Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 54
Núna er ég er að fara að sýna nýtt sóló­verk sem heitir Shades of History. Kveikjan að verk­inu var að vinna með höfundareinkenni eða ein­ kennishreyfingar mismunandi danshöfunda sem hafa haft áhrif á mig í gegnum tíðina,“ segir Katrín Gunnarsdóttir, dansari og danshöf­ undur, sem hefur á undanförnum árum hlotið verðskuldaða athygli fyrir verk sín bæði hér heima og erlendis. Frumsýningin er í Tjarnar­ bíó í kvöld en það verða aðeins örfáar sýningar þar sem hún heldur innan tíðar með verkið til sýninga bæði í Sviss og Skotlandi. Katrín heldur áfram og bætir við að í þessu verki sé hún áfram að vinna með sama viðfangsefni og í verðlaunasýningunni. „Þetta er líka orðið að hugleiðingu um það hvernig hlutir breytast. Hvernig ein hreyfing þróast yfir á aðra. Þannig er ég að reyna að leita að einhverjum kjarna eða ákveðnu flæði í hreyf­ ingu.“ Sagan endurtekur sig Katrín hefur fengist við dansinn allt frá unga aldri en fyrir tveimur árum hlaut hún Grímuna sem danshöf­ undur ársins fyrir verkið Coming Up. Katrín segir að það verk hafi í raun verið það fyrsta sem til­ heyrir þessari rannsókn. „Þá var ég að skoða síðustu fimmtán ár en ég er búin að vera að dansa í tutt­ ugu ár eða þar um bil. En ég miða við að fyrsta opinbera dansverkið mitt, þar sem ég var að fá lánað eða hafði orðið fyrir áhrifum frá öðrum höfundum, hafi verið þegar ég var svona þrettán ára í Tónabæ.“ En skyldi Katrín sækja mikið í að horfa á og skoða verk annarra höf­ unda svona dags daglega? „Já, það sem var grunnur að þessu verki eru öll þessi áhrif sem við verðum fyrir án þess endilega að við tökum eftir því. Þannig að það kallaði á ákveðna rannsóknarvinnu að finna þessa áhrifavalda og vera meira með­ vituð um það hvaðan áhrifin koma. Þannig að þessi rannsóknarvinna gerði mig meira meðvitaða um það hvaðan áhrifin á mann koma. Þannig að þessi vinna breytti mér sem áhofanda og gerði mig með­ vitaða um það hvernig sagan birtist í dansverkum og hvernig hún er alltaf að endurtaka sig. Ég held að við séum alltaf undir áhrifum frá öðrum hvort sem við könnumst við það eða ekki.“ Hætt að vera frumleg Katrín hlær við spurningunni um það hvort þetta merki það að hún sé þá póstmódernisti. „Við erum komin miklu lengra en það. Erum við ekki komin í post­truth. Er það ekki það nýjasta? Ég er komin þangað þar sem þetta skiptir ekki lengur máli og ég get bara dansað hvað sem er þarna á gólfinu og sagt að það sé eftir einhvern annan. Sannleikurinn skiptir ekki máli lengur. En það er hins vegar merkilegt hvernig dansáhrifin hér á landi voru, sérstaklega fyrir daga inter­ netsins. Þá barst þekkingin hingað eiginlega svona second hand til okkar í gegnum aðra og þegar ég var krakki þá var það eina sem ég sá eftir fræga danshöfunda kannski bara eitt vídeó í skólanum eða með því að læra eitthvað í danstíma. Núna er raunveruleikinn allt annar þar sem þú getur séð svo margt og fylgst með öllu. Þetta hefur auð­ vitað breytt gríðarlega miklu en að sama skapi getur maður líka alveg gefist upp á því að vera frumlegur. Eftir þessi dansverk sem ég er búin að vera að vinna með núna þá er ég alveg búin að gefa það upp á bát­ inn. Ég ætla ekki að reyna að vera frumleg lengur því það er bara von­ laust.“ Einföld nærvera Shades of History samanstendur af því sem hefur mótað og haft áhrif á Katrínu á hennar dansferli. „Já, þetta er það en af því að ég tók þá nálgun í verkinu að vinna mikið með einfaldar hreyfingar, eins og t.d. handahreyfingar eða höfuð­ hreyfingar, einföld skref eða hringi þá sérðu ekkert endilega í verkinu mjög afgerandi einkenni. Heldur bregður þeim meira fyrir eins og einhvers konar skuggum eða lit­ rófi. Þaðan kemur líka þessi titill og þú sem áhorfandi sérð ákveðið róf hreyfinga. Sumar hreyfingar eru líka þannig að áður en hreyfingin sjálf er komin í ljós þá er hún strax farin að breytast yfir í eitthvað annað. En mér fannst svo áhugavert að nálgast þetta í einhverjum svona einfaldleika. Það er engin tónlist í þessu verki, heldur bara hljóð­ mynd með dansaranum og andar­ drættinum. Mér finnst það áhuga­ vert að fara í slíka einfalda nærveru andspænis öllum þessum stóru hug­ myndum.“ Tónlist líkamans Katrín viðurkennir að það sé vissu­ lega krefjandi að vera án tónlistar­ innar. „Það krefst rosalegs undir­ búnings og maður þarf að venjast því. Þótt ég sé að vinna í verkinu án tónlistar þá nota ég tónlist til undirbúnings. Ég er með upphit­ unarlagalista og er líka oft með tón­ list á æfingum vegna þess að það er manni svo eðlislægt að dansa og hreyfa sig við tónlistina. En þetta er skemmtileg áskorun að reyna að hlusta á taktinn og tónlistina í lík­ amanum og leyfa honum að standa einn og óstuddur. Í þessu samfélagi okkar erum við líka alltaf í svo miklu áreiti og það er allt orðið svo tæknivætt að mér fannst að það væri spennandi að láta áhorfendur bara sitja saman í þögn. Það er fólgin einhver öðruvísi nærvera í því að sitja og hlusta og á þennan líkama sem er að dansa. Mér finnst það spennandi.“ Áskorun að hlusta á taktinn og tónlistina í líkamanum Shades of History er nýtt dansverk eftir Katrínu Gunnarsdóttur þar sem hún vinnur út frá því sem hefur haft áhrif á hana allt frá fyrstu tíð í dansinum. Katrín Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, frumsýnir nýtt verk í Tjarnarbíó í kvöld. FréTTablaðið/Eyþór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Í þeSSu SamfélaGi oKKar erum við lÍKa alltaf Í Svo miKlu áreiti oG það er allt orðið Svo tæKnivætt að mér fannSt að það væri Spennandi að láta áHorfendur bara Sitja Saman Í þöGn. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r42 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 5 4 -F 4 1 4 1 B 5 4 -F 2 D 8 1 B 5 4 -F 1 9 C 1 B 5 4 -F 0 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.