Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 12
Bandaríkin Demókratar í öldunga- deild Bandaríkjaþings eru að skoða möguleikana á því að starfa með Donald Trump, nýkjörnum forseta, frekar en að fara í hart gegn honum í hverju einasta máli. Bandaríska dagblaðið The New York Times skýrir frá þessu og segir þessa aðferðafræði þingmannanna koma á óvart. Hugmyndin er sú að Demókratar leggi á komandi kjörtímabili áherslu á ýmis þau mál sem Trump hefur sjálfur sagt mikilvæg en stangast verulega á við stefnu Repúblikan- aflokksins. Strax á næstu vikum muni þeir kynna áherslumál sem þeir telja að muni falla Trump í geð og eigi jafnframt að höfða til hinna hvítu kjósenda úr verkamannastétt sem Trump sótti mikilvægasta fylgi sitt til. Þar verði ekki síst efnahagsmálin höfð í forgangi. Demókrataflokkurinn er í miklu uppnámi vegna úrslitanna í forseta- og þingkosningunum í síðustu viku, þar sem Repúblikanar fengu meiri- hluta í báðum deildum þingsins ásamt því að Trump vann sigur í forsetakosningunum. „Það er viðurkennt að það væri mikil skammsýni að kenna bréfi frá FBI um þetta tap eða hvaða ríki Hillary heimsótti,“ hefur The New York Times eftir Amy Klobuchar, öldungadeildarþingmanni Demó- krataflokksins frá Minnesota. Flokkurinn þarf nú að ákveða hvaða afstöðu eigi að taka gagnvart Trump í stjórnarandstöðunni, og þar vilja margir fara í hart gegn Trump í hverju málinu á fætur öðru. Þessi hópur Demókrata, sem The New York Times vitnar til, vill hins vegar fara allt aðra leið. Með því að vinna náið með Trump sé hugsan- lega mögulegt að reka fleyg á milli hans og Repúblikanaflokksins. Hillary Clinton tjáði sig á mið- vikudag í fyrsta sinn opinberlega frá því hún viðurkenndi tap sitt í forsetakosningunum. Hún sagði sér hafa liðið hræðilega eftir að úrslitin lágu fyrir. Hún hafi helst viljað „hnipra sig saman með góða bók og aldrei þurfa að fara út út húsi framar“. Þetta sagði hún á góðgerðarsam- komu fyrir börn, en hvatti fólk jafn- framt til að gefast ekki upp og halda áfram að berjast. „Ég veit að mörg ykkar eru óskap- lega vonsvikin vegna kosningaúr- slitanna. Ég er það líka, meira en ég fæ með orðum lýst,“ sagði hún. „Ég veit að undanfarna viku hafa margir spurt sjálfa sig hvort Bandaríkin séu enn það land sem við héldum að þau væru.“ Hins vegar eigi fólk ekki að missa trúna á Bandaríkin: „Bandaríkin eiga það skilið. Börnin okkar eiga það skilið.“ gudsteinn@frettabladid.is Demókratar skoða samstarf við nýjan Bandaríkjaforseta Í staðinn fyrir að fara í hart gegn Trump í hverju málinu á fætur öðru vilja þingmenn flokksins leggja áherslu á málefni sem hann gæti stutt en Repúblikanar eru lítt hrifnir af. Hillary Clinton segir síðustu daga hafa verið sér erfiða. Helst hafi hún viljað kúra með hundum þeirra hjóna og ekki fara út úr húsi framar. Umhverfismál Geymslusvæðið og Hlaðbær Colas hófu framkvæmdir við losun  malbiksafganga án til- skilinna leyfa og stöðvaði Hafnar- fjarðarbær þær eftir skoðun. Lóðin sem um ræðir er að hluta grófjöfnuð og eru engar sérstakar mengunarráðstafanir til staðar á lóðinni. Síðasta ár hafa safnast upp um 20 þúsund tonn af malbiki til endurvinnslu og er engin útskolun olíuefna sjáanleg í jarðveginum í kringum malbikshauginn. Gert er ráð fyrir að efnið verði malað niður á þessu svæði í janúar til mars 2017. „Við töldum okkur hafa leyfi,“ segir Ástvaldur Óskarsson, framkvæmda- stjóri Geymslusvæðisins, spurður um hvers vegna var farið af stað. „Málið er nú í umfjöllun hjá Hafnar fjarðarbæ. Það var gerð úttekt á þessu af verkfræðistofunni Eflu og nú er bærinn að vinna úr upplýsingunum og við bíðum á meðan,“ segir Ástvaldur.  Hlaðbær-Colas hefur leyfi til að taka á móti og endurvinna mal- bik  og hefur gert það um árabil á sinni lóð. Fyrirtækið hefur tekið við  efni, verktökum að kostnaðarlausu með það í huga að endurvinna það í nýjar blöndur og spara þannig bik, steinefni og orku. En markaðir eru erfiðir þessa stundina og ekki hefur gengið sem skyldi að koma því á markað. Hefur efnið því safn- ast upp á lóð fyrirtækisins. Hlaðbær-Colas fékk leyfi  hjá Geymslusvæðinu til að geyma efnið á lóð fyrirtækisins þangað til markaðurinn glæðist. Lóð Geymslu- svæðisins er skilgreind sem iðnaðar- lóð í gildandi aðalskipulagi Hafnar- fjarðar.  Sigþór Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hlaðbæjar-Colas, segir málið lykta af pólitík. Hann bendir á að vegna plássleysis geti fyrirtækið ekki lengur tekið við efni. „Það safnast meira upp en hefur náðst að nýta. Nú er loks verið að fara að skoða hvað er hægt að gera við allt þetta efni og vinnuhópur kominn á fót. Malbik er 100 pró- sent endurvinnanlegt og Ísland þarf að komast á þann stað sem aðrar þjóðir eru á gagnvart því að endur- vinna malbik,“ segir Sigþór. Hópurinn samanstendur af mal- bikunarfyrirtækjum, Vegagerðinni, sveitarfélögum, Umhverfisstofnun og Sorpu. – bbh Tuttugu þúsund tonn af malbiksafgöngum bíða endurvinnslu heilBrigðismál Sýklalyfjanotkun er sem fyrr hæst á Íslandi miðað við hin Norðurlöndin, en er um miðbik ef miðað er við öll Evrópulönd. Hins vegar er sýklalyfjanotkun hjá dýrum hér á landi áfram ein sú minnsta í Evrópu og hefur minnkað stöðugt frá 2010. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu sóttvarnalæknis um sýklalyfjanotkun hjá mönnum og dýrum. Kostnaður vegna sýklalyfja á verðlagi ársins 2015 var um millj- arður króna, heldur hærri en á árinu 2014 og var hann í fjórða sæti yfir söluverðmæti allra lyfjaflokka á Íslandi. Hins vegar var kostnaður sýkingalyfja hjá dýrum rúmlega 120 milljónir króna, heldur hærri en á árinu 2014. Heildarsala sýklalyfja hjá mönnum jókst um tæp fjögur prósent á milli áranna 2014 og 2015 en salan hafði áður verið minnkandi frá 2010. Þessi aukning 2014-2015 virðist einkum skýrast af aukinni notkun innan heilbrigðisstofnana en á því eru ekki fullnægjandi skýr- ingar, að sögn sóttvarnalæknis. „Af skýrslunni má draga þá ályktun að enn eigum við Íslend- ingar nokkuð í land með að draga úr notkun sýklalyfja hjá mönnum og draga þannig úr hættunni á útbreiðslu sýklalyfjaónæmra bakt- ería. […] Til að stemma stigu við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis þurfa margir aðilar hér á landi að taka höndum saman […] stuðla að skyn- samlegri notkun sýklalyfja innan sem utan heilbrigðisstofnana, halda sýklalyfjanotkun áfram í lágmarki hjá dýrum, byggja upp viðunandi salernisaðstöðu fyrir ferðamenn og efla eftirlit með bakteríum í inn- lendum sem erlendum ferskum kjötvörum. Aðeins á þann hátt munum við ná árangri í baráttunni gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis,“ segir í skýrslunni. – shá Sýklalyfjanotkun sem fyrr mest á Íslandi af Norðurlöndunum Umferð Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Grindavík óskaði á bæjarráðsfundi á þriðjudag eftir hraðatakmarkandi aðgerðum á Gerðavöllum í bænum. Óskaði sviðsstjórinn eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 til að setja upp tvær hraðahindranir við götuna, í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá því í júní. Lagði bæjarráð það til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjár- hagsáætlun ársins 2016 upp á 1,7 milljónir króna sem komi til lækk- unar á handbæru fé. – bbh Grindavíkingar takmarka hraða Umhverfismál Borgarstjórn sam- þykkti á fundi sínum á þriðjudag að móta og hefja aðgerðir gegn notkun einnota umbúða í borginni. Er horft til þess hvernig auðvelda megi borgarbúum að komast hjá einnota umbúðum og velja annað en t.d. plastpoka og annars konar einnota umbúðir. Aðgerðaáætlun verður samin í samstarfi við gras- rótarsamtök, sam- tök um verslun og þjónustu, starfs- menn borgarinnar og íbúa. Þá verði einnig skoðað hvern- ig megi standa að fræðslu til að ná þessum mark- m i ð - u m . Þá á að rýna  í aðra mark- aða stefnu b o r g a r i n n a r sem kann að skipta máli fyrir verkefnið og hafa þær stefnur til hliðsjónar sem þegar hafa verið samþykktar í umhverfis-, auðlinda- og úrgangsmálum. – bbh Plastpokar í ruslið Ég veit að mörg ykkar eru óskaplega vonsvikin vegna kosninga­ úrslitanna. Ég er það líka, meira en ég fæ með orðum lýst. Hillary Clinton Ávísanir á sýklalyf eru áfram hlutfallslega mestar hjá börnum 0-4 ára. Fréttablaðið/Pjetur Malbik fræst upp á reykjavíkurflugvelli. Mynd/Sólveig gíSladóttir Hillary Clinton segist helst hafa viljað hnipra sig saman með góða bók og aldrei þurfa að fara út úr húsi aftur. nordiCPHotoS/aFP Við töldum okkur hafa leyfi. Ástvaldur Óskarsson, framkvæmdastjóri Geymslusvæðisins 1 milljarður króna fór í kaup á sýklalyfjum hérlendis í fyrra. 1 8 . n ó v e m B e r 2 0 1 6 f Ö s T U d a g U r12 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 5 -3 9 3 4 1 B 5 5 -3 7 F 8 1 B 5 5 -3 6 B C 1 B 5 5 -3 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.