Ljóðormur - 01.12.1990, Side 49

Ljóðormur - 01.12.1990, Side 49
Valgerður Benediktsdóttir 47 persónuleg sjónarmið ráðið miklu, ekki hvað síst í innhver- fum miðleitnum kvæðum. Það er þó fróððlegt að sjá mis- munandi tök nítjándu aldar mannsins annars vegar og tutt- ugustu aldar mannsins hins vegar. í því sambandi má nefna öll Dettisfosskvæðin sem ort hafa verið. Einnig er athyglisvert hvað táknmál hverrar bókmennta- stefnu virðist hafa mikil áhrif á hvort fremur er ort um „hið ólgandi haf“ eða „smálækjarsprænuna“ og hvað sömu náttúruöfl geta táknað ólíka þætti í tilverunni eftir því hver heldur á pennanum, stundum óháð tímabilum. Þrátt fyrir ólíkar áherslur má þó samt sem áður staðhæfa að vatnið sé hluti af sammannlegu táknmáli allra tíma. Þróunin (eða breytingin) er samt vissulega mikil þó matsatriði kunni að vera hvort á betri veg sé eða ekki. í firægri grein sinni „Til vamar skáldskapnum“, segir Sigfús Daðason að nútímaskáld hafi reynt að skapa skáldskap þar sem allir hlutir, öll orð eiga heima. Markmið þeirra hefúr ekki verið að skýra eða einfal- da heldur að sýna ... En ég held varla að 19. öldin hafi átt stærri skáld en okkar öld. Aðeins má ekki gleyma því að skáld 20. aldar eiga sér annað takmark en skáld 19. aldar. (Sigfús Daðason 1952:286-7) í þessu sambandi má er til vill taka Hannes Hafstein annars vegar og Stein Steinarr hins vegar sem dæmi um ólíkan túlkunarmáta. Báðir hafa notað einhvetja birtingarmynd vatnsins í kvæðum sínum en á ólíkan hátt. Meðan Hannes hefur oftast lýst hinum ytri veruleik án víðari skírskotana í fremur einföldum frásagnarljóðum hefur Steinn oftar en ekki notað þann hinn sama veruleik til að túlka innri vitundar- heim mannsins. Auðvitað skírskotar Hannes oft til mannsins með náttúrulýsingum sínum, þ.e. gefur náttúrunni mennska eiginleika. Dæmi: Hvort hefúr þú vin okkar hafísinn séð, er ’ann hraðar að landi för, og tungunni hvítri og tönnunum með hann treður á foldar vör? (Hannes Hafstein: / hafísnum 1925:84) Hins vegar má segja að Steinn snúi þessu við. Hjá honum er maðurinn í fyrsta sæti og náttúran notuð sem hjálpargagn til frekari áherslu: Ég hef látið úr höfn allra landa og runnið í farveg hvers flóðs.

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.