Fréttablaðið - 18.11.2016, Qupperneq 62
Toblerone-neytendur voru niður-
brotnir eftir umdeildar breytingar
sem ráðist var í fyrir skömmu þar
sem meira bil er á milli bitanna.
Breytingarnar koma til vegna
aukins framleiðslukostnaðar að
sögn framleiðandans, Mondelez
International. Þessar breytingar ná
ekki til Íslands, samkvæmt Innnesi,
sem flytur súkkulaðið inn.
„Við flytjum inn 360 gramma
Toblerone. Það sem deilurnar
standa um er eingöngu selt í bresk-
um lágverðsverslunum,“ segir Páll
Hilmarsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs hjá Innnesi. Hann
segir að breytingarnar sem hafa
orðið á 360 gramma súkkulaðinu
séu litlar en það var áður 400
grömm.
„Þetta súkkulaði sem deilurnar
standa um kemur ekkert til Íslands.
360 gramma stykkið hefur aðeins
rýrnað en það er óverulegt.“ Eftir
breytingarnar er 400 gramma
súkkulaðið nú 360 grömm og 170
gramma súkkulaðið 150 grömm,
samkvæmt fréttum BBC. Málið
var rætt á breska þinginu í gær þar
sem þingmaðurinn Colin Beattie
kallaði eftir aðgerðum frá forsætis-
ráðherranum, Theresu May. Sagði
þingmaðurinn að þetta væri bein
afleiðing af Brexit. „Þetta er ein
birtingarmynd af Brexit. Ég kalla
eftir aðgerðum frá breskum stjórn-
völdum gegn þessum breytingum,“
sagði Beattie á þinginu. May var
ekki búin að svara tillögu þing-
mannsins.
„Íslenskir Toblerone-aðdáendur
geta andað léttar og fá sitt Toble-
rone. Þau stykki sem við erum að
selja hafa ekki orðið fyrir miklum
breytingum.“ benediktboas@365.is
Íslenskir Toblerone-aðdáendur geta andað 40 grömmum léttar
360 gramma Toblerone
var áður 400 grömm.
Örlítið lengra bil er á milli
bitanna. FréTTablaðið/GVa
V ið erum kát með þetta,“ segir Krist-inn Jóhannsson, e i g a n d i B r yg g j -unnar í Grindavík, en bandaríska leik-
konan Sigourney Weaver sagði í
viðtali að humarsúpan á veitinga-
staðnum væri besti matur sem
hún hefði smakkað í ferðalögum
sínum um heiminn. „Á Íslandi
fórum við í lítið sjávarþorp rétt
fyrir utan Reykjavík sem heitir
Grindavík og þar var indælt kaffi-
hús þar sem sjómenn eru fasta-
gestir,“ segir leikkonan meðal ann-
ars í viðtalinu. „Þar var boðið upp á
humarsúpu sem var hnausþykk og
borin fram með nýbökuðu brauði.
Þetta bjargaði okkur á sínum tíma
því annars hefðum við pottþétt
fengið lungnabólgu,“ segir Weaver.
Humarinn í súpuna kemur frá Þor-
lákshöfn en engin humarvinnsla
er í Grindavík eftir að kvótinn var
seldur. „Þetta er súpa sem kokkur
á fiskiskipi kenndi mér að búa til.
Hann á sinn heiður af henni þó við
séum búin að betrumbæta hana
aðeins. Þegar við vorum að byrja
leituðum við til manns sem var
tilbúinn að kenna okkur að gera
góða humarsúpu því sjálfur er ég
ekki veitingamaður en var með
húsnæði sem passaði vel í að opna
veitingastað,“ segir Kristján.
Mikil vinna fer í hvern disk en
súpan er gerð frá grunni og segir
Kristján að hvergi sé leiðin stytt.
„Þetta er allt búið til hér á staðnum.
Hún er svolítið sérstök hvað það
varðar. Það var gaman að fá Weaver
í heimsókn í sumar og það var eng-
inn að ónáða hana. Það fór vel um
hana greinilega,“ segir hann stoltur.
Hann er ekki síður stoltur af því
að allt sem er til sölu sé búið til á
staðnum. „Humarsúpan var alltaf
fyrst bara á föstudögum en svo
varð hún svo vinsæl að nú er hún á
hverjum degi.“
benediktboas@365.is Humarsúpan magnaða sem Weaver segir að sé hnausþykk og dásamleg. Mynd/bryGGjan
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r50 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Lífið
Weaver elskar
humarsúpuna í Grindavík
Bandaríska leikkonan Sigourney Weaver segir í viðtali við ferðavefsíðuna Condé Nast
Traveler að besti matur sem hún hafi fengið á heimshornaflakki sínu sé humarsúpan á
Bryggjunni í Grindavík. Súpan er gerð frá grunni en uppskriftin kemur úr óvæntri átt.
Weaver hefur verið
tilnefnd þrisvar
sinnum til Óskars-
verðlauna en
aldrei unnið.
Mynd/GeTTy
1
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
5
5
-3
E
2
4
1
B
5
5
-3
C
E
8
1
B
5
5
-3
B
A
C
1
B
5
5
-3
A
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K