Ljóðormur - 01.12.1990, Page 34

Ljóðormur - 01.12.1990, Page 34
32 Elísabet Jökulsdóttir Maðurinn rís upp úr rúminu og fer út úr herberginu. 2. sena Hvítt herbergi. Stúlkan liggur í rúminu með svart lak yfir sér. Sólin kemur inn um gluggann. Ungi maðurinn kemur inn um hvíta hurð. Hann er með feiknstóran og rauðan rósavönd. Hann lyftir lakinu frá andliti stúlkunnar. Og lætur blómin á brjóst hennar. Hann opnar gluggann og skilur hurðina eftir opna. Þegar hann fer. Fíkn Og konan í steingráa húsinu situr dapureygð og styður hönd undir kinn. Krossferðarriddararnir löngu famir eftir að hafa hámað í sig rjómakökurnar. Kertin að brenna út. Og háir stólamir á dreif um salinn. Þá segir hún með þessum döpm augum: „Mér finnst það skemmtilegast ... ... fólk sem er haldið einhverri fíkn.“ Á einhver heima? Börnin sem koma til dyra. Og opna. Þau vita að ég er bara stórt barn sem kem til dyra og hittj einhvern ókunnugan. Heyrt Og konan í húsi heyrnarlausa mannsins grætur.

x

Ljóðormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.