Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 44
44
Skólavarðan 1. tbl. 2012
Opnaður hefur verið vefur sem heitir Sjálfsmynd og fjallar
um sjálfsmynd og líkamsmynd barna og unglinga. Vefurinn er
þverfaglegt samstarfsverkefni sálfræðinga, náms- og starfsráðgjafa
og kennara. Að verkefninu koma Elva Björk Ágústsdóttir, Bergljót
Gyða Guðmundsdóttir, Anna Sigríður Jökulsdóttir, María Hrönn
Nikulásdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir. Vefurinn er verkfærakista
sem verður uppfærður jafnt og þétt. Verkfærin sem hann býður
upp á eru ýmiss konar ráð og verkefni sem stuðla að því að börn
og unglingar skoði eigin sjálfsmynd, sjái hið jákvæða í eigin fari og
nýti það til að byggja upp jákvæða og sterka sjálfsmynd.
Mörg ungmenni hafa slæma sjálfsmynd og er tíðni hennar mismunandi
eftir aldri og kyni. Stúlkur mælast t.d. með síðri líkamsmynd en
drengir. Börnum og unglingum, sem lent hafa í einelti eða eru greind
með raskanir eins og ADHD, er hættara við að hafa slaka sjálfsmynd
eða líkamsmynd. Fræðimenn hafa tengt slæma sjálfs- og líkamsmynd
við aukna tíðni ýmissa geðraskana, t.d. geta líkur á þunglyndi, kvíða,
átröskunum, slæmum námsárangri og annarri áhættuhegðun aukist eftir
því sem sjálfs- og líkamsmyndin versnar. Mikilvægi þess að huga að
líðan barna og unglinga og sýn þeirra á sjálfa sig er því augljóst.
Sjálfsmynd (Self Image) má skilgreina sem þá sýn eða skoðun sem
við höfum á okkur sjálfum. Oft er talað um sjálfstraust en sá sem hefur
sjálfstraust hefur góða trú á sjálfum sér og hæfileikum sínum. Sá sem
er með lítið sjálfstraust hefur oft neikvæða hugmynd um sjálfan sig.
Líkamsmynd (Body Image) er sú sýn eða skoðun sem við höfum á
útliti okkar eða líkamsvexti. Mörg hugtök og orðasambönd hafa verið
notuð til að lýsa því hvað felst í hugtakinu líkamsmynd, t.d. sátt við
eigin þyngd, sátt við eigið útlit og líkamsvirðing. Í megindráttum má
segja að því ánægðari eða sáttari sem við erum með eigið útlit því betri
er líkamsmyndin. Hægt er að nýta aðferðir hugrænnar atferlisfræði til
að bæta sjálfs- og líkamsmynd fólks. Þegar byggja skal upp sjálfs- eða
líkamsmynd ungra barna er mikilvægt að nota einföld verkefni og
byggja fræðslu og ráðgjöf á leikjum, verkefnum og æfingum.
Námsráðgjafar, kennarar, sálfræðingar og annað fagfólk sem vinnur
með börnum og unglingum getur nýtt sér vefinn Sjálfsmynd auk
foreldra og nemendanna sjálfra. Þegar fram í sækir ætla aðstandendur
vefjarins að bjóða upp á sjálfstyrkingarnámskeið og fræðslu. Í bígerð er
t.d. námskeið fyrir drengi en fá úrræði hafa verið í boði fyrir þá. Slóðin
er www.sjalfsmynd.com. Notendur vefjarins geta sent fyrirspurnir og
leitað ráða gegnum hann.
www.sjalfsmynd.com
Upplýsingasíða um sjálfsmynd
barna og unglinga.
VEfuRInn
Texti: GG