Fréttablaðið - 25.11.2016, Side 35
Í DAG
Bergur Ebbi
Oxford-orðabókin hefur valið orð ársins á alþjóða-vettvangi. Orðið er „post-truth“. Það hefur mikið verið
notað af fjölmiðlum í tengslum við
pólitík. Sem dæmi má nefna raka-
lausar lygar Donalds Trump um
að Barack Obama sé fæddur utan
Bandaríkjanna eða málflutning
Brexit-stuðningsmanna um að vera
Bretlands í Evrópusambandinu hafi
kostað skattgreiðendur þar í landi
350 milljónir punda vikulega. Þetta
er í sjálfu sér rétt. Það er óumdeilan-
legt að stjórnmálamaður eins og
Donald Trump hefur gengið miklu
lengra í að beygja sannleikann og
ljúga blákalt heldur en fyrirrenn-
arar hans á hinu stóra sviði. Það
hefur orðið eðlisbreyting á því hvað
telst boðlegt í stjórnmálaumræðu.
Rosalegur fyrirvari
En horfum á þetta í stærra sam-
hengi. Fjölmiðlar eru iðnir við að
spyrja spurninga eins og hvers
vegna staðreyndir skipti ekki leng-
ur máli. Nefndir hafa verið hlutir
eins og rof milli pólitískrar elítu
og vinnandi fólks, bitleysi hefð-
bundinnar stjórnmálaumræðu og
hin langa hefð fyrir gráu svæði og
hálfsannleika. Það er búið að daðra
svo lengi við lygina að kannski
þykir sumum hreinlega hressilegt
að fá hana ómengaða. Þetta eru
ágætar pælingar en mér finnst þær
ekki svara réttu spurningunni.
Rétta spurningin, að mínu mati,
er hvers vegna leiðsögn fjölmiðla
hafi ekki tekist að stýra fólki frá
ýkjum og útúrsnúningum stjórn-
málamanna. Það er spurning sem
fjölmiðlar geta ekki spurt því hún
varðar þá sjálfa. Hvað eru fjöl-
miðlar að gera vitlaust? Ég ætla
að gerast svo djarfur að segja að
hugtök eins og „post-truth“ séu sjálf
hluti af vandamálinu, hugtök sem
fjölmiðlar nota óspart en hafa tak-
markaða þýðingu.
Að standa með sannleikanum
Hvað þýðir „post-truth“? Að eitt-
hvað sé handan sannleikans, ekki
andstæða sannleikans heldur
uppfyllingarefni sem kemur í hans
stað? Að tími sannleikans sé liðinn?
Eða er hugtakið bara einn stór
fyrirvari sem felur í sér að lygar séu
að sigra sannleikann? Að skilgreina
samtíma sinn sem tímabil „handan
sannleika“ er bara eilítið fallegri
leið til að segja „ég gefst upp“. Hug-
takið er leið til að afsala sér ábyrgð
á ástandinu.
Heimurinn er stútfullur af lygum,
rétt eins og hann hefur alltaf verið.
Það er hlutverk þeirra sem greina
heiminn að finna þessar lygar. Ef
lygar eru orðnar aðgengilegri en
áður og léttara að dulbúa þær þá
þurfa fjölmiðlar að kanna hvers
vegna svo sé. Þeir þurfa að kanna og
greina heiminn en ekki gefa sér þann
gríðarlega fyrirvara að við lifum á
tímum sem séu handan sannleika.
Sannleikurinn getur nefnilega leynst
víða og hann er oft þversagna-
kenndur. Að leita sannleikans er
ekki heldur aðeins fólgið í því að elta
rökin og staðreyndirnar. Sannleikur-
inn býr líka í tilfinningum okkar.
Að standa með skoðun sinni og vera
óhræddur við að kalla lygar sínu
rétta nafni, er líka leiðin að sannleik-
anum. „Post-truth“ er aum leið til að
horfast í augu við lygina.
Lífsleiðir aristókratar
Að mínu mati ætti ekki að nota
óljós hugtök eins og „post-truth“ til
að skilgreina samtímann. Það sem
skilgreinir okkar tíma frekar en
nokkuð annað er áberandi skortur
á að taka ábyrgð á meiningu
hluta. Fjölmiðlar ættu ekki að
vera undanskildir því. Ábyrgðinni
á túlkun frétta og staðreynda er
sífellt skotið til lesenda. Fyrir-
sagnir með beinum tilvitnunum
verða algengari. Málefni eru sögð
„umdeild“ í stað þess að afstaða sé
tekin um hvað sé rétt. Lesendur eiga
að mynda sér sína eigin skoðun
en varpa ábyrgðinni einnig frá sér
með því að snúa fréttum upp í hálf-
kæring. Niðurstaðan er sú að það er
eins og annar hver maður sé orðinn
að lífsleiðum aristókrata. Margir
jafnaldrar mínir gætu varla myndað
sér skoðun á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu án þess að hljóma eins og
Oscar Wilde, fullir af djúpstæðum
efa um eiginlegan tilgang skoðana
sinna. Ég finn þennan dofa sjálfur.
Ég hef sjaldan djúpar skoðanir
á hlutum, en þó koma einstaka
sinnum skýrar glætur í kollinn. Ein-
staka sinnum þekki ég allavega lygi
þegar ég sé hana.
„Post-truth“ er lygi. Það er lygi
fjölmiðlanna sjálfra. Við lifum ekki
handan sannleikans. Við lifum bara
ekki á sömu tímum og fyrir tuttugu
árum og það þarf öðruvísi vinnu-
brögð til að vinsa lygina frá. Það er
ekki nóg fyrir fjölmiðla að hringja
í sérfræðinga til að finna sannleik-
ann. Það er ekki heldur nóg að þylja
upp staðreyndir, fá álit fjöldans eða
pikka upp athugasemdir af sam-
félagsmiðlum. Til að finna sannleik-
ann þarf greiningar sem setja fréttir
í samhengi, gefa þeim meiningu og
standa með þeirri meiningu. Það er
offramboð á hér um bil öllu öðru.
Handan sannleikans
Til að finna sannleikann þarf
greiningar sem setja fréttir í
samhengi, gefa þeim mein-
ingu og standa með þeirri
meiningu. Það er offramboð
á hér um bil öllu öðru.
BLACK FRIDAY
25. NÓVEMBER
VERÐ
39.900 KR.
ENGAR
ELDTUNGUR
MINNI
GASNOTKUN
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
BETRI STJÓRN
Á HITA
SAFARÍKARI
MATUR
100%
JAFN HITI
Skoðaðu Big Easy á rafha.is
Char-Broil
BIG EASY er allt í
senn grill, steikarofn og
reykofn. Steikingarkarfa, þar
sem hægt er að steikja allt að
11 kg kalkún, fylgir með.
SUÐURLANDSBRAUT 16 | 108 REYKJAVÍK | 588 0500 | RAFHA.IS
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33F Ö S T U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
D
-2
1
3
C
1
B
6
D
-2
0
0
0
1
B
6
D
-1
E
C
4
1
B
6
D
-1
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K