Frón - 01.01.1943, Síða 31
Fullveldisræða
25
Iétu sér sæma aS ofsækja það sem helzt var unnið af menningar-
verkum með þjóðinni...
Sterk öfl sem enginn ræður við, valda því að nokkuru leyti að
íslenzkur maður á erfitt með að ná fullum þroska heima fyrir.
Fjarlægðin, einöngrunin, fámenniS hafa í för meS sér tregSu sem
mjög getur veriS örðugt að sigrast á. En hinu tjáir heldur ekki
að neita, að öfl sem hlýtur að vera unnt aS berjast viS og brjóta
niSur, eiga sterkan þátt í því, aS margt fer á íslandi miður en
skyldi og aS landinu hefur haldizt illa á sumu af sínu bezta fólki.
íslenzkum stjórnarvöldum hafa verið heldur mislagSar hendur.
Á annan bóginn hefur markmiS íslenzkrar stjórnmálastarfsemi
um langan aldur veriS aS efla frelsi þjóðarinnar, draga vald inn
í landiS, losna undan erlendri drottnun. Jafnframt þessu hefSi
á hinn bóginn aS sjálfsögSu þurft aS reka öfluga, sífellda og
markvísa starfsemi til aS styrkja og menna þjóSina, en á því
hefur viljaS verSa misbrestur. ÞaS kemur fyrir lítið aS þjóS kallist
frjáls, sé fólkiS ekki svo vel mannað aS þaS kunni með frelsiS
aS fara. PaS er ekki mikiS gagn í aS heita sjálfstætt ríki, ef þetta
ríki treystir sér ekki til aS halda uppi bókmenntum, vísindum,
listum og alþýSufræSslu sem færi innlendum mönnum og
erlendum heim sanninn um réttmæti sjálfstæðisins.
Hér er engum nýtum krafti ofaukiS. MeSal stórþjóSanna þar
sem einstaklingurinn er eins og dropi í hafsjó, er lítil von til
þess aS hver og einn finni mikla ábyrgS á sér hvíla. En hjá oss
er allt öSru máli aS gegna. FámenniS er svo mikiS að vér megum
helzt ekki af neinum sjá. HöfSatalan er ekki meiri en svo, aS
hver maSur hlýtur aS finna til þess meS sjálfum sér þegar honum
dettur eitthvert verk í hug: ef é g vinn ekki þetta verk, verður
þaS ógert, aS líkindum um áratugi, ef til vill um allan aldur.
Eitt sinn heyrSi ég íslenzkan stjórnmálaleiStoga flytja tæki-
færisræSu hér í Kaupmannahöfn. Hann mælti fyrir minni Hafnar-
íslendinga, og inntak ræðunnar var þetta, aS íslenzka þjóðin
mætti hrósa happi aS hafa átt svona gott mannval aS missa.
Allir vita aS ekki er einlægt mikiS mark á því takandi sem sagt
er í slikum ræðum, en þó er sannast aS segja aS þarna getur vel
einhver alvara hafa fólgizt á bak viS. Sumum íslenzkum valda-
mönnum virSist hafa veriS helzt til ósárt um, þó aS menn sem
variS hafa mörgum árum og mikilli ástundun til aS aukast aS
þekkingu og búa sig undir nytsamt lífsstarf, ílendist meS öSrum
þjóSum. OrSiS ‘langskólagenginn’ hefur heyrzt notaS sem óvirS-