Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 53

Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 53
Ómissandi í jólabaksturinn! *Takmarkað magn E N N E M M / S ÍA / N M 7 18 3 3 Bækur Netið HHHHH Lilja Sigurðardóttir Útgefandi: JPV-útgáfa 2016 Fjöldi síðna: 353 Í bókaflóðinu í fyrra var Gildran eftir Lilju Sigurðardóttir eitt það hressi- legasta sem rak á fjörur. Þar var sleginn nýr tónn í íslenskri spennu- sagnagerð, bókin var öskrandi aksjónkrimmi með vel dregnum persónum og slungnu plotti sem gladdi glæpasagnafíkla með nýjum sjónarhornum á íslenskan veruleika. Netið er þráðbeint framhald G i l d r - unnar og hér eru persónur þær sömu, þótt örfáar bætist í hópinn, og aksjónin ef eitthvað e r e n n meiri og flóknari . Sonja, aðalpersónan, er enn föst í neti alþjóðlegs eiturlyfjahrings og ástkona hennar, Agla, stendur enn í flóknum fjármálagjörningum sem hvorki þola dagsljósið né rannsókn sérstaks sak- sóknara. Bragi tollvörður hugsar enn um deyjandi konu sína og Adam, fyrr- verandi eiginmaður Sonju, notar enn Tómas son þeirra sem keyri á hana til að fara að vilja hans. Allt gott og blessað, svo langt sem það nær. Styrkur Gildrunnar liggur fyrst og fremst í næmri persónusköpun og væntumþykju höfundar gagnvart persónum sínum, en í Netinu er eins og sú væntumþykja hafi dvínað. Allt þetta siðblinda fólk verður ósköp eintóna og þreytandi á þessum 353 síðum og lesandinn finnur ekki til nokkurrar samúðar með þeim, er slétt sama um afdrif þeirra og áhyggjur og því dettur botninn úr spennunni. Æsileg og ótrúverðug atburðarásin bætir ekki úr skák og þótt leikurinn berist víða um lönd, frá Íslandi til Grænlands og Mexíkó með viðkomu í stórborgum Evrópu, kviknar áhugi lesandans ekki. Maður stendur sig næstum því að því að dæsa mæðulega og segja stundar- hátt; nei hættu nú alveg, þetta gengur engan veginn upp. Þau viðbrögð eru væntanlega ekki það sem höfundar spennusagna sækjast eftir að ná fram hjá lesendum sínum. Íslenskir glæpasagnahöfundar eru í „mikilli sókn“ á erlendum mörkuð- um og skiljanlega er útgáfa erlendis eftirsóknarverð og gleðileg fyrir höf- unda sem skrifa á þessu örtungumáli sem enginn skilur. Það er hins vegar verra ef sú hugsun að skrifa fyrir alþjóðlegan markað tekur ráðin af höfundum og þeir gleyma því að það sem gerir nordic noir áhugavert og spennandi fyrir lesendur annarra landa er sérstaðan og hin sálfræði- lega næmni sem margir af bestu norrænu glæpasagnahöfundum eru þekktir fyrir. Netið er skrifað beint inn í bandaríska aksjónþrillera- hefð og það kemur vægast sagt ekki nógu vel út þegar bakgrunnurinn er íslenskur veruleiki. Þá verður útkoman bara enn einn þrillerinn sem geysist um heim alþjóðlegra eiturlyfjahringa og hvítflibbaglæpa- manna án þess að bæta neinu við lýsingar á þeim heimum í öðrum sams konar sögum. Þegar ofan á bætist að persónurnar sem höfundur Gildrunnar lagði svo mikla alúð við að gæða lífi og lit eru orðnar útflattar og líflausar er útkoman harla rýr í roðinu og skilur lesandann eftir með hálfgert óbragð í munni. Friðrika Benónýsdóttir NiðurStaða: Æsilegur aksjónþriller með ótrúlegri atburðarás en dauflega dregnum persónum og yfirdrifnu plotti. Örlítið minni diskant, takk Tónleikaröðin Tíbrá í Salnum í Kópavogi hefur farið sérstak-lega vel af stað á þessu hausti. Næstu tónleikar eru á sunnudags- kvöldið undir yfirskriftinni Contrast – Fragments, eða andstæður – brot. En á meðal verka er nýtt verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur sem hún segir að hafi reyndar verið frumflutt á Dalvík í sumar. „Við erum þarna hópur sem var að spila saman á Bergmálshátíð- inni á Dalvík í sumar. Við ætlum að spila verk eftir mig við Vögguvísu eftir Ragnar Helga Ólafsson og það er í fyrsta skipti sem ég sem fyrir undirbúið píanó en ég er að spila á víólu í því verki. Með mér verða svo þau Kristján Karl Bragason á píanó, Grímur Helgason á klarínett og Haf- dís Vigfúsdóttir á flautu og síðast en ekki síst Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran. Svo verðum við líka með lítil fiðlu- verk eftir mig, Bartók; Contrasts tríóið fyrir fiðlu, klarínett og píanó og sitt- hvað fleira en þetta verður mjög fjöl- breytt og skemmtileg efnisskrá. Fleiri íslensk verk verða á efnisskránni auk þess sem franskur impressjónismi kemur við sögu. Þannig að það verða þarna bæði andstæður og brot enda er það yfirskriftin.“ Una segir að það sé skemmtilegt hversu vel Tíbrá hefur farið af stað í haust. „Það er gaman að hafa svona röð í gangi í Kópavogi því það er svo mikið að gerast í Hörpu og skemmti- legt að láta þetta dreifast aðeins. Þetta er æðislegur salur og það er alltaf gaman að spila þarna. – mg Andstæður og brot í Salnum Hildigunnur, Hafdís, Grímur, Una og Kristján Karl verða í Salnum á sunnudagskvöldið. M e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 41F Ö S t u D a g u r 1 8 . N ó v e M B e r 2 0 1 6 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 5 4 -F 9 0 4 1 B 5 4 -F 7 C 8 1 B 5 4 -F 6 8 C 1 B 5 4 -F 5 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.