Ekki er lengur víst að nemenda bíði eitt ákveðið starf eða hlutverk. Vissulega þarf áfram að bjóða upp á undirbúning fyrir sérhæft framhaldsnám en jafnframt þarf að undirbúa nemendur til að vera sveigjanlega og tilbúna til að takast á við margslungin verkefni. Ég held að í takt við þetta muni samskipti og samvinna innan veggja jafnt sem út fyrir veggi skólans aukast og það verður líka mikilvægara en áður að vera skapandi og úrræðagóður í skólastarfinu.“ „Mikilvægasti þátturinn í að gera skóla að góðum skóla er starfs- fólkið. Fullkominn tölvukostur eða þaulhugsaðar námskrár geta gert sitt gagn en jákvæðir, vinnusamir og samheldnir starfsmenn hafa úrslitaáhrif. Því þarf starfsandi innan veggja skólans að vera góður og svo þurfa laun að vera mannsæmandi eftir fimm ára háskólanám. Það er því brýnt verkefni allra sem vinna í skólanum að bæta starfsandann því ef starfsmenn eru jákvæðir, ánægðir og vinnusamir þá smitast það til nemenda sem verða jákvæðari, ánægðari og duglegri í allri sinni vinnu og þegar öllu er á botninn hvolft þá hlýtur það alltaf að vera markmiðið.“ Alma Hlíðberg, grunnskólakennari Hörðuvallaskóla Bjarnheiður Kristinsdóttir, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð Haraldur Bergmann Ingvarsson, grunnskólakennari í Hagaskóla

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.