Fréttablaðið - 18.11.2016, Page 8
SP
A
R
IÐ 50%
Á VÖLDUM XMAS HITS
FÖSTUDAGUR TIL SUNNUDAGS 18.-20.11.2016
OPNUNARTÍMI:
Smáratorg: 11:00-19:00 föstudagur, 10:00-18:00 laugardag og 12:00-18:00 sunnudag.
Korputorg: 11:00-18:30 föstudagur, 10:00-18:00 laugardag og 12:00-18:00 sunnudag.
Glerártorg: 10:00-18:30 föstudagur, 10:00-17:00 laugardag og 13:00-17:00 sunnudag.
heilbrigðismál Rík ástæða er til að
auka enn áróður fyrir notkun bíl-
belta, er ein meginniðurstaða rann-
sóknar um mænuskaða af völdum
slysa á Íslandi. Rúmlega helmingur
þeirra sem fengu mænuskaða eftir
bílslys á fjögurra áratuga tímabili
var ekki í bílbelti, sem þó er talið
stórlega vanáætlað þar sem upplýs-
ingar vantar um mörg umferðarslys.
Páll E. Ingvarsson, sérfræðilæknir
á Grensásdeild Landspítalans, segir
rannsóknina hafa beinst að því að
leita áhættuþátta sem nýta mætti
í forvarnarskyni, en mænuskaði er
meðal alvarlegustu afleiðinga slysa
og ekki hefur tekist að finna lækn-
ingu við.
„Það er sorgleg staðreynd að enn
þann dag í dag er hátt hlutfall þeirra
sem hljóta mænuskaða í bílslysum
ekki í bílbeltum. Þessi ofureinfalda
hreyfing getur forðað einstaklingn-
um frá ævilangri fötlun og örkuml-
um. Þetta er svo sorglega einfalt og
við verðum að hamra á því við hvert
tækifæri að fólk noti þetta einfalda
öryggistæki,“ segir Páll og nefnir
jafnframt mikinn kostnað fyrir heil-
brigðiskerfið sem er óþarfur í þessu
samhengi.
Páll nefnir jafnframt að byltur og
föll verði sífellt greinilegri ástæða
þessara alvarlegu meiðsla, og er í
samræmi við að þjóðin er að eldast.
Það skýri að byltur séu í dag að
nálgast að vera ástæðan í helmingi
þessara slysa. „Ástæðan fyrir því að
nálægt 75 prósent mænuskaðaðra
Bílbeltin sorglega oft ekki spennt
Ný rannsókn greinir frá því að 233 einstaklingar hafa komið á Landspítala vegna mænuskaða síðan 1975. Bílveltur í strjálbýli algeng
orsök. Bílbelti hefðu getað skipt sköpum í mörgum slysanna. Fall og tómstundaslys einnig algeng orsök. Slysum fjölgar í góðærinu.
Bílveltur utan þéttbýlis komu oft við sögu þessara alvarlegu slysa – og að fórnarlömbin eru ekki í bílbelti. Myndin tengist frétt-
inni ekki beint. FréttaBlaðið/anton
Þessi ofureinfalda
hreyfing getur
forðað einstaklingnum frá
ævilangri fötlun
og örkumlum.
Páll E. Ingvarsson,
sérfræðilæknir
á LSH
eru karlmenn verður að skrifast á
unga fífldjarfa stráka og glannaskap
þeirra. Þegar fólk dettur og slasar sig
er kynjaskipting nærri því jöfn, en
jafnvel frekar konur,“ segir Páll.
„Rannsóknin sýndi jafnframt
athyglisverðar niðurstöður sem
við kunnum ekki skýringar á. Það
er hvað var gríðarleg aukning á frí-
tímaslysum og fjölgun mænuskaða
þegar góðærið var – sem síðan datt
niður eftir hrun,“ segir Páll en þar
komi við sögu vél- og fjórhjólaslys,
snjósleðaslys og algengt að fólk
detti af hestbaki. Hann segir það
því umhugsunarvert hvort ekki sé
beint samhengi á milli efnahags-
ástands og lífsstíls, og því megi í
alvöru benda fólki á að ganga var-
lega um gleðinnar dyr.
Mænuskaði af völdum slysa hér-
lendis á rannsóknartímabilinu er
að meðaltali 26 á hverja milljón
íbúa á ári, sem er nálægt alþjóðlegu
meðaltali. Eins og allir vita er málið
grafalvarlegt, segir Páll. „Helmingur
þeirra sem hljóta mænuskaða eru
bundnir við hjólastól það sem eftir
er ævinnar. Hinir eru með mikla
máttarminnkun, truflun á hægða-
og blöðrustjórnun og á kynlífsgetu,
svo þetta hefur gríðarleg áhrif á líf
og lífsgæði fólks ævilangt,“ segir Páll.
Höfundar telja mikilvægt að efla
frekar forvarnir í tengslum við bíl-
beltanotkun. svavar@frettabladid.is
233 hlutu mænuskaða
l Læknablaðið [11/2016] birti
niðurstöður rannsóknarinnar
sem náði til áranna 1975 til
2014.
l Á þeim tíma hlutu 233 einstakl-
ingar mænuskaða af völdum
áverka.
l Umferðarslys voru algengasta
orsök mænuskaða, en oftast var
um að ræða bílveltur í dreifbýli.
l Þrír af hverjum fjórum sem
hlutu mænuskaða voru karl-
menn og meðalaldur þessa
hóps sem um ræðir 39 ár.
l Fall var næstalgengasta orsök
mænuskaða en þar var meðal-
aldurinn hæstur.
l Í um þriðjungi slysanna var um
að ræða alskaða á mænu.
l Við útskrift höfðu níu prósent
náð fullum bata.
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U D A g U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
5
-2
A
6
4
1
B
5
5
-2
9
2
8
1
B
5
5
-2
7
E
C
1
B
5
5
-2
6
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K