Fréttablaðið - 05.10.2016, Síða 2
Veður
Suðaustan 10-23 m/s, hvassast við suð-
vestur- og vesturströndina. Skúrir um
landið sunnan- og vestanvert, en fer að
rigna þegar líður á daginn. Skýjað með
köflum og þurrt að mestu um landið
norðaustanvert. sjá síðu 22
samfélag Meira en tvöfalt fleiri
foreldrar hafa verið sviptir for-
sjá barna sinna á síðustu tveimur
árum en árin þar á undan. Barna-
verndarnefndir hafa stóraukið
kröfu sína um sviptingu forsjár
fyrir dómi en stórt stökk má sjá
í tölum Barnaverndarstofu árið
2014 sem heldur áfram árið 2015.
Bráðabirgðatölur fyrir 2016 benda
til að þessi fjölgun haldi áfram.
Frá 2004 til 2013 kröfðust
barnaverndarnefndir þess að for-
eldrar væru sviptir forsjá tæplega
þrettán barna á ári að meðaltali. Á
því tímabili var að hámarki krafist
forsjársviptingar vegna sautján
barna.
Árið 2014 var hins vegar krafist
forsjársviptingar yfir 34 börnum
og árið 2015 yfir 33 börnum. Fyrstu
sex mánuði þessa árs kröfðust
barnaverndarnefndir forsjársvipt-
ingar yfir 14 börnum sem þykir
benda til þess að svipaður fjöldi
verði í ár og síðustu tvö ár.
Ástæða sviptinganna er oftast
vanræksla barna en ekki ofbeldi á
heimilum.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, segir þróun-
ina umhugsunarverða. „Ég fæ ekki
betur séð en að þessar tölur gefi
mjög sterkar vísbendingar um
viðhorfsbreytingu innan barna-
verndar. Ég held að þolmörkin
séu að minnka og menn vilja sjá
afdráttarlausa íhlutun í þessi mál.“
Bragi setur jafnframt þá kenn-
ingu fram að löggilding Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna
árið 2013 hafi skilað sér í bættu
vinnulagi þar sem barnaverndar-
starfsmenn séu nú skuldbundnir til
að ræða við börn og fá fram þeirra
Tvöfalt fleiri kröfur
um sviptingu forsjár
Barnavernd krafðist þess að foreldrar yrðu sviptir forsjá barna sinna í ríflega tvö-
falt meiri mæli á síðasta ári en árin þar á undan. Flest málin tengjast vanrækslu
barna. Forstjóri Barnaverndarstofu segir enga einfalda skýringu á fjölguninni.
✿ Krafa Barnaverndar fyrir dómi um forsjársviptingu
Heildarfjöldi barna 2011-2016
2011 2012 2013 2014 2015 2016
35
30
25
20
15
10
5
0
17 16
8
34 33
14 *
* Bráðabirgðatala
fyrstu 6 mánuði árs
Á leið vestur á Strandir
Kvikmyndatökulið er að koma sér fyrir hér á landi í tengslum við tökur á myndinni Justice League sem fara fram á Djúpavík. Fjöldi fólks tekur þátt í
upptökunum og gistir fólkið í húsbílum meðan á verkefninu stendur. Ljósmyndari Fréttablaðsins varð var við bílana þegar þeir héldu í Hvalfjarðar-
göngin á leið vestur. Fréttablaðið/Vilhelm
NeyteNdamál Neytendastofa
hefur lagt 500 þúsund króna sekt
á verslunina Grillbúðina fyrir
að auglýsa grill á afmælistilboði
lengur en heimilt er. Í ákvörðun-
inni kemur fram að Grillbúðin
hafi boðið grillin á lækkuðu verði
í að minnsta kosti níu vikur. Þegar
vara hefur verið auglýst á tilboði í
sex vikur er ekki hægt að segja að
hún sé á tilboðsverði.
Neytendastofa segir að auk þess
að brjóta gegn reglum sem gilda
um útsölur og aðra sölu þar sem
selt er á lækkuðu verði, hafi Grill-
búðin jafnframt brotið gegn eldri
ákvörðun Neytendastofu frá árinu
2012. – jhh
Tilboðið var
auglýst of lengi
sjónarmið í öllum málum er varða
þau.
Þó sé ekki hægt að líta fram hjá
því að starfsfólk barnaverndar
kvarti undan vinnuálagi sem Bragi
óttast að þýði minni tíma til stuðn-
ingsúrræða barnaverndar áður en
gripið er til þess neyðarúrræðis
sem svipting forsjár er.
„Ég verð að játa að mér finnst
þessi fjölgun ganga þvert gegn
markmiðum barnaverndar sem er
að varðveita fjölskylduna og efla
foreldrafærni. En svo er hægt að
túlka þetta á hinn veginn, að þetta
sé vísbending um að barnaverndar-
kerfið sé að vakna upp af vondum
dvala. Menn séu hreinlega ekki til-
búnir að horfa lengur upp á að mál
malli í kerfinu í áraraðir.“ – snæ
alÞINgI Til greina kemur að kvarta
til Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu, ÖSE, ef ríkisstjórnarflokk-
arnir halda áfram kosningabaráttu
á meðan minnihlutinn sinnir þing-
störfum. Þetta segir þingmaður
Samfylkingarinnar.
„Þetta er seinni starfsáætlunin
sem heldur ekki og nú er sú staða
komin upp að stjórnin er í raun
fallin á tíma,“ segir Árni Páll Árna-
son. „Stjórnin stendur frammi fyrir
því sama og síðasta ríkisstjórn, að
klára verður þau mál sem sátt er um
en sleppa öðru.“
Þingmaðurinn segir að það skekki
samkeppnina í aðdraganda kosn-
inga að stjórnarmeirihlutinn nýti
sér yfirburðastöðu sína til að heyja
kosningabaráttu á meðan minni-
hlutinn er staddur á þinginu.
„Stjórnarflokkar sem halda þing-
inu áfram þrátt fyrir að starfsáætlun
sé búin, hirða ekki um að sinna laga-
skyldum um að vera sjálfir í þinginu,
til þess eins að hafa áhrif á mögu-
leika stjórnarandstöðu til að fara í
kosningabaráttu, þeir eru ekki að
uppfylla lýðræðislegar grundvallar-
reglur,“ segir Árni Páll.
„Ef menn sjá ekki hvers konar
rugl er hér í gangi þá blasir það við
að við verðum að biðja ÖSE um að
senda hingað kosningaeftirlit sam-
bærilegt því sem þekkist í löndum
sem við viljum helst ekki bera okkur
saman við.“ – jóe
Árni Páll
íhugar að
kvarta
Þetta er seinni
starfsáætlunin sem
heldur ekki og nú er sú staða
komin upp að
stjórnin er í
raun fallin á
tíma.
Árni Páll Árnason
Þegar vara hefur verið
auglýst á tilboðsverði í sex
vikur er ekki hægt að segja
að hún sé á tilboði.
Ég held að þol-
mörkin séu að
minnka og menn vilja sjá
afdráttarlausa
íhlutun í þessi
mál.
Bragi Guðbrands-
son, forstjóri
Barnaverndastofu
5 . o K t ó B e r 2 0 1 6 m I ð V I K u d a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
0
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
C
F
-F
C
F
4
1
A
C
F
-F
B
B
8
1
A
C
F
-F
A
7
C
1
A
C
F
-F
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K