Fréttablaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 26
Í augum margra er hann faðir minn sannkallaður ævintýramaður. Óútreiknanlegur og spennandi.
Hann starfar sem leiðsögumaður og
er alltaf með annan fótinn á Íslandi
en hinn, tja, einhvers staðar annars
staðar. Hann er fljótur að kynnast
nýju fólki og þó hann sjálfur hleypi
ekki hverjum sem er að sér (og í
raun afar fáum) lítur fjöldi fólks um
allan heim á hann sem trúnaðarvin
og segir honum jafnvel sín dýpstu
leyndarmál.
Í gegnum árin hef ég oft verið
spurð hvar pabbi sé staddur og hvað
hann sé að gera: „Oh! Hvað er hann
pabbi þinn að bralla skemmtilegt
núna? Hvar í heiminum er hann?
Hvað er hann að gera þar? Hvað
ætlar hann svo að gera næst? Veistu
það? Verður hann eitthvað á Íslandi
á næstunni? Það er alltaf svo spenn
andi að fylgjast með honum!“ Og þó
ég hafi e.t.v. ekki alltaf verið ýkja hrif
in af lítilli viðveru hans hér heima og
stöðugu spurningaflóði ættingja og
vina, hefur spennandi líferni hans oft
veitt mér innblástur og ég fengið að
ferðast mikið og kynnast heiminum
á annan hátt en margir jafnaldrar
mínir.
Fyrir rúmu ári síðan tók pabbi á
móti bandarískum hópi ferðamanna
í Leifsstöð og fór með þeim í tíu daga
ferð í kringum landið. Í þessum hópi
var áttræð ekkja frá Manhattan sem
ákvað strax á fyrsta degi ferðar að
kynnast Íslandi enn betur og koma
aftur að ári liðnu. Þá ákvörðun stóð
hún við og í sumar ferðuðust þau
pabbi um landið og skoðuðu alla
króka og kima. Þar sem eitt helsta
áhugamál pabba er alþjóðastjórn
mál, barst talið eitt kvöldið að for
setakosningum Bandaríkjanna 2016.
Eitt leiddi af öðru og áður en pabbi
vissi af var honum boðið í heimsókn
til Bandaríkjanna.
Afþakkaði heimboðið
En þetta heimboð var ekki bara hve
nær sem er, hvert sem er né heldur
í hvaða erindagjörðum sem er. Nú
stóð pabba skyndilega til boða að
heimsækja blómafylkið Flórída,
vetrardvalarstað ekkjunnar, um
áramótin. Og nei, ekki stóð til að
spranga léttklædd um á ströndinni
með sólgleraugu á nefinu, né heldur
myndataka með Mikka mús, ef út í
það er farið. Honum var hér með
formlega boðið í áramótateiti ein
hvers umdeildasta manns okkar
daga, Donalds Trump.
Svo hvar er pabbi? Hvað er hann
að bralla skemmtilegt núna? Og hvar
í veröldinni verður hann um næstu
áramót? Situr hann tveimur borðum
frá verðandi forseta Bandaríkjanna
og bíður eftir litríkri flugeldasýningu
til marks um að árið 2017 sé gengið í
garð? Árið sem Trump tekur við for
setaembætti eins valdamesta ríkis
heims nú á dögum. Árið sem margir
óttast. Árið sem allt getur gerst.
Nei, hann verður á Snæfellsnesi.
Hann verður á Snæfellsnesi að gæta
steinasafns vinar síns og var sko
ekki lengi að afþakka heimboðið
til Flórída þegar hann vissi hver
héldi veisluna. Ég get því með stolti
sagt að þessi áramót sé faðir minn
steinasafnvörður á Snæfellsnesi.
Hann er ekki gestur Trumps, hvorki
í áramótateiti né annars staðar og ég
vona að sem fæstir taki boðum hans
næstu fjögur ár, allavega valdboðum
hans.
Áramótateiti Trumps?
Hann verður á Snæfellsnesi
að gæta steinasafns vinar síns
og var sko ekki lengi að af-
þakka heimboðið til Flórída
þegar hann vissi hver héldi
veisluna.
Hulda
Vigdísardóttir
íslenskufræð-
ingur
Tónlistarskólakennarar hafa nú verið samningslausir í rúmt ár og þó að þeir hafi
vísað kjaraviðræðum sínum til
sáttasemjara hefur ekkert orðið til
að hreyfa við þeim. Svo mánuðum
skiptir hefur samninganefnd sveit
arfélaga daufheyrst við eðlilegum
og sanngjörnum óskum kennara
og stjórnenda í tónlistarskólum
um að laun þeirra verði leiðrétt til
samræmis við kjör sambærilegra
hópa.
Það eina sem samninganefnd
sveitarfélaga hefur lagt á borðið
á undanförnum mánuðum við
heldur óréttlætanlegum launa
mun milli tónlistarskólakennara
og annarra sambærilegra hópa.
Það sem mætir tónlistarskóla
kennurum við samningaborðið er
þöggun og ótrúlegt metnaðarleysi
í garð tónlistarskólanna.
Það vantar ekkert upp á fögru
orðin um mikilvægi tónlistarskóla
fyrir blómlegt tónlistarlíf í landinu
og um allt frábæra tónlistarfólkið
sem ber hróður íslensks tónlistar
lífs út um heiminn og sem á þátt
í að laða þúsundir ferðamanna til
landsins. En þegar talið berst að
því hvernig búið er að skólunum
sjálfum og þeim sem þar starfa
kemur annað hljóð í strokkinn.
Þá daprast viljinn til að meta að
verðleikum það grundvallarstarf
sem fram fer í tónlistarskólum
landsins.
Himinhrópandi tómlæti ríkir
í garð tónlistarmenntunar þrátt
fyrir fögur orð um gildi hennar.
Stefna sveitarfélaga er að sam
bærileg og jafnverðmæt störf eigi
að launa með sama hætti. Ekki er
hægt að segja að það háttalag sem
viðsemjandinn hefur sýnt af sér
við samningaborðið svo mánuð
um skiptir sé í samræmi við þessa
stefnu. Er ekkert að marka þessa
stefnu? Er þessi samningapólitík
sem rekin er við samningaborðið
að vilja stjórnar Sambands sveitar
félaga og sveitarfélaga landsins? Er
það vilji þeirra að störf tónlistar
skólakennara eigi að meta minna
en annarra kennarahópa? Er það
þeirra skoðun að störf tónlistar
skólakennara séu minna virði en
annarra hópa í kennarasamtökum
landsins? Þeir sem bera pólitíska
ábyrgð á samningaviðræðunum
þurfa strax að gera hreint fyrir
sínum dyrum.
Í aðdraganda nýafstaðinna
alþingiskosninga spurðu kenn
arasamtökin stjórnmálafram
boðin um afstöðu þeirra til mats
á menntun og störfum tónlistar
skólakennara til launa saman
borið við aðra sambærilega kenn
arahópa. Í svörum flokkanna sem
nú eiga sæti á þingi segir þetta um
málið:
Björt framtíð: Menntun skili sér
í launaumslagið. Tónlistarkenn
arar eru með áralangt nám að baki
sér sem gerir þá að sérfræðingum
í sínu fagi. Það ber að virða. Fram
sókn: Eðlilegt að launakjör kenn
ara sem kenna á sama skólastigi
(aldursbili) séu sambærileg og
byggð á sambærilegum grunni.
Píratar: Sambærileg menntun og
starf = sömu grunnlaun. Þetta eru
augljós réttindi. Samfylking: Tón
listarkennarar séu metnir að verð
leikum varðandi laun og önnur
starfskjör. Það er eðlilegt að tón
listarkennarar njóti kjara sem
standast jöfnuð við kjör kennara
hópa með sambærilega menntun.
Sjálfstæðisflokkur: Eðlilegt að fólk
fái greitt sambærileg laun fyrir
sambærileg störf. Viðreisn: Tón
listarkennarar ættu ekki að búa
við lakari kjör en sambærilegir
kennarahópar. Vinstri hreyfingin
– grænt framboð: Tryggja tónlistar
skólakennurum laun í samræmi
við menntun og sérhæfingu.
Framboðin sem nú eiga sæti á
þingi eiga flest fulltrúa í sveitar
stjórnum um allt land.
Kennarasamtökin gera þá kröfu
að þeir beiti sér strax fyrir því að
sveitarfélögin í landinu veiti samn
inganefnd sinni skýlaust umboð
til að ganga strax til samninga við
tónlistarskólakennara um eðli
legar og sanngjarnar launaleið
réttingar.
Kennarasamtökin krefjast þess
að tónlistarskólunum verði gert
kleift að halda uppi gæðastarfi í
þágu nemenda og tónlistarlífs
ins í landinu. Framtíð tónlistar á
Íslandi er undir því komin að vel
sé búið að tónlistarskólunum,
kennurum og stjórnendum þeirra.
Störf þeirra á að meta að verð
leikum.
Kjarabarátta tónlistarkennara
er barátta okkar allra!
Aðalheiður
Steingrímsdóttir
varaformaður
Kennarasam-
bands Íslands Það vantar ekkert upp á
fögru orðin um mikilvægi
tónlistarskóla fyrir blómlegt
tónlistarlíf í landinu og um
allt frábæra tónlistarfólkið
sem ber hróður íslensks tón-
listarlífs út um heiminn og
sem á þátt í að laða þúsundir
ferðamanna til landsins.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
FRÁBÆR SKEMMTU
N
FYRIR KRAKKA Á
ÖLLUM ALDRI
KOMIÐ Í
VERSLANIR
ÞROSKANDI &
SKEMMTILEGT
SPIL
SEM FÆR KRAKKA
TIL AÐ
LEIKA OG TALA SAM
AN
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r26 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
5
5
-3
4
4
4
1
B
5
5
-3
3
0
8
1
B
5
5
-3
1
C
C
1
B
5
5
-3
0
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K