Fréttablaðið - 18.11.2016, Side 2
Veður
Norðan 13-20 og snjókoma eða él um
landið norðanvert, en bjart með köflum
og þurrt að kalla sunnan til. Hægari og
norðvestlægari seinnipartinn og dregur
úr ofankomu um tíma, einkum á Norð-
austurlandi. sjá síðu 28
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
HÁGÆÐA JÓLALJÓS
LED
Mikið úrval vandaðra LED útisería
fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimiliFrá Svíþjóð
Opið virka daga kl. 11-18
og laugardaga frá 26. nóv. Grillbúðingrillbudin.is
VELDU
SEM END
AST
OG ÞÚ SPARA
R
JÓLAL
JÓS
Viðskipti Hagar hafa undirritað
samning um kaup á öllum hlutum í
Lyfju af Ríkissjóði. Kaupsamningur-
inn var undirritaður í kjölfar við-
ræðna um tilboð Haga í opnu sölu-
ferli sem Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar
annaðist fyrir hönd seljanda.
Heildarverðmæti Lyfju er um
6,7 milljarðar króna, að því er fram
kemur í tilkynningu. Verðmat Haga
er byggt á ársreikningum félagsins
undanfarin ár og rauntölum rekstrar
fyrstu níu mánaða ársins 2016.
Lyfja rekur samtals 39 apótek, útibú
og verslanir undir merkjum Lyfju,
Apóteksins og Heilsuhússins og var
heildarvelta fyrirtækisins um níu
milljarðar króna á síðasta ári.
Kaupsamningurinn var undirrit-
aður með fyrirvara um niðurstöður
áreiðanleikakönnunar og samþykki
Samkeppniseftirlitsins. Ef þeir fyrir-
varar ganga eftir má gera ráð fyrir því
að gengið verði frá viðskiptunum
fyrir fyrsta júlí á næsta ári. – þea
Hagar kaupa allt
hlutafé í Lyfju
efnahagsmál Samtök atvinnu-
lífsins kalla eftir því að stjórnvöld
taki upp viðræður við Seðlabank-
ann um að lækka vexti.
Hannes G. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir í grein á
vef samtakanna að gengi krón-
unnar fari að óbreyttu hækk-
andi þar til komið verði í óefni.
Ný ríkisstjórn verði að taka mið
af þenslunni í efnahagslífinu og
tryggja frið á vinnumarkaði.
Meðal þess sem samtökin telja
mikilvægt er að lækka trygginga-
gjald, hafna launahækkunum
kjara ráðs og jafna lífeyrisrétt-
indi. – hh
Hafa áhyggjur af
frekari hækkun
Viðskipti „Eimskip heldur áfram
að skila góðum árangri og þetta er
besti þriðji ársfjórðungur í rekstri
félagsins frá árinu 2009 hvað
varðar rekstrartekjur, EBITDA,
EBIT og hagnað,“ segir Gylfi Sig-
fússon, forstjóri Eimskips. Upp-
gjör félagsins fyrir fyrstu níu
mánuði ársins var birt í gær.
Rekstrartekjur fyrirtækisins námu
134,1 milljón evra, eða 16,2 millj-
örðum, á fyrstu níu mánuðum
ársins og jukust um 4,3 milljónir
evra (520 milljónir
króna) á milli ára.
EBITDA nam 17,8
milljónum evra (2,2
milljörðum) og hækk-
a ð i u m 1 , 4
milljónir evra
(169 millj-
ónir króna)
eða 8,6%.
– jhh
Besti árangur í
mörg ár
akureyri Börn á Akureyri fædd í
apríl árið 2015 gætu fengið leik-
skólapláss í ágúst á næsta ári, þá
rúmlega tveggja ára gömul. Fullt er
hjá öllum dagforeldrum bæjarins
og foreldrar standa því ráðalausir
og launalausir heima við og komast
ekki til vinnu þegar fæðingarorlofi
lýkur.
Akureyrarbær skuldbindur sig
til þess að taka öll börn inn á leik-
skóla á öðru ári þeirra. Ljóst er sam-
kvæmt þessu að bærinn stendur
ekki við skuldbindingar sínar
gagnvart íbúum bæjarins. „Þetta
er vandi sem kemur í sveiflum. Við
höfum verið að skoða þetta innan
bæjarkerfisins. Við sjáum vandann
og við þurfum að vega og meta
hvað sé best að gera til að mæta
þörfum íbúa,“ segir Guðmundur
Baldvin Guðmundsson, formaður
bæjarráðs Akureyrar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Akureyrarbæ var öllum börnum
sem fædd eru frá janúar til mars
árið 2015 boðið pláss á leikskóla
nú í haust. Þau börn sem fædd eru
síðar komast ekki á leikskóla fyrr
en haustið 2017 nema að pláss
losni af öðrum ástæðum fyrr. Mikil
óánægja er meðal foreldra sem
aðeins fá níu mánaða fæðingaror-
lof, að annað foreldrið þurfi að vera
heima við í langan tíma launalaust
á meðan beðið er eftir plássi.
Guðmundur Baldvin segir leik-
skólaplássið ekki vera sprungið.
„Plássið er til staðar. Þetta er hins
vegar spurning um fjármagnið sem
veitt er í málaflokkinn. En það eru
sveiflur í þessu og við þurfum að
vega og meta hvað er best að gera
í stöðunni.“
Þórunn Anna Elíasdóttir, móðir
barns sem fætt er 2015, segir
stöðuna óásættanlega. „Þessa
stöðu er ekki hægt að sætta sig
við til lengdar. Ég hef óskað eftir
fundi með formanni bæjarráðs og
bæjarstjóra vegna málsins. Margir
foreldrar eru áhyggjufullir þar sem
þetta gæti haft mikil neikvæð áhrif
á heimilisbókhaldið hjá mörgum
fjölskyldum,“ segir Þórunn Anna.
Miklar breytingar eru áform-
aðar í leikskólamálum á Akureyri
á næstu misserum. Loka á tveimur
rótgrónum leikskólum í bænum
og stendur til að byggja nýjan leik-
skóla við Glerárskóla norðarlega í
bænum. sveinn@frettabladid.is
Einungis lítill hluti
barna fær leikskólavist
Ekki náðist að taka inn á leikskóla Akureyrar nema brot af 2015 árganginum í
haust. Börn fædd í apríl 2015 verða næstum tveggja og hálfs árs þegar þau loks
komast inn í menntastofnun. Pláss til segir formaður bæjarráðs en peninga skorti.
Foreldrar á Akureyri standa ráðalausir og launalausir heima því að ekki er pláss hjá
dagforeldrum. Formaður bæjarráðs segir skorta fjármagn. FréttAblAðið/Auðunn
Þórunn Anna
Elíasdóttir, íbúi á
Akureyri
Guðmundur
baldvin
Guðmundsson
Gylfi Sigfússon
Það er stundum sagt að jólin séu hátíð kaupmannsins. Það er satt að því leyti að hjá flestum þeirra er desember veltuhæsti mánuður ársins. Í
gær var verið að undirbúa verslunina Cintamani í Bankastræti fyrir jólaösina. FréttAblAðið/EPA
Undirbúningur fyrir jólaösina
Samtök atvinnulífsins
telja mikilvægt að lækka
tryggingagjald, hafna hækk-
unum kjararáðs og jafna
lífeyrisréttindin.
1 8 . n ó V e m b e r 2 0 1 6 f Ö s t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
4
-E
F
2
4
1
B
5
4
-E
D
E
8
1
B
5
4
-E
C
A
C
1
B
5
4
-E
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K