Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 42
42
Skólavarðan 1. tbl. 2012Í dEIgLunnI
„Born this way“ heita samtök sem Lady Gaga og móðir hennar,
Cynthia Germanotta, stofnuðu í fyrra og eru samnefnd plötu dívunnar
frá 2010. Markmiðið er að vinna að umburðarlyndu samfélagi þar sem
fjölbreytni er hyllt og einstaklingar metnir að verðleikum og efldir
til góðra verka. Mæðgurnar vilja leggja sitt af mörkum til að skapa
börnum og ungmennum öruggt umhverfi þar sem þau styrkjast og fá
möguleika til að móta betri og hugrakkari heim. „Við trúum því að
allir hafi rétt til að finna fyrir öryggi, upplifa valdeflingu og breyta
heiminum,“ segir á vef samtakanna, bornthiswayfoundation.org
Samtökin hvíla þannig á og hverfast um þrjú atriði:
• Að auka öryggi barna og ungmenna,
• efla leiðtogafærni þeirra og
• gefa þeim möguleika til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt.
Þessar áherslur hafa hlotið skammstöfunina SSO sem stendur fyrir
safety-skills-opportunity.
Skólapúlsinn á ráðstefnu Lady Gaga
Born this way á í samræðu við fjölda fólks um hvernig hægt sé að
vinna að áherslumálum samtakanna. Brian Suda veftölvunarfræðingur
Skólapúlsins sótti í febrúarlok á þessu ári sérfræðiráðstefnu um
velferð barna þar sem samtökunum var ýtt úr vör. Brian kynnti þar
til leiks aðferðafræði Skólapúlsins við sjálfsmat og þróunarstarf
skóla og var ekki í slæmum félagsskap. Þarna mætti meðal annarra
Howard Gardner fjölgreindargúrú og fleiri sérfræðingar til að ræða
saman um grunnstoðir samtakanna og fyrstu verkefni þeirra gegn
einelti. Lady Gaga benti á að útgangshugsun samtakanna væri fremur
að auka jákvætt atferli en draga úr því neikvæða og það myndi
einkenna starfsemi þeirra í samhengi við grunnstoðirnar þrjár. Fulltrúa
Skólapúlsins var boðið til að segja frá mánaðarlegri upplýsingaöflun
um velferð og andlega heilsu íslenskra nemenda, en rannsóknir og
mælingar verða einn angi af starfsemi Born this way, bæði til þess að
undirbúa og svo endurmeta hvort og þá hversu vel aðgerðir samtakanna
virka.
Lafðin er lýsandi dæmi um gagnsleysi
ríkjandi viðmiðs
Dr. Young Zhao er alþjóðlega þekktur
fræðimaður sem vinnur mest á samtengdu
sviði menntunar, hnattvæðingar og
tölvutækni. Hann hefur bloggað um Lady
Gaga og hér er útdráttur úr mjög áhugaverðri
grein hans um lafðina og hvernig börnum
eins og henni var tekið í þorpinu þar sem
hann ólst upp.
Zhao er frá landbúnaðarþorpi í Sichuan héraði og þegar unga
fólkið fór til borgarinnar sem farandverkamenn sátu eftir um fimmtíu
manns. Enginn þeirra hefur nokkurn tíma heyrt minnst á Lady Gaga
og „myndi ekki finnast hún áhugaverð á nokkurn hátt“. Þegar Zhao var
að alast upp þótti eftirsóknarverðast í fari ungs fólks að geta stjórnað
vatnabuffölum sem plægðu hrísgrjónaakra. Þá var gott að hafa krafta
í kögglum. Það er frekar ólíklegt að Lady Gaga kæmi að miklu gagni
við að hlaupa eftir moldartroðningum með bambusprik yfir axlirnar og
hundrað kíló af sætum kartöflum á hvorum enda, en hugsanlega hefði
hún getað orðið góður vatnabuffalastjórnandi. „Ef hún hefði fæðst í
Hugrakkt og hlýlegt samfélag með
valdeflingu barna og ungmenna
Stefani Joanne Angelina Germanotta er með yfir 13 milljónir fylgjenda á Twitter og 40
milljónir aðdáenda á Facebook. Manneskja sem svona margir fylgjast grannt með hefur
áhrif, á því leikur ekki nokkur vafi. Gaga er sem betur fer ein þeirra ofurfrægu sem
kjósa að nýta sér frægðina til að afla fylgis við mannbætandi hugmyndir og góð verk.
Cynthia Germanotta mamma Lady Gaga
og sprautan að Born this Way. Myndin
er frá fyrirlestri hennar í ágúst sl. á
ráðstefnu um eineltisforvarnir á vegum
bandaríska menntamálaráðuneytisins.
Myndir: Lingjing Bao
Talk Radio News
www.talkradionews.com
Texti: KEG
Dr. Young Zhao