Ljóðormur - 01.12.1990, Side 53

Ljóðormur - 01.12.1990, Side 53
Valgerður Benediktsdóttir 51 mannsins líður hjá en fossinn er ætíð hinn sami, ægilegur en jafnframt undrafiíður; skrásetur sögu kynslóðanna í eilífu lagi. Einar yrkir til fossins í sínu kvæði og dásamar kraft hans og orku sem gott væri að geta virkjað í þágu þjóðarinnar. Framu'ð landsins býr fógin í vatnsaflinu, hagsæld og hamingja. Það er á svolítið annan hátt sem Dettifoss kemur íslands ungu skáldum þessarar aldar fyrir sjónir. Mikilúðleikinn sem ailtumvafði fyrrum er horfinn, skáldið talar fyrir munn hins lífsreynda og jafnvel þreytta borgar- bams sem á sér ekki lengur sömu sýn og gömlu meistaramir: Virkjun vatnsaflsins er ekki draumur lengur heldur veruleiki og aðdáun skáldsins er takmörkuð: Þú dettur ennþá Dettifoss laminn niður af sálariausu fljóti bíður færis að rísa upp á háspennumöstrin og flýja til byggða. Ógæfulegur ertu myndavélin drepur tittlinga við að sjá þig. Mig snertu önnur vatnsföll dýpra lekur krani draup mér fyrrum andvökum (Anton Helgi Jónsson: Dettifoss 1979:21) Ef litið er á Dettifosskvæði Einars Benediktssonar annars vegar og Antons Helga Jónssonar hins vegar, sést að markmið þeirra er gerólíkt. Einar hefúr í huga að minna menn á þann kraft sem hægt er að virkja úr vatnsorkunni og hagar máli sínu samkvæmt því; Anton Helgi leggur áherslu á andstæðuna boig — náttúra, að fossinn er orðinn eins og fuglahræða í garði hugans og ffelsar ekki nokkum mann því „hugsunin rennur í farvegi upprunans — botgariðunnar". Efnistökin mótast þannig óneitanlega af því hvaða hugsun kvæðum er ætlað að miðla. Enn eitt sjónarmið birtist í fosskvæði Elísabetar Jökulsdóttur: Að standa á fossbrún og heyra dmnur fossins bergmála t eyrunum getur seitt hugann og vakið upp óttablandnar kenndir. Það getur stundum verið erfitt að stan- dast steypandi hyldýpið fyrir neðan sig — eitt andartak eða meir; hyldýpi hugans, lífsins, fossins. Og fossinn steypist og steypist cndalaust, beljandi, þmmandi. Ef til vill ekki svo ólíkur okkur mönnunum. Mennimir em eins og fossinn. Fossinn er eins og mennimir. Lífið. Lífið vatnið og mennir- nir. Tíminn. Sem stendur kyrr stundum. Eins og fossinn. Sem steypist þó sífellt niður. Á fleygiferð. Eins og tíminn: Allt kemur. Allt fer. Hverfur. Annað líf fæðist. Stundir deyja. Og niðurinn! Niður. Á bólakaf. Djúpur hylur hyldýpi. Tilfinninga. Andartök. Sem við lifúm. Sem steypast niður. Hverfa. „Finn- ast. Aldrei aftur":

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.