Fréttablaðið - 25.11.2016, Side 90
Taylor Swift skellti sér í leikhús á
miðvikudagskvöldið, en vestra er
það hið svokallaða Thanks giving
Eve – kvöldið fyrir þakkargjörðar-
hátíðina og halda menn gjarnan
upp á það. Þar sá hún hinn gríðar-
vinsæla og margverðlaunaða söng-
leik Kinky Boots á Broadway og tók
síðan nokkrar myndir með aðal-
stjörnu sýningarinnar og góðvini
sínum, Todrick Hall, sem leikur
Lolu.
Todrick Hall leikur þar aðalhlut-
verkið, Lolu, en hann er nýkominn
inn í sýninguna. Áður hafði Hall
gert garðinn frægan á YouTube en
þar er hann gríðarlega vinsæll fyrir
meðal annars stór „flash mob“.
Hann er einnig með eigin þátt á
sjónvarpsstöðinni MTV, en það eru
heimildarþættir þar sem honum er
fylgt eftir. Hall hefur verið gesta-
dómari í hinum gríðarvinsælu
þáttum RuPaul, Drag Race, og aðal-
dómarinn í All Star-þáttunum.
Kinky Boots hefur verið sýnt á
Broadway síðan 2013 en sýningin
hefur meðal annars hlotið sex
Tony-verðlaun – bæði fyrir besta
söngleikinn og bestu tónlistina,
en það er Cyndi Lauper sem semur
tónlistina og textana og er þetta
hennar fyrsta verkefni sem höf-
undur á Broadway – ótrúlegt en
satt.
Söngleikurinn er byggður á
samnefndri kvikmynd frá 2005
og fjallar um mann sem erfir skó-
verksmiðju og stofnar til vináttu
við kabarettlistamanninn og drag-
drottninguna Lolu.
Taylor Swift fer í leikhús í tilefni þakkargjörðarhátíðarinnar
Taylor Swift og Todrick Hall eru stór-
góðir vinir og smelltu af nokkrum
myndum þegar þau hittust á Broadway.
BYRJAÐU
JÓLAINNKAUPIN
SNEMMA
Í dag, föstudaginn 25. nóvember, verða ýmsar verslanir með
vörur á frábærum afslætti. Nýttu Black Friday áhyggjulaus
og borgaðu reikninginn 1. febrúar 2017.
25.
NÓV
EMB
ER
Þú borgar aðeins 195 kr.
tilkynningar- og greiðslugjald
(ef fjárhæð er yfir 3.000 kr., annars
0 kr.) og 3,95% lántökugjald.
Kynntu þér jólareikning
Netgíró á www.netgiro.is
Mannanafnanefnd hefur úrskurðað
hvaða nöfn bætast í flóru nafna
fyrir verðandi foreldra að velja úr og
fólk sem vill skipta um nafn. Aðeins
einu nafni var hafnað að þessu sinni
en það var nafnið Thalía. Í úrskurð-
inum segir að í nafninu Thalía reyni
á skilyrði að það sé ritað í samræmi
við almennar ritreglur íslensks máls
nema hefð sé fyrir öðrum rithætti
þess.
Ritháttur nafnsins er ekki í sam-
ræmi við almennar ritreglur íslensks
máls enda er samstafan ‘th’ ekki
notuð í íslenskri réttritun, hvorki til
að tákna ‘t’ né ‘þ’ þótt hún komi fyrir
í nokkrum mannanöfnum sem hafa
unnið sér hefð. Aðeins sé heimilt
að samþykkja nafnið ef umbeðinn
ritháttur þess telst hefð samkvæmt
lögum um mannanöfn.
Þau nöfn sem voru samþykkt
voru Þrymur, Reynarð, Korri, Lalíla,
Gabriela, Hector og Marlon. Þá var
samþykkt eiginnafnið Elizabet sem
sex konur bera samkvæmt upp-
lýsingum frá Þjóðskrá Íslands. Er
sú elsta fædd 1960. Nafnið kemur
fyrir í níu manntölum frá 1703-
1920. Nafnið Elizabet er því hefðað
í skilningi laga um mannanöfn.
Kjartan Ólafsson fékk einnig að taka
upp millinafnið Vídó vegna þess að
fjölskyldan hafi ávallt notað nafnið.
Nafnið sé réttlætanlegt samkvæmt
mannanafnalögum, eins og ber
að túlka það ákvæði í ljósi grund-
vallarreglna um friðhelgi einkalífs,
segir meðal annars í rökstuðningi
nefndarinnar. – bbh
Elizabet
löglegt nafn
Elísabet Bretadrottning er trúlega ein
sú frægasta sem ber það nafn.
Mynd/GETTy
Leikkonan Elizabeth Banks er önnur
fræg Elísabet. Mynd/GETTy
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r72 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
C
-C
3
6
C
1
B
6
C
-C
2
3
0
1
B
6
C
-C
0
F
4
1
B
6
C
-B
F
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K