Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 23
Það læðist stundum að mér sú hugsun að það geti verið að Ísland, þessi dásamlega eyja okkar, sé—þegar öllu er á botninn hvolft—bara alls ekki byggileg. Það sé bara misskilningur að nátt- úra Íslands og hnattstaða henti nógu vel fyrir okkar dýrategund. Kannski er þetta bara ein langvar- andi lygasaga íslenskra þverhausa að mannlíf geti þrifist hér á hjara veraldar. Reyndar læðist þessi grunur alls ekki oft að mér. En það gerist þó einna helst í nóvember- mánuði. Sigur ljóssins Síðhaustið og snemmveturinn geta verið okkur Íslendingum mjög erfiðir. Það dimmir hratt. Morgn- arnir eru myrkir og nístandi—og við vitum að morgundagurinn verður ennþá styttri og kaldari. Ég skal að minnsta kosti játa að ég hef meiri tilhneigingu til þess að vorkenna sjálfum mér í nóvember heldur en öðrum mánuðum. Mér finnst allt þyngra og erfiðara. Ég á erfiðara með að sofna á kvöldin og vakna á morgnana. Mér finnst erfiðara að finna skemmtilega tónlist á Spotify, góða þætti á Net- flix, hafnaboltatímabilið er búið, það er orðið of kalt og dimmt til þess að grilla og það er ekki tíma- bært sökkva sér á kaf í jólaundir- búninginn. En, eins og sannur Íslendingur, þá bítur maður á jaxlinn og bíður af sér óþægindin í þeirri vissu að eitthvað betra sé handan við hornið. Nóvembermánuður er eins og raun sem við þurfum að þola í stutta stund áður en veröldin færir okkur aftur heim sanninn um að hún hafi upp á meira og betra og bjóða. Ef okkur tekst að þrauka þennan mánuð þá erum við verðlaunuð með tilhlökkun jólanna, þegar við segjum gangi himintunglanna stríð á hendur og neitum myrkrinu um vald sitt. Við lýsum upp heimili okkar og umhverfi og ákveðum að vera glöð og bjartsýn. Við vitum að eftir jólin gengur möndulhalli jarðarinnar til liðs við okkur á ný og jafnvel í verstu vetrarveðrunum getum við huggað okkur við að sólin er smám saman að sigra. Litlu hlutirnir Þegar maður liggur í rúminu sínu á nóvemberkvöldum og vorkennir sjálfum sér þá ætti maður auðvitað líka að reyna að vera þakklátur fyrir litlu hlutina í lífinu. Ég er til dæmis þakklátur fyrir að hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af því í gær- kvöldi þegar ég fór að sofa að ein- hvern tímann um nóttina gæti lög- reglan bankað upp á hjá mér, ruðst inn til mín, hent dótinu mínu ofan í ferðatöskur og svarta plastpoka, dregið svo grátandi börnin mín og konuna mína út í lögreglubíl og þvingað okkur öll um borð í flugvél á leiðinni á ókunnan áfangastað í útlöndum og skilja okkur þar eftir með svörtu plastpokana í biðröð til þess að láta skrásetja okkur á einhverjum öðrum stað þar sem enginn vill neitt með okkur hafa. Þegar ég skrifa þetta á fimmtu- degi get ég ekki vitað hvað gerðist í nótt. Ég veit ekki hvort einhverjum lögreglumönnum var fyrirskipað að beita ofbeldi ríkisins til þess að draga sex mánaða og tveggja ára börn sem fæddust á Íslandi út af heimilum sínum, eins og til stóð fyrr í vikunni. Ég hef ekki hug- mynd um hvort ákvörðun Íslands um að hafna þessum börnum sé Þórlindur Kjartansson Í dag Fyrir mér hafa þessi börn rétt sem er æðri lagatúlkunum og tölvuskráningum til þess að eiga sína fósturjörð. Í hálfa öld hefur íslenska þjóðin talið sig þekkja út í hörgul fyrirbærið sem um 70 ára skeið hefur gengið undir regnhlífarheitinu Laddi. En hver er Laddi? Í þessari spennandi, einlægu og á köflum drepfyndnu bók, er sett fram „þróunarkenning” um manninn, sem kom okkur til að hlæja, rituð af Gísla Rúnari Jónssyni. - Gunnar Helgason leikari & rithöfundur „Þessa einlægu, skemmtilegu og fyndnu bók er varla hægt að leggja frá sér fyrr en maður er búinn með hana. Einlægasta og fallegasta ævisaga sem ég hef lesið. Elski maður leikarann og skemmtikraftinn Ladda fyrir lesturinn, elskar maður manneskjuna Ladda eftir lesturinn.” „Allt í senn fróðleg, dramatísk, hjartnæm og bráðfyndin lesning. Ég hló og grét á víxl.” - Edda Björgvinsdóttir leikkona Ævisaga Ladda Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja Vonleysið í nóvember „lögfræðilega rétt niðurstaða“. Ég veit bara að hún er röng. Fyrir mér hafa þessi börn rétt sem er æðri lagatúlkunum og tölvuskráningum til þess að eiga sína fósturjörð. Að velja Ísland Fólk sem hrekst hingað, af ýmsum ástæðum, hefur lagt á sig mikið erfiði og jafnvel lagt sig í umtals- verða hættu, til þess að gerast Íslendingar. Þetta fólk hefur með ákafa valið að deila með okkur dimmum nóvembermánuðunum. Þetta er meira en hægt er að segja um flest okkar hinna sem höfum aldrei þurft að hafa áhyggjur af því að vera rekin út á gaddinn af landinu sem ól okkur. Valdbeitingin sem á sér stað þegar fólk er dregið út af heimil- um sínum er ljót, en það er gott að hún sé orðin sýnilegri, því það eykur samúð okkar með bæði varnarlausa fólkinu og blessuðum lögregluþjónunum sem er fyrir- skipað að framkvæma aðgerð- irnar. Maður hlýtur að spyrja sig hvort það sé leggjandi á okkar góðu lögreglumenn og -konur að senda þau um miðjar nætur til þess að draga grátandi börn út af heimili sínu til þess að senda þau með ofbeldi burt frá eina föður- landinu sem þau eiga. Ísland er svo sannarlega byggi- legt. Besta sönnun þess er vitaskuld sú að til er fólk sem keppist við að gera það að heimili sínu. Vonandi fá þau Jónína, Hanef og foreldrar þeirra frið til þess að eiga sér fram- tíð með okkur á þessari dásamlegu eyju. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F Ö s T u d a g u R 1 8 . n ó v e m B e R 2 0 1 6 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 5 5 -1 B 9 4 1 B 5 5 -1 A 5 8 1 B 5 5 -1 9 1 C 1 B 5 5 -1 7 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.