Fréttablaðið - 18.11.2016, Síða 54
Núna er ég er að fara að sýna nýtt sólóverk sem heitir Shades of History. Kveikjan að verkinu var að vinna
með höfundareinkenni eða ein
kennishreyfingar mismunandi
danshöfunda sem hafa haft áhrif á
mig í gegnum tíðina,“ segir Katrín
Gunnarsdóttir, dansari og danshöf
undur, sem hefur á undanförnum
árum hlotið verðskuldaða athygli
fyrir verk sín bæði hér heima og
erlendis. Frumsýningin er í Tjarnar
bíó í kvöld en það verða aðeins
örfáar sýningar þar sem hún heldur
innan tíðar með verkið til sýninga
bæði í Sviss og Skotlandi.
Katrín heldur áfram og bætir við
að í þessu verki sé hún áfram að
vinna með sama viðfangsefni og
í verðlaunasýningunni. „Þetta er
líka orðið að hugleiðingu um það
hvernig hlutir breytast. Hvernig ein
hreyfing þróast yfir á aðra. Þannig er
ég að reyna að leita að einhverjum
kjarna eða ákveðnu flæði í hreyf
ingu.“
Sagan endurtekur sig
Katrín hefur fengist við dansinn allt
frá unga aldri en fyrir tveimur árum
hlaut hún Grímuna sem danshöf
undur ársins fyrir verkið Coming
Up. Katrín segir að það verk hafi
í raun verið það fyrsta sem til
heyrir þessari rannsókn. „Þá var
ég að skoða síðustu fimmtán ár en
ég er búin að vera að dansa í tutt
ugu ár eða þar um bil. En ég miða
við að fyrsta opinbera dansverkið
mitt, þar sem ég var að fá lánað eða
hafði orðið fyrir áhrifum frá öðrum
höfundum, hafi verið þegar ég var
svona þrettán ára í Tónabæ.“
En skyldi Katrín sækja mikið í að
horfa á og skoða verk annarra höf
unda svona dags daglega? „Já, það
sem var grunnur að þessu verki eru
öll þessi áhrif sem við verðum fyrir
án þess endilega að við tökum eftir
því. Þannig að það kallaði á ákveðna
rannsóknarvinnu að finna þessa
áhrifavalda og vera meira með
vituð um það hvaðan áhrifin koma.
Þannig að þessi rannsóknarvinna
gerði mig meira meðvitaða um
það hvaðan áhrifin á mann koma.
Þannig að þessi vinna breytti mér
sem áhofanda og gerði mig með
vitaða um það hvernig sagan birtist
í dansverkum og hvernig hún er
alltaf að endurtaka sig. Ég held að
við séum alltaf undir áhrifum frá
öðrum hvort sem við könnumst við
það eða ekki.“
Hætt að vera frumleg
Katrín hlær við spurningunni um
það hvort þetta merki það að hún
sé þá póstmódernisti. „Við erum
komin miklu lengra en það. Erum
við ekki komin í posttruth. Er
það ekki það nýjasta? Ég er komin
þangað þar sem þetta skiptir ekki
lengur máli og ég get bara dansað
hvað sem er þarna á gólfinu og sagt
að það sé eftir einhvern annan.
Sannleikurinn skiptir ekki máli
lengur.
En það er hins vegar merkilegt
hvernig dansáhrifin hér á landi
voru, sérstaklega fyrir daga inter
netsins. Þá barst þekkingin hingað
eiginlega svona second hand til
okkar í gegnum aðra og þegar ég
var krakki þá var það eina sem ég
sá eftir fræga danshöfunda kannski
bara eitt vídeó í skólanum eða með
því að læra eitthvað í danstíma.
Núna er raunveruleikinn allt annar
þar sem þú getur séð svo margt og
fylgst með öllu. Þetta hefur auð
vitað breytt gríðarlega miklu en að
sama skapi getur maður líka alveg
gefist upp á því að vera frumlegur.
Eftir þessi dansverk sem ég er búin
að vera að vinna með núna þá er ég
alveg búin að gefa það upp á bát
inn. Ég ætla ekki að reyna að vera
frumleg lengur því það er bara von
laust.“
Einföld nærvera
Shades of History samanstendur af
því sem hefur mótað og haft áhrif
á Katrínu á hennar dansferli. „Já,
þetta er það en af því að ég tók þá
nálgun í verkinu að vinna mikið
með einfaldar hreyfingar, eins og
t.d. handahreyfingar eða höfuð
hreyfingar, einföld skref eða hringi
þá sérðu ekkert endilega í verkinu
mjög afgerandi einkenni. Heldur
bregður þeim meira fyrir eins og
einhvers konar skuggum eða lit
rófi. Þaðan kemur líka þessi titill og
þú sem áhorfandi sérð ákveðið róf
hreyfinga. Sumar hreyfingar eru líka
þannig að áður en hreyfingin sjálf er
komin í ljós þá er hún strax farin að
breytast yfir í eitthvað annað.
En mér fannst svo áhugavert að
nálgast þetta í einhverjum svona
einfaldleika. Það er engin tónlist
í þessu verki, heldur bara hljóð
mynd með dansaranum og andar
drættinum. Mér finnst það áhuga
vert að fara í slíka einfalda nærveru
andspænis öllum þessum stóru hug
myndum.“
Tónlist líkamans
Katrín viðurkennir að það sé vissu
lega krefjandi að vera án tónlistar
innar. „Það krefst rosalegs undir
búnings og maður þarf að venjast
því. Þótt ég sé að vinna í verkinu
án tónlistar þá nota ég tónlist til
undirbúnings. Ég er með upphit
unarlagalista og er líka oft með tón
list á æfingum vegna þess að það er
manni svo eðlislægt að dansa og
hreyfa sig við tónlistina. En þetta
er skemmtileg áskorun að reyna að
hlusta á taktinn og tónlistina í lík
amanum og leyfa honum að standa
einn og óstuddur.
Í þessu samfélagi okkar erum við
líka alltaf í svo miklu áreiti og það
er allt orðið svo tæknivætt að mér
fannst að það væri spennandi að
láta áhorfendur bara sitja saman í
þögn. Það er fólgin einhver öðruvísi
nærvera í því að sitja og hlusta og á
þennan líkama sem er að dansa.
Mér finnst það spennandi.“
Áskorun að
hlusta á taktinn
og tónlistina í
líkamanum
Shades of History er nýtt dansverk eftir
Katrínu Gunnarsdóttur þar sem hún
vinnur út frá því sem hefur haft áhrif á
hana allt frá fyrstu tíð í dansinum.
Katrín Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, frumsýnir nýtt verk í Tjarnarbíó í kvöld. FréTTablaðið/Eyþór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Í þeSSu
SamfélaGi
oKKar erum við
lÍKa alltaf Í Svo
miKlu áreiti oG það
er allt orðið Svo
tæKnivætt að mér
fannSt að það væri
Spennandi að láta
áHorfendur bara
Sitja Saman Í þöGn.
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r42 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
4
-F
4
1
4
1
B
5
4
-F
2
D
8
1
B
5
4
-F
1
9
C
1
B
5
4
-F
0
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K