Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 35

Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 35
Í DAG Bergur Ebbi Oxford-orðabókin hefur valið orð ársins á alþjóða-vettvangi. Orðið er „post-truth“. Það hefur mikið verið notað af fjölmiðlum í tengslum við pólitík. Sem dæmi má nefna raka- lausar lygar Donalds Trump um að Barack Obama sé fæddur utan Bandaríkjanna eða málflutning Brexit-stuðningsmanna um að vera Bretlands í Evrópusambandinu hafi kostað skattgreiðendur þar í landi 350 milljónir punda vikulega. Þetta er í sjálfu sér rétt. Það er óumdeilan- legt að stjórnmálamaður eins og Donald Trump hefur gengið miklu lengra í að beygja sannleikann og ljúga blákalt heldur en fyrirrenn- arar hans á hinu stóra sviði. Það hefur orðið eðlisbreyting á því hvað telst boðlegt í stjórnmálaumræðu. Rosalegur fyrirvari En horfum á þetta í stærra sam- hengi. Fjölmiðlar eru iðnir við að spyrja spurninga eins og hvers vegna staðreyndir skipti ekki leng- ur máli. Nefndir hafa verið hlutir eins og rof milli pólitískrar elítu og vinnandi fólks, bitleysi hefð- bundinnar stjórnmálaumræðu og hin langa hefð fyrir gráu svæði og hálfsannleika. Það er búið að daðra svo lengi við lygina að kannski þykir sumum hreinlega hressilegt að fá hana ómengaða. Þetta eru ágætar pælingar en mér finnst þær ekki svara réttu spurningunni. Rétta spurningin, að mínu mati, er hvers vegna leiðsögn fjölmiðla hafi ekki tekist að stýra fólki frá ýkjum og útúrsnúningum stjórn- málamanna. Það er spurning sem fjölmiðlar geta ekki spurt því hún varðar þá sjálfa. Hvað eru fjöl- miðlar að gera vitlaust? Ég ætla að gerast svo djarfur að segja að hugtök eins og „post-truth“ séu sjálf hluti af vandamálinu, hugtök sem fjölmiðlar nota óspart en hafa tak- markaða þýðingu. Að standa með sannleikanum Hvað þýðir „post-truth“? Að eitt- hvað sé handan sannleikans, ekki andstæða sannleikans heldur uppfyllingarefni sem kemur í hans stað? Að tími sannleikans sé liðinn? Eða er hugtakið bara einn stór fyrirvari sem felur í sér að lygar séu að sigra sannleikann? Að skilgreina samtíma sinn sem tímabil „handan sannleika“ er bara eilítið fallegri leið til að segja „ég gefst upp“. Hug- takið er leið til að afsala sér ábyrgð á ástandinu. Heimurinn er stútfullur af lygum, rétt eins og hann hefur alltaf verið. Það er hlutverk þeirra sem greina heiminn að finna þessar lygar. Ef lygar eru orðnar aðgengilegri en áður og léttara að dulbúa þær þá þurfa fjölmiðlar að kanna hvers vegna svo sé. Þeir þurfa að kanna og greina heiminn en ekki gefa sér þann gríðarlega fyrirvara að við lifum á tímum sem séu handan sannleika. Sannleikurinn getur nefnilega leynst víða og hann er oft þversagna- kenndur. Að leita sannleikans er ekki heldur aðeins fólgið í því að elta rökin og staðreyndirnar. Sannleikur- inn býr líka í tilfinningum okkar. Að standa með skoðun sinni og vera óhræddur við að kalla lygar sínu rétta nafni, er líka leiðin að sannleik- anum. „Post-truth“ er aum leið til að horfast í augu við lygina. Lífsleiðir aristókratar Að mínu mati ætti ekki að nota óljós hugtök eins og „post-truth“ til að skilgreina samtímann. Það sem skilgreinir okkar tíma frekar en nokkuð annað er áberandi skortur á að taka ábyrgð á meiningu hluta. Fjölmiðlar ættu ekki að vera undanskildir því. Ábyrgðinni á túlkun frétta og staðreynda er sífellt skotið til lesenda. Fyrir- sagnir með beinum tilvitnunum verða algengari. Málefni eru sögð „umdeild“ í stað þess að afstaða sé tekin um hvað sé rétt. Lesendur eiga að mynda sér sína eigin skoðun en varpa ábyrgðinni einnig frá sér með því að snúa fréttum upp í hálf- kæring. Niðurstaðan er sú að það er eins og annar hver maður sé orðinn að lífsleiðum aristókrata. Margir jafnaldrar mínir gætu varla myndað sér skoðun á fiskveiðistjórnunar- kerfinu án þess að hljóma eins og Oscar Wilde, fullir af djúpstæðum efa um eiginlegan tilgang skoðana sinna. Ég finn þennan dofa sjálfur. Ég hef sjaldan djúpar skoðanir á hlutum, en þó koma einstaka sinnum skýrar glætur í kollinn. Ein- staka sinnum þekki ég allavega lygi þegar ég sé hana. „Post-truth“ er lygi. Það er lygi fjölmiðlanna sjálfra. Við lifum ekki handan sannleikans. Við lifum bara ekki á sömu tímum og fyrir tuttugu árum og það þarf öðruvísi vinnu- brögð til að vinsa lygina frá. Það er ekki nóg fyrir fjölmiðla að hringja í sérfræðinga til að finna sannleik- ann. Það er ekki heldur nóg að þylja upp staðreyndir, fá álit fjöldans eða pikka upp athugasemdir af sam- félagsmiðlum. Til að finna sannleik- ann þarf greiningar sem setja fréttir í samhengi, gefa þeim meiningu og standa með þeirri meiningu. Það er offramboð á hér um bil öllu öðru. Handan sannleikans Til að finna sannleikann þarf greiningar sem setja fréttir í samhengi, gefa þeim mein- ingu og standa með þeirri meiningu. Það er offramboð á hér um bil öllu öðru. BLACK FRIDAY 25. NÓVEMBER VERÐ 39.900 KR. ENGAR ELDTUNGUR MINNI GASNOTKUN Í ALLRI VEÐRÁTTU STYTTRI ELDUNARTÍMI BETRI STJÓRN Á HITA SAFARÍKARI MATUR 100% JAFN HITI Skoðaðu Big Easy á rafha.is Char-Broil BIG EASY er allt í senn grill, steikarofn og reykofn. Steikingarkarfa, þar sem hægt er að steikja allt að 11 kg kalkún, fylgir með. SUÐURLANDSBRAUT 16 | 108 REYKJAVÍK | 588 0500 | RAFHA.IS S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33F Ö S T U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 2 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 6 D -2 1 3 C 1 B 6 D -2 0 0 0 1 B 6 D -1 E C 4 1 B 6 D -1 D 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.