Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 52

Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 52
V ið rekjum  upp-h a f Fó s t b r æ ð r a til 18. nóvember 1916. Þá komu  20 ungir menn saman á æfingu í kjallara KFUM heimilisins við Amtmanns- stíg. Þeir höfðu verið í söngfélagi í fimm ár, sem studdi við starfsemi KFUM en þarna var tekið það skref að fá alvöru stjórnanda, Jón Hall- dórsson,“ segir Arinbjörn Vilhjálms- son, framkvæmdastjóri Karlakórs- ins Fóstbræðra. Hann segir Jón hafa mótað kórinn og stjórnað honum af snilli fram til 1949.  „Jón var ekki menntaður í tónlist en var úr list- rænni fjölskyldu, meðal annars á tónlistarsviðinu og stóð sig ljóm- andi vel, það sýndi sig þegar kórinn fór í mikla frægðarför til Noregs 1926, þar fékk hann glimrandi dóma. Félagarnir voru áhugasamir en vissu ekkert hvar þeir stóðu í samanburði við aðra fyrr en þeir fóru utan.“ Nýtt og eldra efni í bland Tæpt verður á sögu kórsins í máli og myndum  í söngskránni sem dreift verður í Hörpu í kvöld á afmælistónleikunum. Einnig fá lög að hljóma sem minna á fortíðina. Til dæmis kemur fram hópur sem kallar sig Fjórtán fóstbræður, í anda sams konar grúppu sem var gríðar- vinsæl á 7. áratugnum.   Helena Jónsdóttir  kóreógrafer er sviðsstjóri tónleikanna að sögn Arinbjarnar.  „Hennar hlutverk er að móta myndræna og áhugaverða umgjörð.  Gestir sem sitja  á efstu svölum í Eldborg eru býsna langt frá okkur söngmönnunum en Helena notar salinn til að efla upplifunina,“ lýsir hann og fer aðeins yfir dagskrá kvöldsins. „Fyrir hlé  verður flutt  20. aldar klassík og nýtt efni, meðal annars frumflutt tvö verk eftir  ung tón- skáld, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Viktor Orra Árnason. Eftir hlé sýnum við hina hliðina á okkur og syngjum léttari  lög sem eru betur til vinsælda fallin og líka mikilvæg fyrir félagsskapinn,“ segir Arinbjörn glaðlega.  „Þá  syngja Fjórtán fóst- bræður og við fáum Stuðmennina Egil Ólafsson og Jakob Magnússon til liðs við okkur,“ segir Arinbjörn og upplýsir að sex þeirra sem voru í hinum einu sönnu Fjórtán fóst- bræðrum syngi á tónleikunum. Einn þeirra sé Aðalsteinn Guð- laugsson sem hafi verið lengst allra í kórnum eða frá 1951. „Gamlir fóst- bræður er sér kór en starfar innan okkar vébanda, þegar félagar eru komnir yfir sjötugt fara þeir í hann. Sá elsti þar er 92 ára.“ Kór sem vill vera í forystu Um 100 manns tilheyra Fóstbræðr- um, af þeim verða um 80 á sviði í kvöld. Þeir kórfélagar sem lengst eiga á æfingar eru tveir menn frá Hveragerði og einn frá Akranesi. „Annar þeirra sem búa í Hvera- gerði hefur bara misst eina æfingu úr síðan 2009, þannig að Hellis- heiðin hefur ekki verið honum farartálmi,“ upplýsir framkvæmda- stjórinn sem sjálfur hefur verið samfellt í Fóstbræðrum frá 2002. „Ég byrjaði reyndar 1996 en krakkarnir voru svo litlir þá  og kórstarfið tók svo mikinn tíma að ég fór í salt í nokkur ár. Það er alltaf barátta að fá yngri menn í kórinn. Þess vegna breyttum við  fyrirkomulaginu í fyrravetur og  komum  saman á einni lengri æfingu í viku í stað tveggja styttri áður. Okkur þykir gott að fá menn í kringum fertugt, ungir menn eru svo oft uppteknir í námi og með litla krakka. En starfið er gefandi og auðvitað er það viss samfélags- þjónusta sem við erum að sinna.“ Arinbjörn segir mikið verk að vera formaður í svona stórum kór, sérstaklega þegar  hann verði 100 ára! „Það er bara mjög mikið mál. En maður gerir þetta fyrir félags- skapinn,“ segir hann og upplýsir að 40 æfingar hafi verið á dagskránni síðan í ágúst, fyrir utan alls konar stúss í sambandi við afmælið. „Fóstbræð- ur eru  metnaðarfullur kór  sem vill vera í forystu í karlakóramenn- ingunni hér á landi og halda vissum standard,“ segir Arinbjörn.   „Við erum hluti af norrænni karlakóra- hefð sem mótaðist á 19. öld. Hluti af henni er starfsaldursviðurkenn- ingar, orður og fleira. Á bak við eina orðu getur verið ómældur tími og starf svo menn bera þær með stolti og réttu. Við fáum brons fyrir fimm ár, silfur fyrir tíu, gull fyrir fimmtán og heiðursgullhörpu fyrir tuttugu ára starf. Svo fá menn silfurpela og gullúr þegar áratugunum fjölgar. Þetta er svona hvort tveggja í senn kór og karlaklúbbur.“ Fóstbræður eiga sitt félagsheim- ili og hafa átt í 50 ár. „Við fengum úthlutað lóð á horni Langholts- vegar og Drekavogs. Fengum bygg- ingarfélag til að gera það fokhelt og lukum við æfingahúsnæðið sjálfir,“ lýsir  Arinbjörn.  „Það sem skipti rosalegu máli í sambandi við húsa- kaupin var að allur afrakstur Fjór- tán fóstbræðra sem voru starfandi milli 1963 og 1975, og seldust betur en Bítlarnir í upphafi, rann beint í félagsheimilissjóðinn, þeir fengu ekki krónu sjálfir.“ Opnir tónleikar á morgun Á morgun, laugardag, verða Fóst- bræður  með  eigin afmælishátíð. Byrjað verður á að leggja blóma- krans á leiði Jóns Halldórssonar, fyrsta stjórnandans, klukkan þrjú í Fossvogskirkjugarði. Þaðan fara þeir í rútu í niður í miðborg og ætla að vígja skjöld í gamla KFUM-saln- um á bak við MR, þar sem ballið byrjaði. Þaðan  ganga þeir  fylktu liði í Hörpuna, með smá viðkomu hjá styttunni af séra Friðriki Frið- rikssyni, KFUM-manni, leggja þar annan blómsveig og taka lagið. Í Hörpu verða svo ókeypis tón- leikar í boði Fóstbræðra klukkan hálf sex, uppi á annarri hæð. „Þar ætlum við að syngja auka- lögin, gömlu karlakóraperlurnar og endum á þjóðsöngnum. Þetta verður svona þriggja kortéra til klukkutíma stund í Hörpuhorni og allir eru velkomnir,“ segir Arin- björn. Hann tekur fram að hófið sem haldið verði í framhaldinu í  Norðurljósum með ræðum og söng sé bara fyrir kórmenn og þeirra konur. Það endi á Stuð- mannaballi fyrir þennan lokaða hóp og spurst hafi út að Ragga Gísla ætli að syngja með! Hvort tveggja í senn, kór og karlaklúbbur Söngfélagar á einni af hinum ströngu æfingum fyrir afmælistónleikana. Stjórnandi er Árni Harðarson. Fréttablaðið/aNtON briNK Eftir hlé sýnum við hina hliðina á okkur og syngjum léttari lög sEm Eru bEtur til vinsælda fallin og líka mikilvæg fyrir félagsskapinn. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is karlakórinn fóst- bræður hefur glatt  fólk með söng sínum í hundrað ár. hann heldur upp á það með stórtónleikum í Eldborg í kvöld og ókeypis aukalögum í hörpuhorni á morgun. arinbjörn vilhjálmsson veit allt um kórinn. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r40 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð menning 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 5 5 -0 7 D 4 1 B 5 5 -0 6 9 8 1 B 5 5 -0 5 5 C 1 B 5 5 -0 4 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.