Frón - 01.01.1943, Blaðsíða 49
Félagsmál íslendinga erlendis
43
útilegumenn hér á meginlandi Evrópu. AS vísu veit ég ekki til
að menn hafi þar komizt aS neinum nýstárlegum niSurstöðum,
hygg jafnvel ekki að menn hafi orSiS sammála nema um fá atriSi,
enda væri slíkt alveg óvenjulegt og ótrúlegt afrek. En þessi
félagsmál eru fyllilega þess virSi aS þeim sé gaumur gefinn af
öllum sem hlut eiga aS máli. PaS er augljóst, eSa ætti aS vera,
aS tíminn leggur okkur tvöfaldar skyldur á herSar, og mikiS ríSur
á því aS viS landar höldum þétt saman og Ieggjum rækt viS allt
þaS sem tengir okkur saman og bindur okkur íslandi. Hér á
meginlandi Evrópu eru hundruS ungra manna og kvenna er þar
hafa leitaS sér frama og mennta til þess aS geta síSar tekizt á
hendur þýSingarmikil störf fyrir íslenzku þjóSina. ViS þetta fólk
voru tengdar bjartar vonir heima, margt af því var meSal hins
bezta af íslenzkri æsku, og um allt þetta liS er þaS aS segja aS
þjóSin mátti naumast viS aS missa af því á venjulegum tímum
og alls ekki eins og nú stendur á. Þetta fólk er nauSbeygt til aS
vera áfram erlendis, þaS verSur aS ráSa sig í stöSur þar sem
þaS er komiS, oft til margra ára í senn, og dregst svo smám
saman út úr þeim íslenzka félagsskap sem þaS er í á námsárunum.
Leikur þá sýnilega allmikil hætta á aS þetta fólk ílendist erlendis
og glatist sem Islendingar. ÞaS er því þýSingarmikiS aS athugaS
sé hvaS hægt er aS gera til aS efla félagslíf íslendinga hér á
meginlandinu og styrkja samheldni þeirra á meSan allar leiSir
heim eru lokaSar.
II
Hér í Kaupmannahöfn er brot annarrar smáþjóSar, aS vísu
nokkru fjölmennara en viS landar, en meS svipaSa aSstöSu og
lík vandamál sem viS. Heima á Fróni var þaS landfleyg gálga-
fyndni aS Færeyingar væru eina þjóSin í heiminum sem liti upp
til íslendinga. ViS samanburS á félagslífi íslendinga og Færeyinga
í Höfn um þessar mundir myndi hlutlaus áhorfandi hæglega
komast aS þeirri niSurstöSu aS full ástæSa væri til aS þetta
breyttist. MeS Færeyingum í Höfn hefur frá fornu fari veriS
fjölbreytt félagslíf, og síSan stríSiS hófst hafa þeirra gömlu félög
fært út kvíarnar á ýmsan hátt og ný hafa veriS stofnuS. Af
gömlu félögunum eru þau kristilegu fjölmennust og efldust.
Kristilega ungmennafélagiS heldur fund hvern sunnudag. ÞaS er