Frón - 01.01.1943, Page 51
Félagsmál fslendinga erlendis
45
sem mikils má vænta af. Nokkrir listelskir Færeyingar hafa
nú stofnaS félag til styrktar færeyskri list, og er hlutverk þess
aðallega tvennt: að kynna Færeyingum hér sína eigin list og
afla fjár til kaupa á færeyskum listaverkum, svo að þau glatist
ekki út úr landinu. Pað liggur því í hlutarins eðli að þetta íélag
starfar á allt annan hátt en þau sem áður voru nefnd. Það er
fyrst og fremst fjáröflunarfélag, félagar greiða tiltölulega hátt
árgjald, og svo gengst félagið fyrir skemmtunum til frekari
fjáröflunar. Auk þess heldur félagið færeyskar listsýningar sem
njóta almennra vinsælda.
Nýstárlegast af þeim nýju félögum Færeyinga er tvímælalaust
Oyggjaframi (Eyjaframi). Til þess að geta skilið þann félagsskap
til hlítar verða menn að gera sér ljóst að stjórnarfarslega eru
Færeyjar aðeins amt í Danmörku. I1 2 3 4 5 6 7eir Færeyingar sem hér eru
hafa í barnaskóla lært danska tungu og danska sögu, þeir hafa
aftur á móti ekki fengið tilsögn í réttritun móðurmáls síns, sögu
sinni né landafræði. Markmiði Eyjaframa er bezt lýst með stefnu-
skrá íélagsins sem er í meginatriðum þessi:
Starfsmið Eyjaframa er að mennta færeyska æsku svo að hún
sé fær um að vinna fyrir frjálsar Færeyjar. Til þess vill félagið
starfa að því að félagarnir
1) læri að skrifa móðurmálið lýtalaust og nota það i öllum
greinum;
2) læri sögu fósturjarðar sinnar;
3) kynni sér stjórnar- og frelsisbaráttu landsins;
4) kynnist atvinnulífi eyjanna;
5) læri að þekkja einkenni einstakra eyja og byggða og
kynnist þannig Færeyjum í heild;
6) viti deili á færeyskum bókmenntum og færeyskri list;
7) haldi uppi færeyskum dansi og kvæðalist.
Felagar geta allir Færeyingar orðið, þó með því skilyrði að þeir
lofi að taka virkan þátt í starfi félagsins. Petta síðasta atriði
nir að forgöngumönnum Eyjaframa er fullur hugur á að ein-
hverju verði afkastað, og að þeir eru ekki hræddir við að leggja
kröfur á herðar löndum sínum. Eyjaframi er óvenjulegt félag,
og væri sennilega meira réttnefni að kalla það frjálsan ungmenna-
skóla eða fræðsluflokk. Hann starfaði í fyrravetur og aftur í
^etur. Hafa mest verið reknir þrír flokkar, einn um færeyska
tungu, og er N. Djurhuus leiðbeinandi hans, annar um færeyskar