Fréttablaðið - 25.11.2016, Qupperneq 52
Borghildur sækir innblástur til
Íslands enda elskar hún að ganga
á fjöll og reynir að fara eina stóra
ferð hvert sumar. „Ég læt hverja
línu heita eftir þeim stað sem ég
hef heimsótt. Fyrir mynstrin í
síðustu línu notaði ég til dæmis
form úr snjóalögum í fjöllunum
á Laugaveginum, teiknaði þau
upp með bleki og blandaði þeim
við yfir borðsmyndir sem ég tók
í ferðinni,“ segir Borghildur en
nýjasta lína hennar ber nafn-
ið Vondugil eftir gili sem gengið
er um á Laugaveginum að Fjalla-
baki. „Þegar kemur að sniðum,
stemningu og litavali get ég fund-
ið innblástur nánast alls staðar.
Hvort sem er í götutísku, í kvik-
myndum, frá gömlum myndum
eða myndlist. Ég nota internet-
ið líka mikið og er stanslaust að
vista myndir sem ég finn og sæki
svo í þegar ég byrja að hanna.“
FLÍKUR MEÐ LÁGT KOLEFNIS-
SPOR
En hver er hugmyndafræðin á bak
við hönnunina? „Ég legg áherslu
á að flíkurnar séu klæðilegar,
þægilegar, vandaðar og áhuga-
verðar. Framleiðslan fer öll fram
í Evrópu vegna þess að ég vil vita
hvaðan flíkurnar koma, hverjir
framleiða þær og við hvaða að-
stæður. Ullarpeysurnar eru fram-
leiddar á Íslandi því ég vil styðja
innlenda framleiðslu og það skipt-
ir mig máli að geta boðið upp á
flíkur með lágt kolefnisspor,“
svarar Borghildur og bætir við að
Milla Snorrason sendi aðeins frá
sér eina línu á ári. „Ástæðan er
meðal annars sú að ég trúi ekki á
hraðann í tískuheiminum, ég held
að hann sé hvorki nauðsynlegur
né góður fyrir neinn. Mér finnst
ekki sjálfri að fólk eigi að end-
urnýja fataskápinn sinn tvisvar
eða jafnvel fjórum sinnum á ári
og ég hef engan áhuga á að hvetja
til óhóflegrar neyslu,“ segir hún
með áherslu. Auk þessi noti hún
einungis náttúruleg efni. „Bæði af
því að mér finnst það fallegra og
þægilegra en einnig vegna þess að
gerviefni virka oft eins og plast
fyrir umhverfið og brotna mjög
hægt niður.“
ENDURSPEGLAR EIGIN FATASTÍL
Borghildur segir Millu Snorrason
endurspegla sinn eigin fatastíl.
„Ég hanna fyrst og fremst fyrir
sjálfa mig en máta samt flíkurnar
líka í huganum á ýmsar vinkonur
mína og jafnvel mömmu mína og
vinkonur hennar.“
Uppáhaldshönnuður Borghild-
ur hefur lengi verið Dries Van
Noten en Miuccia Prada og Consu-
elo Cast iglioni sem hannar fyrir
Marni hafa líka lengi verið í uppá-
haldi. „Svo eru allir hönnuðirnir í
Kiosk æðislegir!“ segir Borghild-
ur glaðlega en flíkur hennar eru
til sölu í versluninni.
MIKIL VIÐURKENNING
Borghildur segir það hafa mikla
þýðingu fyrir sig að fá styrk á
borð við þann sem hún fékk úr
Hönn unar sjóði á dögunum. „Það
er bæði mikil viðurkenning fyrir
mig að fagfólk eins og þau hjá
Hönnunarsjóði hafi trú á því sem
ég er að gera og svo léttir það gíf-
urlega undir. Fatahönnun er virki-
lega dýr bransi og það er mjög
auðvelt að fara útbyrðis í kostn-
aðarhliðinni.“
ÝMISLEGT Á DÖFINNI
Framleiðsla nýjustu línunnar,
Vondugila, hefur átt hug Borg-
hildar undanfarnar vikur en
þriðja sendingin af flíkunum
kemur í Kiosk fyrir jólin.
„Síðan er ég að vinna að línunni
sem ég fékk styrk til að gera. Hún
heitir Uxatindar og er unnin út
frá ferð sem ég fór með vinkonum
mínum í sumar þar sem við geng-
um um Fjallabak nyrðra í nokkra
daga. Ég mun sýna hana á vöru-
sýningu í Kaupmannahöfn í byrj-
un febrúar á næsta ári svo það er
feikinóg vinna fram undan.“
„Milla Snorrason sendir aðeins frá sér eina línu á ári. Ástæðan er meðal annars sú
að ég trúi ekki á hraðann í tískuheiminum, ég held hann sé hvorki nauðsynlegur né
góður fyrir neinn,“ segir Borghildur. MYND/EYÞÓR
Nýjasta lína Millu Snorrason heitir Vondugil eftir gili sem gengið er um á Laugaveginum að Fjallabaki. MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR
OF MIKILL HRAÐI Í TÍSKUHEIMINUM
Borghildur Gunnarsdóttir, sem hannar undir merkinu Milla Snorrason, var ein af sex sem hlutu hæsta styrk í úthlutun
Hönnunarsjóðs á dögunum. Henni er umhugað um umhverfið og telur hraðann í tískuheiminum ekki góðan fyrir neinn.
2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R8 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ I ∙ L Í F S S T Í L L
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
D
-2
B
1
C
1
B
6
D
-2
9
E
0
1
B
6
D
-2
8
A
4
1
B
6
D
-2
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K