Frón - 01.01.1943, Blaðsíða 69
Orðabelgur
63
íslendingar á skáldapingi.
Á forlagi Reitzels í Kaupmannahöfn kom út nýlega smásögu-
safn eftir 21 núlifandi skáld fimm NorÖ'urlandaþjóSa (Ny nordisk
Novellekunst, Danmark, Finland, Island, Norge, Sverige, 1942).
Sögurnar eru prentaðar á frummálunum, nema þær finnsku og
íslenzku, sem eru þýddar á sænsku og dönsku. Fulltrúar ís-
lendinga á þessu skáldaþingi eru þeir Halldór Kiljan Laxness og
Halldór Stefánsson meS sína söguna hvor. Dönsku þýSinguna
hefur mag. art. Christian Westergárd-Nielsen leyst prýSilega af
hendi. Sögurnar munu íslenzkum lesendum kunnar: Lilja eftir
FI. K. L. (úr »Fótataki manna«) og HernaSarsaga blinda mannsins
eftir Halldór Stefánsson (úr »RauSum pennum«, 2. árg.). Einn af
kunnustu ritdómurum Dana, dr. Fr. Schyberg, hefur nýlega í
ritdómi um bókina bent sérstaklega á sögu Halldórs Stefáns-
sonar sem óvænta nýjung, þar sem höfundur er áSur óþekktur
utan íslands. Eru þaS góS tíSindi aS þarna eru tvö íslenzk skáld
sett á bekk meS færustu smásagnahöfundum NorSurlanda, án
þess aS íslendingar þurfi aS óttast samanburSinn. Mætti þetta
verSa til íhugunar þeim bókmenntavitringum íslenzku blaSanna
sem hafa á síSustu árum gert sitt ýtrasta til aS þegja einmitt
þessa tvo höfunda i hel. J. B.
Flaustur eða fáfræði?
Skrif danskra blaSamanna um íslenzk efni eru stundum
nokkuS seinheppileg sakir ónógrar þekkingar eSa flausturs í
frágangi. Eitt dæmi þess er í nýútkominni árbók sem Politiken
gefur út (Hvem — Hvad — Hvor 1943) og mun vera einhver
víSlesnasta bók í Danmörku, þar sem hún er nú seld i 100.000
eintökum. Þar stendur kaflakorn um ísland, en viS þá fræSslu
sem þar er flutt er sitt hvaS aS athuga, einkum þó hve óheppi-
lega hún er fram borin. Undir fyrirsögninni »Stjórn og fram-
kvæmdavald« (Regering og Administration) er þannig aSeins
talin dansk-íslenzka lögjafnaSarnefndin, en því næst kemur
önnur hliSstæS fyrirsögn »Núverandi stjórn«, og eru þá rakin
nokkur helztu ákvæSi sambandslaganna og ályktun Alþingis
17. maí 1941. Ríkisstjóri er nefndur en engir ráSherrar, og þess
er yfirleitt ekki getiS aS nokkurt ráSuneyti sé til á íslandi.
Hlýtur þetta aS koma ókunnugum svo fyrir sjónir aS dansk-
íslenzka nefndin sé á venjulegum timum æSsta stjórn íslands,.