Fréttablaðið - 25.11.2016, Qupperneq 100
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég bjóst alls ekkert við þessu, það voru hátt í þrjú hundruð mynd-bönd send inn og stelp-urnar tólf sem komust í úrslit voru allar mjög
góðar,“ segir Guðrún Lilja Dag-
bjartsdóttir, níu ára stúlka frá
Grindavík, spurð hvort hún hafi
búist við því að vera valin Jóla-
stjarnan 2016. Dómnefndina í ár
skipuðu þau Björgvin Halldórsson,
Gissur Páll og Jóhanna Guðrún en
tólf söngkonur voru boðaðar í prufu
í síðasta mánuði, þar sem hver var
annarri betri.
Guðrún Lilja bar þó sigur úr
býtum og mun syngja með mörgum
af fremstu listamönnum þjóðarinn-
ar í Höllinni 10. desember á tíu ára
afmælistónleikum Jólagesta Björg-
vins. Kóngurinn sjálfur, Björgvin
Halldórsson, mætti í Grunnskólann
í Grindavík, þar sem Guðrúnu var
tilkynnt að hún hefði verið valin
Jólastjarnan 2016.
„Mér leið bara rosalega vel þegar
Björgvin og sjónvarpsfólkið komu
inn í skólastofuna, þá fattaði ég að
ég hefði unnið, svo kom líka fullt
af krökkum sem höfðu elt til að sjá
hvað væri í gangi,“ segir hún.
Fram undan er mikið og stórt
ævintýri fyrir Jólastjörnuna, en
við taka stífar æfingar fram að tón-
leikum, þar sem allar tólf söngkon-
urnar munu koma fram og því þarf
að stilla saman strengi fyrir stóru
stundina.
„Það er fullt að gera núna, ég
þarf að læra lagið sem ég ætla að
syngja og svo byrja æfingar með
hljómsveit 5. desember og þá eru
æfingar alla daga fram að tónleik-
unum,“ segir Guðrún spennt og
bætir við að þetta sé frábært tæki-
færi, og reynsla sem hún er spennt
að takast á við.
Aðspurð hvaða lag hún ætli að
syngja segir Guðrún að enn sé hún
að skoða nokkur lög til að velja úr.
„Það sem ég veit fyrir víst er að við
Friðrik Dór munum syngja saman
Jólasveinninn kemur í kvöld.“
Guðrún er þriðja yngst af sjö
systkinum, hún stundar nám við
Gunnskólann í Grindavík og æfir
fimleika, en hvað ætlar hún að verða
þegar hún verður stór?
„Ég auðvitað elska að syngja og
æfi svo fimleika með Fimleikadeild
Grindavíkur. Ég æfi líka fótbolta
með Grindavík og finnst gaman
að dansa og í rauninni allt sem við
kemur list. Ég gæti hugsað mér að
verða söngkona, leikkona, eða ein-
hvers konar listamaður þegar ég
verð stór,“ segir Guðrún.
gudrunjona@frettabladid.is
Nóg er fram undan hjá Guðrúnu Lilju Dagbjartsdóttur, en hún hefur verið valin Jólastjarnan 2016. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir er Jólastjarnan 2016 en hátt í þrjú
hundruð myndbönd voru skráð til þátttöku í ár. Guðrún mun syngja
með fremstu listamönnum þjóðarinnar í Höllinni 10. desember.
Níu ára jólastjarna
frá Grindavík
Miðasala í síma 528 5050, á harpa.is og tix.is
harpa.is/hbr
Ein vinsælasta ballettsýning allra tíma
Hnotu-
brjóturinn
St. Petersburg
Festival Ballet
ásamt Sinfóníu -
hljómsveit Íslands
Hátíðarballettinn frá Pétursborg
snýr aftur og flytur eina fegurstu
perlu dansbókmenntanna
í viðhafnarbúningi ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands
í Eldborg. Í ár mun flokkurinn
einnig sýna í Hofi á Akureyri
ásamt Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands þann 22. nóvember.
Eldborg
24. nóvember
kl. 19:30
25. nóvember
kl. 19:30
26. nóvember
kl. 13:00 & 17:00
Börn 12 ára og yngri fá
50% afslátt af miðaverði
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r82 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
C
-E
5
F
C
1
B
6
C
-E
4
C
0
1
B
6
C
-E
3
8
4
1
B
6
C
-E
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K