Fréttablaðið - 18.11.2016, Page 52
V ið rekjum upp-h a f Fó s t b r æ ð r a til 18. nóvember 1916. Þá komu 20 ungir menn saman á æfingu í kjallara
KFUM heimilisins við Amtmanns-
stíg. Þeir höfðu verið í söngfélagi í
fimm ár, sem studdi við starfsemi
KFUM en þarna var tekið það skref
að fá alvöru stjórnanda, Jón Hall-
dórsson,“ segir Arinbjörn Vilhjálms-
son, framkvæmdastjóri Karlakórs-
ins Fóstbræðra. Hann segir Jón hafa
mótað kórinn og stjórnað honum af
snilli fram til 1949. „Jón var ekki
menntaður í tónlist en var úr list-
rænni fjölskyldu, meðal annars á
tónlistarsviðinu og stóð sig ljóm-
andi vel, það sýndi sig þegar kórinn
fór í mikla frægðarför til Noregs
1926, þar fékk hann glimrandi
dóma. Félagarnir voru áhugasamir
en vissu ekkert hvar þeir stóðu í
samanburði við aðra fyrr en þeir
fóru utan.“
Nýtt og eldra efni í bland
Tæpt verður á sögu kórsins í máli
og myndum í söngskránni sem
dreift verður í Hörpu í kvöld á
afmælistónleikunum. Einnig fá lög
að hljóma sem minna á fortíðina.
Til dæmis kemur fram hópur sem
kallar sig Fjórtán fóstbræður, í anda
sams konar grúppu sem var gríðar-
vinsæl á 7. áratugnum.
Helena Jónsdóttir kóreógrafer
er sviðsstjóri tónleikanna að sögn
Arinbjarnar. „Hennar hlutverk er
að móta myndræna og áhugaverða
umgjörð. Gestir sem sitja á efstu
svölum í Eldborg eru býsna langt frá
okkur söngmönnunum en Helena
notar salinn til að efla upplifunina,“
lýsir hann og fer aðeins yfir dagskrá
kvöldsins.
„Fyrir hlé verður flutt 20. aldar
klassík og nýtt efni, meðal annars
frumflutt tvö verk eftir ung tón-
skáld, Hreiðar Inga Þorsteinsson
og Viktor Orra Árnason. Eftir hlé
sýnum við hina hliðina á okkur og
syngjum léttari lög sem eru betur
til vinsælda fallin og líka mikilvæg
fyrir félagsskapinn,“ segir Arinbjörn
glaðlega. „Þá syngja Fjórtán fóst-
bræður og við fáum Stuðmennina
Egil Ólafsson og Jakob Magnússon
til liðs við okkur,“ segir Arinbjörn
og upplýsir að sex þeirra sem voru
í hinum einu sönnu Fjórtán fóst-
bræðrum syngi á tónleikunum.
Einn þeirra sé Aðalsteinn Guð-
laugsson sem hafi verið lengst allra
í kórnum eða frá 1951. „Gamlir fóst-
bræður er sér kór en starfar innan
okkar vébanda, þegar félagar eru
komnir yfir sjötugt fara þeir í hann.
Sá elsti þar er 92 ára.“
Kór sem vill vera í forystu
Um 100 manns tilheyra Fóstbræðr-
um, af þeim verða um 80 á sviði í
kvöld. Þeir kórfélagar sem lengst
eiga á æfingar eru tveir menn frá
Hveragerði og einn frá Akranesi.
„Annar þeirra sem búa í Hvera-
gerði hefur bara misst eina æfingu
úr síðan 2009, þannig að Hellis-
heiðin hefur ekki verið honum
farartálmi,“ upplýsir framkvæmda-
stjórinn sem sjálfur hefur verið
samfellt í Fóstbræðrum frá 2002.
„Ég byrjaði reyndar 1996 en
krakkarnir voru svo litlir þá og
kórstarfið tók svo mikinn tíma
að ég fór í salt í nokkur ár. Það er
alltaf barátta að fá yngri menn
í kórinn. Þess vegna breyttum
við fyrirkomulaginu í fyrravetur
og komum saman á einni lengri
æfingu í viku í stað tveggja styttri
áður. Okkur þykir gott að fá menn
í kringum fertugt, ungir menn eru
svo oft uppteknir í námi og með
litla krakka. En starfið er gefandi
og auðvitað er það viss samfélags-
þjónusta sem við erum að sinna.“
Arinbjörn segir mikið verk að
vera formaður í svona
stórum kór, sérstaklega
þegar hann verði 100
ára! „Það er bara mjög
mikið mál. En maður
gerir þetta fyrir félags-
skapinn,“ segir hann og
upplýsir að 40 æfingar
hafi verið á dagskránni síðan í
ágúst, fyrir utan alls konar stúss í
sambandi við afmælið. „Fóstbræð-
ur eru metnaðarfullur kór sem
vill vera í forystu í karlakóramenn-
ingunni hér á landi og halda vissum
standard,“ segir Arinbjörn. „Við
erum hluti af norrænni karlakóra-
hefð sem mótaðist á 19. öld. Hluti
af henni er starfsaldursviðurkenn-
ingar, orður og fleira. Á bak við eina
orðu getur verið ómældur tími og
starf svo menn bera þær með stolti
og réttu. Við fáum brons fyrir fimm
ár, silfur fyrir tíu, gull fyrir fimmtán
og heiðursgullhörpu fyrir tuttugu
ára starf. Svo fá menn silfurpela og
gullúr þegar áratugunum fjölgar.
Þetta er svona hvort tveggja í senn
kór og karlaklúbbur.“
Fóstbræður eiga sitt félagsheim-
ili og hafa átt í 50 ár. „Við fengum
úthlutað lóð á horni Langholts-
vegar og Drekavogs. Fengum bygg-
ingarfélag til að gera það fokhelt og
lukum við æfingahúsnæðið sjálfir,“
lýsir Arinbjörn. „Það sem skipti
rosalegu máli í sambandi við húsa-
kaupin var að allur afrakstur Fjór-
tán fóstbræðra sem voru starfandi
milli 1963 og 1975, og seldust betur
en Bítlarnir í upphafi, rann beint í
félagsheimilissjóðinn, þeir fengu
ekki krónu sjálfir.“
Opnir tónleikar á morgun
Á morgun, laugardag, verða Fóst-
bræður með eigin afmælishátíð.
Byrjað verður á að leggja blóma-
krans á leiði Jóns Halldórssonar,
fyrsta stjórnandans, klukkan þrjú
í Fossvogskirkjugarði. Þaðan fara
þeir í rútu í niður í miðborg og ætla
að vígja skjöld í gamla KFUM-saln-
um á bak við MR, þar sem ballið
byrjaði. Þaðan ganga þeir fylktu
liði í Hörpuna, með smá viðkomu
hjá styttunni af séra Friðriki Frið-
rikssyni, KFUM-manni, leggja þar
annan blómsveig og taka lagið.
Í Hörpu verða svo ókeypis tón-
leikar í boði Fóstbræðra klukkan
hálf sex, uppi á annarri hæð.
„Þar ætlum við að syngja auka-
lögin, gömlu karlakóraperlurnar
og endum á þjóðsöngnum. Þetta
verður svona þriggja kortéra til
klukkutíma stund í Hörpuhorni
og allir eru velkomnir,“ segir Arin-
björn. Hann tekur fram að hófið
sem haldið verði í framhaldinu
í Norðurljósum með ræðum og
söng sé bara fyrir kórmenn og
þeirra konur. Það endi á Stuð-
mannaballi fyrir þennan lokaða
hóp og spurst hafi út að Ragga Gísla
ætli að syngja með!
Hvort tveggja í senn, kór og karlaklúbbur
Söngfélagar á einni af hinum ströngu æfingum fyrir afmælistónleikana. Stjórnandi er Árni Harðarson. Fréttablaðið/aNtON briNK
Eftir hlé sýnum við
hina hliðina á okkur
og syngjum léttari
lög sEm Eru bEtur til
vinsælda fallin og
líka mikilvæg fyrir
félagsskapinn.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
karlakórinn fóst-
bræður hefur glatt
fólk með söng
sínum í hundrað
ár. hann heldur
upp á það með
stórtónleikum í
Eldborg í kvöld og
ókeypis aukalögum
í hörpuhorni á
morgun. arinbjörn
vilhjálmsson veit
allt um kórinn.
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r40 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
5
-0
7
D
4
1
B
5
5
-0
6
9
8
1
B
5
5
-0
5
5
C
1
B
5
5
-0
4
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K