Ljóðormur - 01.12.1990, Side 5

Ljóðormur - 01.12.1990, Side 5
3 Miskunn dalfiska Enn eina ferðina mjakast ljóðormurinn úr híði og kemur þá vonandi í Ijós að allar sagnir um ótímabæran dauða hans séu stórlega ýktar. Vissulega er hann seint á ferð, því þetta ellefta hefti er að eðli og upplagi lokahefti árgangsins 1990. Til þessarar seinu ferðar eru mörg rök og verða ekki talin hér, enda mun síðar frernur spurt að því hversu góður og lífseigur þessi ormur sé en að hinu hversu hratt hann hafi skriðið. Árið 1990 varð ekki eins frjótt ljóðabókaár og 1989 ef litið er á titlafjölda einan. Þó komu út yfir sjötíu bækur sem fluttu ljóð einvörðungu eða í bland við annað efni (sjá bókatal aftast í heftinu). Og það ætlum vér að þar hafi verið ýmislegt sem síðar verði talið nokkrum tíðindum sæta. Það sæmir ekki á þessum stað að tilgreina einstök skáld og spá hver þeirra muni um síðir skara fram úr, en benda má á að við eignuðumst á nýliðnu ári álitlegt safh þýðinga úr snilldar- verkum heimsbókmenntanna, eins og líka má sjá af bókaskránni hér í Ljóðormi. Mörgum þykir verða vandrataðra með hverju árinu um myrkviðu tilverunnar. Fom gildi hrynja fleiri en tölum verði á komið, einn daginn þykir þjóðarsómi bjóða að gefist kos- tur á að fylgjast með mannvígum í beinni útsendingu, annan daginn bráðliggur á að sigla þjóðarskútunni þöndum seglum út á samkeppnishafið bláa og inn í Evrópusamfélagið, jafnvel þótt öllum sé ljóst að efnahagslegt sjálfstæði geti mæta vel verið í húfi — og þá þarf varla að spyrja lengi um menningar- legt sjálfstæði þjóðarinnar. Við þessar aðstæður verður mikil þörf á góðum greiningartækjum og skýrum leiðarhnoðum til að vísa einstígin. Gróska ljóðlistarinnar er vonandi bending um að menn treysti ljóðforminu og stflnum enn sem fyrr til Ieiðsagnar um flóknar veraldir. Hins mega lesendur vitanlega ekki vænta að leiðsögnin geti orðið afskaplega einföld. Tfl þess eru blikurnar of margar. Eins og jafnan fyrr leggur Ljóðormur áherslu á að flytja bæði efni kunnra ljóðskálda og nýgræðinga. Hann vill einnig gjama færa íslcnskum lesendum hnýsileg erlend ljóð og seilist þá oft til framandlegra staða ekki síður en kun- nuglegra. Alls þessa sér stað í 11. tölublaðinu og þar hafa margir lagt hönd á plóg. Öllum skal þeim þakkað. Ljóðormur hefúr þegar hér er komið sögu tekið þátt í að kynna Ijóðlistina og halda merki hennar á lofti um allmörg ár. Oft hefúr útgerðin gengið brösuglega en síðustu árin hafa ritstjórar notið ómetanlegs stuðnings bókaútgáfúnnar Iðunnar. Með þessum árgangi lýkur þeirri samfylgd og við þökkum hana. Fyrir tilstuðlan forlagsins hafði ormurinn

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.