Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 2
Samfélag „Það er okkur mikilvægt að minnka hávaðann í vopnunum sem verið er að nota, til að draga úr hættu á heyrnarskaða sem er mjög algengur fylgifiskur skotveiða,“ segir Jón Hávarður Jónsson, for- maður Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum. Nýjar reglur sem heimila veiði- mönnum að nota hljóðdeyfa tóku gildi í liðinni viku. Þessi breyting er til samræmis við hliðstæðar reglu- gerðir á öðrum Norðurlöndum og tekur til stærri veiðiriffla. Reglugerðin var unnin af innan- ríkisráðuneytinu í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Lög- reglustjórafélag Íslands, lögreglu- stjórann á höfuðborgarsvæðinu og Umhverfisstofnun. Lögreglustjórar veita heimild til notkunar hljóðdeyfis og er gerð krafa um að hljóðdeyfirinn sé geymdur í sérútbúnum vopnaskáp. Samkvæmt íslenskum vopna- lögum hefur hingað til ekki verið heimilt að breyta vopnum, til dæmis með því að setja hljóðdeyfi framan á byssu. Í tilkynningu innanríkisráðu- neytisins segir að með notkun hljóðdeyfa verði hávaðinn um 130 dB sem er undir sársaukamörkum og dragi því úr hættu á heyrnar- skemmdum. Gunnar Bjarnason, formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis, segir félagið vera mjög ánægt með breytinguna. „Sterkustu rökin fyrir því að leyfa hljóðdeyfa eru tengd heilsuvernd, þá einkum varðandi heyrn veiði- manna og ekki síst hjá leiðsögu- mönnum,“ segir Gunnar. Formaður Skotveiðifélagsins seg- ist jafnframt vona að nýju reglurnar muni hafa í för með sér minni skörun milli veiðimanna annars vegar og útivistarfólks hins vegar. Þá muni dýralíf verða fyrir minni truflun. thorgeirh@frettabladid.is Veður Suðaustanáttin verður stíf víða um land og getur náð stormi syðst á landinu. Norðanlands verður allvíða sólríkt, en syðra verður skýjað með rigningu öðru hverju. Sjá Síðu 24 Góður gestur á leiknum Adam Williams, breskur lögregluþjónn, og kærasta hans, Catherine Janes, voru afar spennt fyrir landsleik Íslendinga og Finna í gær. Williams var stunginn eftir leik Íslands og Frakklands á EM í sumar. Hann er mikill stuðningsmaður Íslands. „Ég er mjög spenntur, ég held að leikurinn fari 3-0 fyrir Ísland. Svo langar mig að þakka öllum sem buðu mér hingað,“ sagði Williams fyrir leikinn sem lauk með 3-2 sigri Íslands. Fréttablaðið/anton brink SEVILLA 11. nóvember í 3 nætur Netverð á mann frá kr. 49.750 m.v. 2 í herbergi m/morgunmat. Hotel Catalonia Santa Justa Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Frá kr. 49.750 m/morgunmat Helgarferð til ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI FY RI R2 1 á flugsæti m/gistingu Veiðimenn fá að nota hljóðdeyfa á rifflana Hljóðdeyfar draga úr líkum á heyrnarskemmdum og minnka truflun hjá öðru útivistarfólki. Mjög mikilvægt er að minnka hávaðann segir formaður Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum. Skotveiðimenn segjast mjög ánægðir. Sterkustu rökin fyrir því að leyfa hljóðdeyfa eru tengd heilsu- vernd, þá einkum varðandi heyrn veiðimanna og ekki síst hjá leiðsögumönnum Gunnar Bjarnason, formaður Skotveiði- félags Reykjavíkur og nágrennis riffill með hljóðdeyfi. Fréttablaðið/Eyþór Hreindýrin eiga framvegis von á hljóðlátari skotveiðimönnum. Fréttablaðið/ViHElm SVíÞjÓð Fyrrverandi starfsmaður Svíþjóðardemókrata, sem kallar sig Egor Putilov, mun sæta rannsókn vegna gruns um peningaþvætti. Fasteignaviðskipti hans við dæmd- an rússneskan kaupsýslumann hafa verið kærð til efnahagsbrotadeildar sænsku lögreglunnar. Putilov, sem gengið hefur undið fimm nöfnum en heitir í raun Alexander Fridback, keypti ein- býlishús af Rússanum og seldi það síðan fyrir nær tvöfalt hærra verð. Grunur leikur á að um lið í peninga- þvætti hafi verið að ræða. Rússneski kaupsýslumaðurinn, sem afplánar nú fangelsisdóm, er sagður tengjast rússneskum yfirvöldum. – ibs Svíar rannsaka peningaþvætti írland Írska ríkisstjórnin hyggst fara fram á samningaviðræður við Evrópusambandið um að landa- mærunum að Norður-Írlandi verði áfram haldið opnum eftir að Bret- land hefur formlega yfirgefið Evr- ópusambandið. Írar hafa áhyggjur af því að brott- hvarf Bretlands leiði til að landa- mærum Írlands og Norður-Írlands verði vandlega lokað, fari svo að samningaviðræður Breta við Evrópu- sambandið endi með því að Bretar skelli öllu í lás. Sérsamningur við Írland myndi hins vegar þýða að íbúar annarra Evr- ópusambandsríkja ættu áfram greiða leið til Bretlands um Írland. – gb Írar vilja áfram opin landamæri Charles Flanagan, utanríkisráðherra Írlands, SkÓlar Börn í leikskólanum Trölla- borg á Hofsósi léku sér um stund í myglu í húsnæði leikskólans. Myglan einskorðaðist við háaloft hússins. Foreldrar barna á Hofsósi urðu eðlilega skelkaðir þegar myglan kom í ljós en Anna Árnína Stef- ánsdóttir leikskólastjóri segir að myglan sem fannst hafi ekki verið skaðleg og því hafi foreldrar og starfsfólk róast. „Húsið er frekar lélegt. Þetta er ekki þessi hættulega mygla en það þarf auðvitað að laga þetta. Þegar niðurstaða kom þá róuðust allir og það er verið að vinna í málinu.“ Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra segir í fundargerð að eftir þrif og þéttingu á loftlúgu hafi myg- lugró í leikstofum barna ekki verið til staðar. Heilbrigðisnefnd vill fá tímasetta áætlun um endurbætur á húsnæðinu fyrir lok nóvember 2016. – bbh Börnin léku sér í myglu á Hofsósi Jimmy Åkesson, formaður Svíþjóðar- demókrata 7 . o k t Ó b e r 2 0 1 6 f Ö S t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 6 -5 6 A 0 1 A D 6 -5 5 6 4 1 A D 6 -5 4 2 8 1 A D 6 -5 2 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.