Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 46
46
Skólavarðan 1. tbl. 2012smIÐsHöggIÐ
Fræðsluferðir í sorpu
VEruM GÓÐ ViÐ NÁTTÚruNA!
sorpA býður upp á fræðsluferðir
f yrir grunnskóla og leikskóla á
höf uð borgar svæðinu. Mark mið
fræðsl unnar er að nemendurnir
kynnist því hvað verður um ruslið
þeirra. Fjallað er um endurvinnslu
og það hvernig hver og einn getur
haft áhrif á umhverf ið til góðs með
því að f lokka og skila.
F r æðsluF erð 1.
Fræðslan fer fram í sal og móttöku
stöð sorpu þar sem mis munandi
teg undir úrgangs eru meðhöndlaðar.
Hægt er að panta ferðir klukkan 9.00
og 13.00. Ferðin tekur um klukku
stund og er tekið á móti allt að 30
nem end um í einu. Nemendur koma
með rútu, sem skólinn útvegar, á
skrifstofu sorpu í Gufunesi.
F r æðsluF erð 2.
Hægt er að panta ferðir f yrir hádegi
alla virka daga og tekur fræðslan um
30 mínútur. Nemendur geta komið
með strætó á endurvinnslustöðvar
sorpu þar sem fræðslufulltrúi tekur
á móti þeim. starfsemi stöðvarinnar
er útskýrð f yrir nemendum og þeir
fræddir um úrvinnslu úrgangsins.
Trjálfarnir eru dug
legir að f
okka
og sk
ila
Nánari upplýsingar um fræðsluna og pantanir er að finna á www.sorpa.is.
sorpA bs . Gufunesi . 112 reyk javík . sími: 520 2200 . sorpa@sorpa.is . www.sorpa.is
Fjölbreytileiki vistkerfa og lífheimsins almennt er í hættu, tegundir
deyja út en nýjar koma ekki í þeirra stað. Þessi skortur á fjölbreyti-
leika vekur með mönnum þann ugg að það dragi úr aðlögunarhæfni
lífheimsins. Mengun og ýmsar aðrar athafnir mannsins virðast
vera mikilvægur þáttur í þessari þróun. Svipuð umræða hefur átt
sér stað í tengslum við tungumál, fjölbreytileg fl óra tungumála
hefur farið síminnkandi af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna
nýlendustefnunnar og svo hnattvæðingarinnar sem kom í kjölfar
hennar. Vitundarvakning hefur átt sér stað til að bregðast við þessum
ógnum, nefna má tilraunir til að auka fjölbreytileika í landbúnaði
og viðhaldi stofna af plöntum og dýrum í því samhengi. Varðandi
tungumálin má nefna vakningu í kringum ýmis af eldri tungumálum í
Evrópu. Í Frakklandi hafa verið stofnaðir skólar sem kenna á málinu
Occitan og endurvekja og viðhalda tungumáli og menningu sem virtist
fyrir skömmu hafa verið á leið í glatkistuna (www.bize-minervois.fr ).
Þessar tilraunir allar kunna að virðast veikburða þegar litið er til
meginstraumsins, en það er engin ástæða til uppgjafar.
Það er áhugavert að Occitan skólarnir eru með aðrar kennslufræðilegar
áherslur en almennir franskir skólar, eru opnari og frjálsari. Þannig
leggja þeir franskri menningu til aukna fjölbreytni í tungumálum,
menningu og skólamálum. Íslenskur lífheimur, tungumál og menning
eru í þessu samhengi verðmæti á heimsvísu hvað varðar líffræðilegan
og mállegan fjölbreytileika. Það er mikilvægt og rétt að muna þetta og
standa vörð um sérstöðu okkar af mörgum ástæðum. Hins vegar er líka
gott að huga að því að styrkur okkar verður enn meiri ef við stöndum
vörð um fjölbreytileikann innan okkar eigin litla ranns.
Því miður virðist mér að á mörgum sviðum íslensks samfélags eigi
fjölbreytileikinn mjög undir högg að sækja, og það sem mér stendur
næst eru menntamálin og skólarnir. Ég hygg að það skorti á fjölbreytni
bæði í valmöguleikum nemanda en jafnframt í nýtingu þeirra á því vali
sem þó er fyrir hendi. Skýrasta dæmið um þetta er hvernig nánast allir
nemendur á framhaldsskólastigi leita í bóknám, og innan bóknámsins
velfl estir þeirra á náttúrufræðibraut: Flestir nemendur velja svo sama
þriðja málið, spænsku. Inni í skólastofunum eru svo vísbendingar um
að lífshættir og hegðun virðist vera ansi einhæf og að einsleitnin þar
aukist eftir því sem ofar dregur í skólakerfi nu. Við þessu geta allir
starfandi kennarar, með nemendum sínum og yfi rmönnum, brugðist
með því einfaldlega að losa um tak námsbóka, einhæfs námsmats og
hefðar á líf sitt og starf.
Einsleitni er slæm fyrir vistkerfi og einstakar dýrategundir, slæm fyrir
menningarheima og tungumál, og líka slæm fyrir örmenningu eins og
þá sem við eigum hér á þessari pínulitlu eyju. Við sköpum fjölbreytni
með því að vera opin og óhrædd í vali okkar á því hvað við gerum og
sköpum. Líkt og í tengslum við lífheiminn og tungumálin úti í heimi
má sjá vísbendingar um tilraunir til að bregðast við þessu hér hjá okkur
og það er ábyrgð okkar allra að hlúa að þeim og tryggja fjölbreytninni
brautargengi. Fjölbreytni er forsenda framþróunar en lykilatriðið er
kannski hvað fjölbreytileiki er óendanlega mikið skemmtilegri.
Ármann Halldórsson kennari.Einsleitni
Einsleitni er slæm fyrir vistkerfi og
einstakar dýrategundir, slæm fyrir
menningarheima og tungumál, og líka
slæm fyrir örmenningu eins og þá sem
við eigum hér á þessari pínulitlu eyju.